10.12.1981
Sameinað þing: 33. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1426 í B-deild Alþingistíðinda. (1185)
9. mál, aðild Íslands að Alþjóðaorkustofnuninni
Kjartan Jóhannsson:
Herra forseti. Ég átti þess því miður ekki kost að heyra upphaf þessarar umr. Ég varð þess hins vegar aðnjótandi að fá að hlusta hér á endalausa þvælu og rangfærslur í máli hv. 11. þm. Reykv. síðan hef ég líka orðið þess aðnjótandi að fá að heyra hæstv. viðskrh. flytja hér vangaveltur til staðfestu á því, að hugmynd hans er að velta þessum málum fyrir sér með sama hætti og hann hefur gert undanfarin tvö ár, en tefja fyrir framgangi þeirra og gera ekkert í þeim. Mér finnst þetta ill örlög fyrir hæstv. viðskrh: Ég veit ekki hvort þau eru sjálfráð eða hvort einhverjir aðrir ráða yfir honum í þessum málum.
En að því er varðar hv. 11. þm. Reykv. og þá þvælu og þær rangfærslur sem hann fór með, að vísu ekki í fyrsta skipti, þá er það spurning hvort maðurinn veit ekki betur eða hvort hann er að gera sér leik að því að fara með rangt mál. Ég er hræddur um að það sé reyndar hvort tveggja. Hvort heldur sem er, þá er það mjög slæmt, en að það skuli vera hvort tveggja er auðvitað verst af öllu.
Við getum tekið fáein atriði sem komu hér fram í ræðu hv. þm. Hann sagðist t. d. vera fylgjandi því og þeir Alþb.-menn að fá olíu sem víðast að. Í leiðinni gaf hann svo sérstaka yfirlýsingu um það, að hann væri ekki vinur Rússa heldur Breta. En hver er afstaða Alþb. í reynd í þessu máli? Þeir Alþb.-menn hafa aldrei verið fúlli á ævinni heldur en þegar verið var að reyna að pína Rússa til þess að breyta samningunum um olíuviðskiptin. Það ætti að vera allri þjóðinni í fersku minni þegar Svavar Gestsson, þáv. viðskrh., neitaði með öllu að vera oddviti íslenskrar sendinefndar til þess að fylgja málum eftir þegar sendinefnd var send til að vinna að samningum í Moskvu. Það vildi hann alls ekki. Hann vildi ekki beita sér á stjórnmálalega sviðinu.
Ég minnist þess líka, að þegar ég bar fram till. um þessi mál í ríkisstj., hvernig afstöðu og vinnubrögðum skyldi háttað, þá höfðu þeir Alþb.-ráðherrar allt á hornum sér.
Og það sama gerðist í þriðja sinn, þá lak af þeim fýlan, þegar ég lenti í því sem viðskrh. að reyna að knýja Rússana til að breyta samningsákvæðunum. Þá voru þeir ekki glaðir, Alþb.-menn. Þá var allt ómögulegt.
En hvernig samningar voru það sem við bjuggum við við Rússana? Ég ætla að rifja það upp. Þeir voru þannig að við urðum að ákveða fyrir fram hversu mikið magn við keyptum yfir allt árið. Og í annan stað urðum við að búa við verðklásúlur sem áttu sér engin fordæmi í olíuviðskiptum af því tagi sem við vorum með. Við vorum með öll olíuviðskipti okkar við þessa þjóð og við höfðum staðið í viðskiptum við Sovétmenn í 25 ár. Engu að síður létu þeir sig hafa það að vilja ekki breyta þessum samningum. Þetta voru hreinir nauðungarsamningar. Það var beitt afli til þess að halda okkur við þessa samninga, beitt allri aðstöðu sem möguleg var. Á sama tíma höfðu Írar langtum betri kjör. En það tókst þó í þessum samningaviðræðum, eftir mikla vinnu og mikið þref, að fá inn það ákvæði, að við gætum dregið úr olíuinnkaupunum ef við tilkynntum það með þriggja mánaða fyrirvara. Það tókst eftir mikið þref í nóv. eða des. 1979.
Komum þá að öðru atriðinu í málflutningi þeirra Alþb.-manna. Þeir gagnrýna sérstaklega samningana sem gerðir voru við BNOC, við Breta um olíukaup þaðan. Hver er saga þeirra samninga? Um leið og það náðist fram að við gætum dregið úr olíuviðskiptum við Rússa með fyrirvara, þá setti ég í gang samningaviðræður við Breta. Ekki mótmælti Alþb. þá einu orði. Hvað gerðist svo? Ríkisstj. Alþb. og Framsóknar gekk frá þeim samningum og þessum verðklásúlum sem enginn annar hefði haft áhuga á að standa að. Alþb. mótmælti ekki þá, það skrifaði undir í ríkisstj. En nú segjast þeir vera á móti þessum samningum. Af hverju? Af því að þeir sjá að þeim tókst ekki að gera svo hagstæða samninga sem hefði átt að gera og aðstaða var til. Þeir eru á móti því sem þeir bera ábyrgð á sjálfir í þessum efnum. En svo ráðast þeir á aðra, sem sköpuðu möguleikana til þess að ná viðskiptunum á fleiri hendur, til þess að öll eggin þyrftu ekki að vera í einni körfu. Það eru Alþb.- og Framsóknarráðherrarnir sem bera ábyrgð á þessum samningum að því er verðklásúlurnar varðar og hvernig frá þeim var gengið. Það er auðvitað hart í þessu sambandi að uppáhaldslandið hans Ólafs Ragnars Grímssonar skuli eiga í hlut, en þetta er sannleikurinn í málinu.
Ég er ánægður með að ég skyldi eiga hlut að því, að settar voru í gang samningaviðræður við Breta. Ég er enn þá ánægðari með að ég skyldi eiga hluta að því í ríkisstj. Alþfl., að það tókst þó að knýja fram að við værum ekki bundnir á klafann allt árið og til eilífðar að því er varðaði olíuviðskipti við eitt land. En þeir bera ábyrgðina á verðklásúlunni sem gengu frá samningnum.
Ég held að þrátt fyrir allan málflutning þeirra Alþb. manna hér í dag hafi reynslan sannað að þeir vildu að olíukaupin væru áfram frá Rússlandi. Þeir mótmæltu ekki í upphafi samningaviðræðna við Breta. Það var vegna þess að þeir þorðu það ekki. Það var kjarkleysið á þeim tíma. Nú er nákvæmlega það sama upp á teningnum. Fyrir sakir kjarkleysis kannast þeir ekki við það sem þeir hafa gert sjálfir og við eigin ábyrgð. Þetta er mottó hjá Alþb., að kenna öðrum um og kannast ekki við ábyrgð sína. En það er annað mottó sem maður tekur líka eftir hjá Alþb., og það er það, að ef á að ræða við þá á málefnalegum grundvelli eru þeir horfnir úr húsinu, eins og herra forseti hefur sjálfsagt tekið eftir.
Að því er Alþjóðaorkustofnunina varðar, sem hér er flutt till. um, þá er saga Alþb. í því máli nákvæmlega af sama toga. Þegar Svavar Gestsson var viðskrh. gerði hann ekkert til þess að láta kanna það mál. Það þoldi ekki einu sinni ljósið. Og hvenær sem þetta bar á góma þvældist hann fyrir því. Það lenti í hlut okkar í ríkisstj. Alþfl. að setja þessa könnun í gang. Þá fyrst komst einhver hreyfing á málin. Og nú er það eins með Alþb. Það hefur þetta mál á hornum sér. Það, sem að vísu kemur fram í umr. núna, er að þeir eru svolítið tvístígandi. Það liggur í málflutningi þeirra að þeir séu eiginlega á báðum áttum. Það kemur mér ekkert á óvart. Þeir munu haga sér í þessu máli eins og öðrum, nefnilega firra sig ábyrgð ef eitthvað skyldi á bjáta í þessu máli. En ef þetta skyldi hins vegar ganga vel, þá munu þeir vitanlega hrósa sér af því. Þetta er bara þeirra aðferð. Þetta er það sem við munum kynnast eftir á. Þetta er það sem reynslan mun kenna okkur. Það hefur auðvitað verið gott að fá sýnikennslu í því í dag, hvernig menn haga málflutningi sínum á þeim bæ, að menn skuli hlaupast undan ábyrgð á því sem þeir hafa staðið að og hafa gert, en reyna svo að kenna öðrum um annað, sem þeir, sem um eru sakaðir hafa alls ekki gert. Þeim mun meira sem hv. þm. Alþb. tala í þessu máli þeim mun skýrar kemur tvískinnungurinn í ljós.
Að síðustu langar mig til að benda alveg sérstaklega á það, að einmitt núna, einmitt á þeim tíma sem Tómas Árnason hefur verið viðskrh. hefur verið lag til þess að standa í samningum um olíukaup. Þegar mikil kreppa var á olíumarkaðnum var aðstaðan auðvitað mjög erfið. En núna, þegar slaknað hefur á, er besta aðstaðan til að vinna í þessum málum, ekki bara íhuga þau og ekki bara láta þetta danka einhvern veginn eins og hefur verið gert að undanförnu. Þetta lag á að nota. (Viðskrh: Það er verið að vinna í þessu.) Hæstv. viðskrh. segist vera að vinna í því. En hann hefur lýst því hér í langri ræðu hvernig hann vinni í því. Hann hefur flækt sig í formsatriðum allt frá því að hann tók við embættinu fyrir tveimur árum, flækt sig í formsatriðum, ekki getað fengið sig til þess einu sinni að kanna hvaða möguleikar væru á viðskiptum við Saudi-Araba. Það er allt fast í formsatriðum. Ég er ekki að segja að við eigum að hoppa upp og gera samninga við þá. En ég veit ekki hvort maður, sem bauðst til fyrir tveimur árum að ræða þessi mál, hoppar hæð sína af gleði þegar hæstv. viðskrh. verður búin að þvælast með þetta í þrjú, fjögur ár og segir: Núna er ég tilbúinn. — En svona eru vinnubrögðin á þessum bæ. Og ef þetta er ekki að vera rasssíður í málinu, þá veit ég ekki hvað það er.
Að því er varðaði önnur viðskipti, þá sagði hæstv. viðskrh. að hann væri að íhuga þau. Það gilti um Frakka og það gilti um Norðmenn og það gilti um Finna. En þessi innhverfa íhugun hefur ekki skilað ýkjamiklum árangri enn þá. Og við skulum bara gæta að því, að það er ekki óendanlegt svigrúm í tíma sem við höfum í þessum efnum. Það getur komið að því aftur að það herði að í olíumálunum, og þá verður ekki nokkur maður til viðtals.
Ég tók líka eftir því áðan að haft var á orði að það væri voðalegt að það væru kvaðir um miðlun ef menn tækju þátt í þeirri Alþjóðaorkustofnun sem hér er till. um. En hver getur gert ráð fyrir því, ef hann ætlar að njóta tryggingar, að hann sé ekki fullur þátttakandi í því sem þar er um að ræða? Ég veit ekki betur en menn borgi iðgjald yfirleitt í sambandi við tryggingar. Hér á bara að heimta og heimta, en ekki sýna neina samstöðu með öðrum. Ég er næsta sannfærður um það, að þeir möguleikar, sem við eigum í sambandi við þessa miðlun, eru langtum, langtum meiri en hugsanlegar kvaðir.
Þessi þáltill. er auðvitað liður í því að við tökum olíuinnkaupamálin til almennilegrar meðferðar einmitt þegar best lag er. Við börðumst í þessum málum með ýmsum hætti þegar aðstæður voru sem verstar. Nú er betra lag. Og það er augljóst mál, að það samstarf, sem hér er um að ræða, er af hinu góða. Það mun gagnast Íslandi og það mun verða til þess að við eigum auðveldara með að halda á þessum málum. Þess vegna mæli ég eindregið með því, að þessi till. til þál. verði samþykkt. Ekki veitir af að reka á eftir hæstv. viðskrh.