10.12.1981
Sameinað þing: 33. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1392 í B-deild Alþingistíðinda. (1171)
9. mál, aðild Íslands að Alþjóðaorkustofnuninni
Viðskrh. (Tómas Árnason):
Herra forseti. 1. flm. þessa máls hefur gert grein fyrir því, með hverjum hætti þetta mál hefur verið athugað af Íslands hálfu. Þegar ég tók við embætti viðskrh. var starfandi sérstök nefnd sem hafði það verkefni að athuga þetta mál, athuga hvort það væri æskilegt að Ísland gerðist aðili að Alþjóðaorkustofnuninni. Ég ákvað að halda því starfi áfram og sendi m. a. menn til Parísar snemma um vorið 1980 til að ræða við fulltrúa frá Alþjóðaorkustofnuninni og afla upplýsinga og fá svör um stofnunina og starfsemi hennar. Síðan samdi þessi nefnd ítarlega skýrslu sem ber heitið: Skýrsla nefndar til að kanna málefni Alþjóðaorkustofnunarinnar. Skýrslan er dagsett í júnímánuði 1980.
Eins og raunar þegar hefur komið fram er þessi stofnun sjálfstæð stofnun innan vébanda Efnahags- og framfarastofnunarinnar sem Ísland er aðili að, og hún hefur aðsetur, eins og kunnugt, er í París. Þessari stofnun var komið á fót 15. nóv. 1974 með ákvörðun ráðs Efnahags- og framfarastofnunarinnar, og greiddi fulltrúi Íslands í ráðinu atkv. með þeirri ákvörðun. Hinn 18. nóv. 1974 var samningur um alþjóðaorkuáætlun, sem starfsemi Alþjóðaorkustofnunarinnar hefur grundvallast á frá þeim degi, síðan undirritaður af fulltrúum 16 af 24 aðildarríkjum Efnahags- og framfarastofnunarinnar. Ísland var ekki í þeirra hópi.
Í skýrslu til ríkisstj. frá því í sept. 1979 gerði fimm manna olíuviðskiptanefnd, sem dr. Jóhannes Nordal bankastjóri Seðlabankans var formaður fyrir, m. a. almenna grein fyrir Alþjóðaorkustofnuninni, skipulagi, starfi og aðildarskilmálum. Nefndin mælti með því, að Ísland óskaði eftir aðild að stofnuninni. Einn nm. hafði þó fyrirvara um þessa afstöðu.
Nú er það auðvitað svo, að eftir að orkukreppan skall á höfum við Íslendingar auðvitað, eins og allar þjóðir, áhuga á að treysta stöðu okkar í orkumálum. Þarf ekki að fara um það við þetta tækifæri fleiri orðum.
Ég vildi gera nokkra grein fyrir því, hvernig staðan er í sambandi við birgðarými fyrir olíuvörur, en hún hefur breyst nokkuð og einnig hefur neyslan breyst á seinustu tveimur árum. Styðst ég aðallega við umsögn sem Vilhjálmur Jónsson forstjóri Olíufélagsins hf. hefur gefið.
Það er ljóst, að það er nokkuð útbreidd skoðun að besta ráðið til að tryggja hér á landi nægar olíubirgðir sé að Ísland gerist aðili að Alþjóðaorkustofnuninni. Hefur verið vísað til þess, að aðildarríkin þurfa, ef þau verða aðilar, að skuldbinda sig til að eiga jafnan a. m. k. 90 daga birgðir af olíu, en Ísland hefur hingað til skort töluvert á til að ná því marki. Mig minnir að það komi fram í skýrslunni að þetta mark hafi verið rúmlega 50 dagar, líklega 54–55 dagar, þegar skýrslan var lögð fram. En það hafa orðið nokkrar breytingar á síðustu tveimur árum bæði á birgðarými olíufélaganna miðað við sölu og einnig á neyslunni.
Gasolíusala í landinu hefur minnkað um 6000 tonn á mánuði að meðaltali eða birgðaþörf minnkað um 18 þús. tonn miðað við þriggja mánaða birgðir. Þetta stafar fyrst og fremst af því, að margar hitaveitur hafa leyst olíuna af hólmi við upphitun húsa og einnig hafa mörg hús verið tengd rafmagni á s. l. tveimur árum. Á sama tíma hafa verið byggðir tveir geymar á innflutningshöfnum sem rúma 16 þús. tonn. Og á ströndinni a. m. k. geymar sem rúma 1500 tonn. Samkv. þeim upplýsingum, sem Vilhjálmur Jónsson hefur gefið, rúmar þetta birgðarými samtals 216 347 tonn. Meðaltalssala síðustu 9 mánuði nemur 1320 tonnum á dag, og þá miða ég við fyrstu 9 mánuði þessa árs, af þessum helstu neyslutegundum, þ. e. gasolíu, bensíni og svartolíu. Jafnvel þótt nýtni birgðarýmisins færi niður í 60% mundi það samt svara til 98 daga birgða. Þannig er ljóst að við eigum að hafa nú þegar aðstöðu til að rúma 90 daga birgðir í landinu. Það er nokkuð veruleg breyting á frá því sem kemur fram í þeirri skýrslu sem hefur verið dreift frá nefndinni sem kannaði málefni Alþjóðaorkustofnunarinnar.
Ég hafði mikinn áhuga á því, strax eftir að ég tók við embætti viðskrh, að kannaðar yrðu allar leiðir til að tryggja að viðunandi birgðir af olíuvörum væru ávallt fyrir hendi í landinu, enda í samræmi við ákvæði stjórnarsamningsins. Ég ritaði olíufélögunum bréf 13. mars 1980 og spurðist fyrir um hvernig félögin mundu standa að aukningu á birgðarými hvert um sig sem næmi 30 daga sölu. Þarna var raunar aðeins verið að leita svara við þeirri spurningu, hvort olíufélögin væru tilbúin að reisa og fjármagna viðbótargeymarými, ef á þyrfti að halda. Svör þeirra allra voru á þá lund, að þau væru reiðubúin til þess.
Þegar samningar tókust við Sovétríkin á þessu hausti um aukin kaup á svartolíu á þessu ári rituðu olíufélögin viðskrh. bréf þar sem óskað var eftir að félögunum yrði gert fjárhagslega kleift að taka við auknum birgðum af svartolíu sem samkv. samningum ættu að vera fyrir hendi um n. k. áramót. Ég hef tekið þessum tillögum olíufélaganna vel og vonast til þess, að þær nái fram að ganga. Auðvitað verða menn að gera sér grein fyrir að það kostar talsvert fé að auka birgðir af olíuvörum vegna þess að það þarf að greiða vexti af því fjármagni sem liggur í birgðunum. Ég hef ekki komið auga á aðra leið í þeim efnum en landsmenn verði að standa undir því til þess að tryggja eigið öryggi í þessum málum. Finnst mér það eðlilegt.
Það er auðvitað verulega mikilsverðum áfanga náð ef tryggðar eru öryggisbirgðir af þeim olíuvörum, sem aðallega eru notaðar í atvinnulífinu, og einnig af bílabensíni. Þessar þrjár mismunandi tegundir af olíuvörum, sem ég hef minnst hér á, eru þýðingarmestar í þessum efnum. Til að þetta verði mögulegt þarf í fyrsta lagi að heimila tollgeymslu á bensíni þannig að hinn hái verðtollur verði greiddur við sölu, en ekki innflutning. Það gæti auðveldað lausn á þessu máli og gæti komið nokkuð til móts við neytendur að því leyti, að þeir þyrftu þá ekki að greiða allan kostnað af aukningu birgða á olíuvörum.
Ég skal ekki við þetta tækifæri tjá mig um hvernig væri eðlilegt að standa undir þessu. Ég kem ekki auga á aðrar leiðir en þessar: annars vegar að verðtollur verði greiddur seinna af viðbótinni en verið hefur og síðan að neytendur hreinlega standi undir þeim kostnaði til viðbótar sem nauðsynlegur er til að tryggja nægilegar birgðir. En þetta er út af fyrir sig hægt að gera þó að við séum ekki aðilar að Alþjóðaorkustofnuninni.
Ég taldi nauðsynlegt að þetta kæmi fram til upplýsingar í sambandi við þetta mál.
Ég hef fyrir mitt leyti verið hlynntur því, að Ísland gerðist aðili að Alþjóðaorkustofnuninni. Þetta mál hefur verið nokkuð lengi fyrir ríkisstj. Nú er verið að kanna þetta sérstaklega af nefnd sem í eru fulltrúar stjórnaraðilanna. Hún hefur aflað frekari gagna og er að afla frekari gagna, m. a. gagna frá Norðurlöndunum um upplýsingar sem varða þessa þátttöku og hvernig þeir hafa staðið að þessum málum öllum. Það er of snemmt að segja um hver verður niðurstaðan í þessu máli. Ég skal ekkert um það segja. Stjórnarflokkarnir hafa ekki tjáð sig formlega um þetta mál og ég skal ekkert um það segja hver niðurstaðan verður, hvort ríkisstj. verður sammála um að leggja til við Alþingi að Ísland gerist aðili að Alþjóðaorkustofnuninni, en það kemur að sjálfsögðu í ljós. En eftir að hafa skoðað allt málið og gert mér grein fyrir því, að það er miklu víðtækara en það snerti einvörðungu olíuvörur hef ég verið þeirrar skoðunar, að það væri skynsamlegt fyrir Íslendinga að gerast aðilar. Hitt er annað mál, að það er spurning um hvernig sú aðild geti orðið, hvort hún yrði með sérstakri aðlögun o. s. frv. En eins og ég sagði er málið ekki komið á lokastig athugunar hjá ríkisstj. og stjórnaraðilarnir háfa ekki tekið ákvörðun um hvað gera skuli í málinu.