11.12.1981
Neðri deild: 22. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1443 í B-deild Alþingistíðinda. (1222)
110. mál, grunnskólar
Halldór Blöndal:
Herra forseti. Þetta frv. er nú flutt í þriðja sinn hér í deildinni. 1. flm., Ragnhildur Helgadóttir, hefur nú horfið af þingi svo það kemur í minn hluta að fylgja frv. úr hlaði, en ásamt okkur er hv. 10. þm. Reykv. flm. að þessu frv.
Efni frv. er í raun og veru mjög einfalt og vil ég í ræðu minni vitna til ræðu 1. flm. er hann flutti á síðasta Alþingi um þau efni, en þar sagði hann m. a., með leyfi hæstv. forseta:
„Aðalatriði þess er að tryggja rétt foreldra til þess að fylgjast betur með því starfi, sem fram fer í grunnskólunum, og eiga aðild að þeim ákvörðunum sem þar eru teknar og varða börn þeirra. M. ö. o.: þetta frv., ef samþykkt verður, á að stuðla að því, að foreldrar geti sinnt þeirri skyldu og ábyrgð sem á þeim hvílir í uppeldi barna þeirra.
Þessi ábyrgð hefur verið viðurkennd víða um heim með því að viðurkenna foreldrum til handa rétt til þess, að þær stofnanir, sem starfa við hlið og til hjálpar heimilum að uppeldi barna, taka mið af þeirri ábyrgð sem hvílir á foreldrum að þessu leyti. M. ö. o.: það hefur verið viðurkennt í t. d. mannréttindasáttmála Evrópuráðsins, að virða skuli rétt foreldra til að tryggja að uppeldi og fræðsla sé í samræmi við trúar- og lífsskoðanir þeirra. Þetta atriði þykir vera mjög sjálfsagt í öllum lýðræðisríkjum Evrópu, og þar sem við höfum verið aðilar að mannréttindasáttmála Evrópuráðsins um langt skeið þykir eðlilegt að sú skuldbinding, sem við tökumst á hendur með aðild að þeim sáttmála, sé staðfest í lögum landsins. Það er ekki einasta að það sé eðlilegt eða að það sé mitt álit að það sé eðlilegt, heldur er það beinlínis skylda sem löndin takast á hendur þegar þau gerast aðilar að slíkum yfirlýsingum. Það er þjóðréttarleg skuldbinding. Það er útbreiddur misskilningur að mannréttindasáttmálinn hafi lagagildi á Íslandi. Svo er ekki. En hitt er annað mál, að við erum skuldbundin til að sjá svo um að ákvæði laga séu í samræmi við innihald hans.
Það er ástæða til þess á þeim tímum sem hið opinbera kerfi þenst sífellt út að tryggja einstaklingunum þann rétt, sem sjálfsagður er, að hafa áhrif á þær ákvarðanir sem þar eru teknar, því að það eru einstaklingarnir sem byggja upp þetta kerfi og standa á bak við það. Þess vegna er í 1. gr. þessa frv. lagt til að í stefnumörkunargrein grunnskólalaganna verði bætt þessu atriði sem ég nefndi og tekur mið af mannréttindasáttmála Evrópuráðsins og er fólgið í því að virða rétt foreldra eða forráðamanna, svo að notað sé orðaval grunnskólalaganna, til að tryggja að menntun og fræðsla gangi ekki gegn trúar- og lífsskoðunum þeirra. Enn fremur er í þessari grein kveðið á um að í skólastarfinu skuli forðast einhliða áróður um slíkar skoðanir eða um álitaefni og ágreiningsmál í þjóðfétaginu. Þetta eru atriði sem ég get varla ímyndað mér annað en að samviskusamir uppfræðarar og kennarar hljóti að vera samþykkir. Auk þessa er þarna um atriði að ræða sem tryggir sjálfsögð mannréttindi foreldra og barna á þann veg að uppeldisaðilar, bæði heimilin og skólarnir, séu samstiga í uppeldismarkmiðum sínum. Það er alveg ljóst, að það atriði er til þess fallið að stuðla að andlegu öryggi barnanna sem námið stunda. Ég hygg raunar að þetta atriði sé svo sjálfsagt að það sé nánast af vangá að það sé ekki þegar skráð í grunnskólalögum.“
Ég hef endurtekið ummæli 1. flm. þegar hann gerði grein fyrir þessu máli á síðasta þingi. Um 2. gr. er það annars að segja, að hún felur í sér breytingu á 2. málsgr. 57. gr. grunnskólalaga, sem nú hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Óheimilt er að veita upplýsingar um vitnisburði nemenda öðrum en þeim sjálfum og forráðamönnum þeirra, nema nauðsyn beri til vegna flutnings nemenda milli skóla. Þó skal heimilt að veita öðrum þessar upplýsingar vegna fræðilegra rannsókna, enda sé krafist fullrar þagnarskyldu.“
Hér er lagt til að fyrra atriðið standi óbreytt, en um undanþágur sé tekið fram að skólastjóri veiti þær og að krafist skuli samþykkis forráðamanna nemenda. Byggist þetta á þeirri skoðun, að ástæðulaust of raunar rangt sé að nemendur séu hafðir til fræðirannsókna án vitundar og samþykkis forráðamanna þeirra, nema sérstaklega standi á. Er það nánar skýrt í nýrri viðbót við málsgr. Er þar ráðgert að menntmrn. geti veitt rannsóknaleyfi án samþykkis skólastjóra og forráðamanna ef tiltekin skilyrði eru uppfyllt. Ástæða sýnist vera til að um slík leyfi sé almenningi gert kunnugt of að glöggar reglur séu um ábyrgð þeirra sem fyrir rannsóknum standa og við þær starfa. Er orðum greinarinnar ætlað að ná þessum tilgangi.
Í 3. gr. er lagt til að ný grein bætist við grunnskólalög og fjallar fyrri málsgr. hennar um rannsóknir sem starfsmenn í menntmrn. og við grunnskólana hyggjast framkvæma. Þar er leitast við að setja sem gleggstar reglur, sem bæði geri mikilvægar rannsóknir framkvæmanlegar og séu í samræmi við hagsmuni nemenda og annarra, að ekki séu kannaðir hagir þeirra án brýnnar ásfæðu. Í 2. málsgr. er rætt um rannsóknir annarra aðila. Er lagt til að þeir þurfi að uppfylla strangari skilyrði en skólamenn. Varða skilyrðin bæði efni rannsókna og rannsókarmenn. Sérstök ástæða hefur þótt vera til að taka fram að rannsóknir á viðhorfum og einkalífi skuli ekki leyfa nema sérstaklega standi á. Hið sama er um rannsóknir á tilteknum atburðum sem nemendur hafa orðið vitni að. Fræðimenn, sem kunna að vilja gera slíkar kannanir, hafa sjaldnast til slíks miklar ástæður, og rannsóknirnar geta, einkum ef þær varða umtöluð atriði, haft óæskileg áhrif á unga nemendur.
Þegar þetta mál var til meðferðar í menntmn. Nd. Alþingis á síðasta þingi barst m. a. umsögn frá Guðmundi Magnússyni rektor Háskóla Íslands sem ég tel nauðsynlegt að vekja athygli á um leið og ég mæli fyrir þessu frv. Þar segir svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Með frv. er stefnt að því að hamla gegn áróðri og vernda friðhelgi einkalífs. Hvort tveggja er þarft og tímabært. Á báðum þessum málasviðum hafa á seinustu árum risið mál sem betur hefði mátt vanda til. Háskólanum er m. a. nauðsyn að geta fylgst með árangri nemenda á lægri skólastigum til þess að vita hvers konar efnivið hann færi til sín. Ákvæði frv. setja aðeins eðlilegar skorður við slíkum könnunum, en hindra ekki að þær séu gerðar ef þörf krefur.
Þá er ýmsum aðilum innan Háskólans nauðsyn að stunda rannsóknir er falla undir 2. og 3. gr. frv. Hér virðast heldur ekki óeðlilegar skorður settar sem hamli gegn því að rannsóknir geti farið fram. Til álita kemur að fela ákveðnum aðila vörslu gagna að rannsókn lokinni. Aðrir gætu viljað nota gögnin en upphaflegi rannsóknaraðilinn. Víða erlendis er háskólum falið að varðveita upplýsingar af þessu tagi á númerum nafnlaust um tiltekinn tíma.
Umsögn þessi er skoðun undirritaðs og hefur ekki verið borin undir háskólaráð.“
Enn fremur barst menntmn. umsögn frá fræðslustjóra Austurlandsumdæmis, undirskrifuð af Guðmundi Magnússyni, en þar segir m. a., með leyfi hæstv. forseta:
„Ég er sammála megininntaki frv. og tel að breytingarnar ættu að ná fram að ganga í samræmi við endurskoðun laganna, sem nú stendur yfir. Til staðfestingar skoðunum mínum á nefndu frv. leyfi ég mér að senda yður ljósrit af hluta blaðagreinar er ég ritaði í eitt dagblaðanna í janúar 1977. Ég er enn sama sinnis.“
Í þeirri blaðagrein, sem fræðslustjórinn á Austurlandi sendi menntmn., segir m. a., en hún ber yfirskriftina: Áróður, uppeldi og fjölmiðlar, með leyfi hæstv. forseta:
„Nokkrar umræður hafa farið fram að undanförnu í blöðum um rétt eða réttleysi almennra skóla — eða kennara þeirra — til að ákveða sjálfir kennslubækur í samfélagsfræði (þjóðfélagsfræði). Hófust umræður þessar að gefnu tilefni sem kunnugt er.
Enda þótt hér sé vonandi um undantekningu frá meginreglu að ræða er samt hreyft hér við máli sem gæti komið skólunum í mikinn vanda, ef illa tækist til.
Áróður er eitt, uppeldi annað. Að vísu getur þetta tvennt að nokkru farið saman við fræðslu þeirra hluta sem enginn ágreiningur er um (áróður fyrir hreinlæti, gegn eiturlyfjum o. s. frv.).
En megininntak góðs uppeldis hlýtur að vera efling persónuþroska og glæðing heilbrigðrar dómgreindar nemenda andstætt óvönduðum áróðri sem leggur aðaláherslu á þrælslund og múgsefjun.
Áreiðanlega vilja langflestir Íslendingar viðhalda því lýðræði, sem þeir nú búa við, og efla það eftir föngum. Ein af máttarstoðum þess er hlutlaus fræðsla í skólum og þjóðlegt uppeldi byggt á víðsýni og sannleiksást. Allar tilraunir til flokkspólitísks áróðurs í kennslustundum eru því tilræði við það lýðræði sem er undirstaða frelsis og mannréttinda.
Gagnrýni á slíkt er því ekki aðeins æskileg — heldur nauðsynleg — og tek ég heils hugar undir hana. Hitt er svo jafnsjálfsagt, að í framhaldsskólum — sé áhugi fyrir því — fari fram kynning á hinum ýmsu stjórnmálastefnum á jafnréttisgrundvelli og umræður um þær.
Allt uppeldi á að miða að alhliða þroska barnsins. Það á að fá tækifæri til að svala eðlislægri forvitni sinni, til að spyrja, skoða, skilgreina og öðlast með því sem víðtækasta reynslu. Með þeim hætti er best tryggt að hver einstaklingur fái notið sín í framtíðinni og verði fær um að taka sjálfstæðar ákvarðanir byggðar á eigin dómgreind.
Má ég heldur biðja um einstaklinga, sem hafa þor og vilja til að gagnrýna sjálfan sig og aðra og skipta jafnvel oft um skoðun, heldur en heilaþvegnar brúður — eins konar já — menn — sem hafa orðið flokkspólitískum áróðri að bráð í uppeldi sínu.
Það kynni að vera styttra en okkur grunar yfir í ófrelsi og skoðanakúgun og þar með endalok lýðræðisins ef flokksáróður fær að leika lausum hala í skólakerfinu.“
Svo mörg voru þau orð. Skal ég ekki að þessu sinni tilfæra dæmi um það eða gera að sérstöku umtalsefni þá tilhneigingu, sem í ríkum mæli hefur orðið vart við, að nota skólana, bæði menntaskóla, grunnskóla og jafnvel háskóla, sem flokkspólitískan vettvang.
Það sýnir raunar hvað við höfum verið sofandi á verðinum í þessum efnum að ekki eru mörg ár síðan Þjóðviljinn, meðan hann var undir stjórn núv. hæstv. félmrh., birti um það opinskáar yfirlýsingar með hvaða hætti Alþb. hygðist notfæra sér sína stuðningsmenn til að gera menningarlega og pólitíska innrás í skólakerfið. Má vel vera að einhvern tíma sýnist ástæða til að rifja þessi ummæli upp. Sams konar ályktanir frá innviðum Alþb. virtust á þeim tíma einnig í Norðurlandi, sem nú hefur að vísu lagst undir græna torfu, og á kannske ekki að vitna til þess þess vegna, heldur leyfa því blaði að hvíla í friði.
En okkur er að sjálfsögðu mikið í mun, frjálshyggjumönnum, að börnin og unglingarnir fái sem lengst og mest að vera í friði. Að vísu vitum við það, og það er skýringin á því, hvað við höfum í raun látið þessi mál afskiptalaus, að íslensk æska er heilbrigð, hún hefur óbrenglaða dómgreind. Upplýsingastreymi kemur víðs vegar að og þess vegna hefur sá hömlulausi áróður, sem víða hefur viðgengist, minni áhrif en ella mundi.
Auðvitað er það sjálfsögð sanngirniskrafa, sem námsstjórinn á Austurlandi kemur inn á, að Alþingi og yfirvöld skólamála séu vakandi yfir því, að námsefni, bæði kennslugögn og umfjöllun kennara, sé sæmandi því glæsilega húsnæði og þeim mikla tilkostnaði sem við verjum til menntamála. Það eru hér á landi öll ytri skilyrði til að veita unglingum nóga fræðslu, fyrsta flokks fræðslu. Ég vænti þess líka, að þessi háa þingdeild taki undir það, að Alþingi setji fyrir þann leka einnig, að með óvandaðri rannsóknarstarfsemi verði farið inn í skólana og gerðar kannanir, sem eru annars eða þriðja flokks og gefa rangar eða villandi upplýsingar, ásamt því sem þar er verið að forvitnast um einkalíf fólks, sem er friðhelgt og viðkvæmt mál fyrir börn og unglinga á fermingaraldri eða upp úr því.
Ég tek skýrt fram til að forðast misskilning að í ummælum mínum felst ekki gagnrýni á yfirstjórn skólamála síðan núv. hæstv. menntmrh. settist í það ráðuneyti. Það er síður en svo að ég hafi ástæðu til að ætla að ástandið í þessum efnum hafi versnað síðan hann settist í það sæti. Ég vil að það sé alveg skýrt, að með þessum ummælum mínum er ég ekki á einn eða neinn hátt að gagnrýna hans embættisfærslu.