11.12.1981
Efri deild: 21. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1438 í B-deild Alþingistíðinda. (1205)
96. mál, tímabundið vörugjald
Eyjólfur Konráð Jónsson:
Herra forseti. Síðasta mál á dagskrá var stjórnarfrumvarp, sem — maður getur sagt — sá ráðh., sem ekki átti að mæla fyrir frv., mælti fyrir. Það kom til af því, að hæstv. sjútvrh. dvelst erlendis eins og upplýst hefur verið. Ég vildi ekki verða þess valdandi að tefja það mál, þótt óeðlilegt sé að viðkomandi ráðh. mæli ekki fyrir sínum frv. Þess vegna greiddi ég fyrir því að það mál færi til nefndar og að 1. umr. lyki.
Nú leyfi ég mér að spyrjast fyrir um það, hvar hæstv. fjmrh. muni vera niður kominn, hvers vegna hann mælir ekki fyrir því frv., sem honum ber að mæla fyrir, og hvort forseti getur upplýst hvar hæstv. fjmrh. muni vera niður kominn. Er hann farinn af landi burt líka? (Forseti: Nei, hann er hérlendis.) Hyggst hann ekki mæta til að mæla fyrir sínum frv.? (Forseti: Ég vil vísa þessu til hæstv. ráðh. á eftir.) Ef hæstv. fjmrh. kemur ekki hér til að mæla fyrir þessu frv., sem er ágreiningsmál, óska ég eftir að umr. sé frestað.