11.12.1981
Efri deild: 21. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1439 í B-deild Alþingistíðinda. (1210)

96. mál, tímabundið vörugjald

Ólafur Ragnar Grímsson:

Herra forseti. Ég skal ekki stuðla að miklum umr. um þetta mál. Ég vildi aðeins láta það koma fram hér í þingsölum, að fjarvera hæstv. fjmrh. stafar af því, að hann — (Gripið fram í: Það er komið fram.) Nú, það er mjög gott að það er komið fram, að fjmrh. hafi í nótt lokið við samningagerð við opinbera starfsmenn. Hann verður kominn hér til starfa í þinginu síðar í dag eða strax á morgun og þá getum við haldið áfram afgreiðslu þessa máls. Ég skal enn fremur heita hv. þm. Eyjólfi Konráð Jónssyni því, að hjá fjh.- og viðskn. sem fær þetta mál til meðferðar, verði tryggilega gengið frá því, að allar þær upplýsingar og annað, sem hann óskaði eftir, verði látið í té.