10.12.1981
Sameinað þing: 33. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1432 í B-deild Alþingistíðinda. (1188)
9. mál, aðild Íslands að Alþjóðaorkustofnuninni
Kjartan Jóhannsson:
Herra forseti. Hæstv. viðskrh. talaði um að það væri ekkert vit í öðru en að hafa samband við stjórnvöld í landi eins og Saudi-Arabíu. Það var svar ráðh. við þeim ábendingum sem komu hér fram í máli hv. þm. Alberts Guðmundssonar. En það vill nú svo vel til, að því er varðar viðskipti við þetta land, að á borði hans, þegar hann tók við embættinu af mér, lá tilboð fyrir milligöngu sendiherra Saudi-Arabíu. Ég veit ekki betur en að hann sé fulltrúi ríkisstjórnarinnar í því landi. Samt eru bráðum tvö ár liðin í viðskrh.-tíð Tómasar Árnasonar sem hafa farið í að flækja því fram og aftur hvort þyrfti að vera stjórnmálasamband eða ekki, en þessi fulltrúi viðkomandi ríkisstjórnar var tilbúinn til þess að ræða málið strax. En það mátti ekki, það þurfti að flækja þessu í formsatriði. Ég endurtek það, að ég efast um að hæstv. ráðh. sé sjálfrátt í þessu efni. Það hljóta einhverjir aðrir að ráða yfir honum.
Hæstv. viðskrh. talaði um það hér áðan, að ég hefði hrósað mér af því að koma á samningum við Breta. Það, sem ég hrósa mér af, er kannske fyrst og fremst að hafa opnað smuguna í viðskiptum við Rússa til þess að geta tekið upp samninga við aðra. En ég gat þess líka, að ég setti í gang samningaviðræðurnar við Breta. Hæstv. viðskrh. sagðist ekki muna nákvæmlega á hvaða stigi þessir samningar voru þegar hann tók við þeim. Það væri kannske ekki úr vegi að minna hæstv. viðskrh. á það, að hann fór meira að segja sjálfur sérstaka ferð til Bretlands til að skrifa undir þessa samninga. Þá voru samningarnir gerðir, þegar skrifað var undir þá, og það var eftir að hann hafði verið nokkra hríð í embætti. Það fer því ekkert á milli mála hver gekk frá þessum samningum. Þessi utanför og blaðamannafundir og ljósmyndun og viðhöfn hjá hæstv. viðskrh. á þeim tíma er fullkomlega til sannindamerkis um hver það var sem gekk frá þessum samningum.
Ég hef líka talið að það ætti að kanna möguleika í sambandi við olíuhreinsun, eins og hv. þm. Albert Guðmundsson hefur gert hér að umtalsefni, og ekki binda sig þar endilega við innanlandsmarkaðinn einan. Auðvitað á að athuga þessi mál.
En það, sem var hættulegast í málflutningi hæstv. viðskrh. hér seinast, var hvað hann var ánægður með sjálfan sig, hvað hann taldi að staðan væri góð og hvað við værum í hagstæðum viðskiptum við Ráðstjórnarríkin. Það er einmitt sinnuleysi af þessu tagi sem hefur komið íslensku þjóðinni í koll. Það var einmitt fyrir það, að menn voru svo lukkulegir með Rotterdam-samningana þegar slaki var í olíuviðskiptunum, sem við lentum í þessum hrikalegu hrakningum á sínum tíma, þegar verðið á þessum markaði var margfalt á við kostnaðarverðið og margfalt á við það sem aðrar þjóðir greiddu, sem höfðu komið sér upp langtímasamningum með eðlilegum hætti. Þess vegna ítreka ég það enn og aftur, að það er einmitt núna sem á að vinna í þessum málum, en ekki að hrósa sér og vera í sæluvímu yfir að nú sé allt í lagi. Það er ekki í lagi vegna íslenskra aðgerða. Það er í lagi af því að heimsmarkaðsverðið hefur stöðvast í bili. (Viðskrh.: Það er sem sagt allt í lagi.) Það er þægilegt ástand, en einmitt þá á að nota það lag sem gefist hefur. Og það er það sem hefur brugðist hjá hæstv. viðskrh.