11.12.1981
Efri deild: 21. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1434 í B-deild Alþingistíðinda. (1191)
100. mál, Stofnlánadeild verslunarfyrirtækja
Forseti (Helgi Seljan):
Út af því, sem kom fram í réttmætri athugasemd frá hv. 4. þm. Vestf., vil ég taka fram að það hefur ekki verið vani í þessari hv. deild að menn mæltu hér fyrir mörgum frv. samtímis. (Gripið fram í: Sumir banna það.) M. a. neitaði ég hæstv. heilbrmrh. um það hér fyrr. Hann minnist þess greinilega vel. (Gripið fram í: Það er ekki heimilt samkv. þingsköpum.) Það hagaði svo til að þau mál voru mjög óskyld og mér þótti það með öllu ótæki þá. Hér er í raun og veru um nákvæmlega sams konar breytingu að ræða varðandi bæði málin og því hafði ég nú, áður en hæstv. viðskrh. tók til máls, gert þessa undantekningu. Hafði ég fyrir mér fagurt fordæmi úr Nd. varðandi það. Við hlítum þá þeim fordæmum einnig hér.