10.12.1981
Sameinað þing: 33. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1394 í B-deild Alþingistíðinda. (1172)

9. mál, aðild Íslands að Alþjóðaorkustofnuninni

Friðrik Sophusson:

Herra forseti. Ég skal ekki vera margorður um þá till. til þál. sem hér liggur frammi og er til umr. á þessum fundi.

Ég vil taka undir efni till. og fagna því, að hún er lögð fram á Alþingi. Ég tel afar líklegt að það sé meirihlutafylgi á Alþingi við þessa tillögu.

Eins og fram hefur komið í þessum umr. skilaði nefnd skýrslu um þetta mál í júní 1980 eða fyrir 11/2 ári. Samt sem áður hefur málið ekki hreyfst meira en svo að nú þarf stjórnarandstaðan að leggja fram till. til þál. á Alþingi til að kalla fram svör hæstv. ríkisstj. En það hefur ekki komið fram í þessum umr., að fyrir tæpu ári var samið nýtt lagafrv., annað lagafrv. en það sem er í skýrslu nefndarinnar sem skilaði áliti í júní 1980, — nýtt sérstakt lagafrv. sem tók tillit til nýrra aðstæðna, og það frv. hefur legið í skúffu hjá hæstv. viðskrh. líklega í tæpt ár. Höfundur þess frv. mun vera Jón Ögmundur Þormóðsson. En ekkert bólar á framlagningu þess. Ástæðan er auðvitað sú sem hér hefur komið fram einnig, að Alþb. hefur í þessu máli, eins og sumum öðrum mikilvægum málum, stöðvunarrétt í ríkisstj. Ég vonast til þess, af því að ég veit að hv. 8. landsk. þm. tekur til máls hér á eftir mér, að hann komi hér í ræðustól og lýsi því yfir fyrir hönd Alþb., en hv. þm. Guðrún Helgadóttir er talsmaður Alþb. í þessu máli, að stefna Alþb. hafi breyst í málinu og Alþb. hafi nú skilning á því, hvert gagn geti verið af aðild Íslands að Alþjóðaorkustofnuninni.

Það kom fram hjá hæstv. viðskrh., að enn á ný hefði verið sett á stofn ný nefnd til að kanna málið. Ef ég þekki málið rétt get ég ímyndað mér að það sé ekki aðeins vegna viðhorfa Alþb., heldur einnig vegna ímyndaðra hagsmuna olíufélaganna, sem slík nefnd er sett á laggirnar. Þá gæti það gerst, að lagt yrði fram á Alþingi frv. sem ekki tæki til aðildar að Alþjóðaorkustofnuninni, heldur væri aðeins um neyðarbirgðir olíu í landinu án þess að við gerðumst aðilar að Alþjóðaorkustofnuninni. Þetta veit auðvitað hæstv. ráðh., en þetta kærði hann sig ekki um að láta koma fram á þessum fundi.

Ég ræddi fyrir nokkrum mánuðum, líklega hálfu ári, við hæstv. ráðh. um þetta mál og sagði honum, að mér væri kunnugt um að samið hefði verið frv., og gat þess jafnframt, að ástæða væri til að það frv. kæmi fram án þess að beðið væri eftir hæstv. ríkisstj. Vera kann að það sé ástæða til þess fyrir okkur, sem teljum okkur vera í meiri hl. á Alþingi í þessu máli, verði ekki annað hægt, að fara til hæstv. ráðh. og fá lánað það frv. sem hann hefur falið í skrifborðsskúffunni hjá sér.

Ég vil þó að lokum þakka hæstv. ráðh. fyrir að þora að segja sína skoðun í þessu máli, þrátt fyrir andstöðu Alþb., því að hann sagði skýrt og greinilega að hann væri meðmæltur því, að Ísland gerðist aðili að Alþjóðaorkustofnuninni. Nú er spurning hvort kjarkur ráðh. dugir til að koma málinu inn á Alþingi með þeim hætti að það reyni á hvort meirihlutavilji Alþingis fái að koma fram í málinu eða hvort í þessu máli á það að gerast, eins og í sumum öðrum mikilvægum málum, að stjórnmálaflokkur, sem nýtur liðsinnis sjöttungs þm., eigi að ráða ferðinni í þessu máli. — Ég býst við að þingheimur bíði eftir því með eftirvæntingu, að talsmaður Alþb. í þessu máli; hv. þm. Guðrún Helgadóttir, komi hér upp og geri grein fyrir afstöðu Alþb., því að ég geri fastlega ráð fyrir að hún sé hér komin til að lýsa yfir stefnubreytingu Alþb. Sé svo fagna ég því.