14.12.1981
Sameinað þing: 35. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1455 í B-deild Alþingistíðinda. (1244)

154. mál, stuðningur við pólsku þjóðina

Ólafur Ragnar Grímsson:

Herra forseti. Á undanförnum mánuðum hefur alþýða Póllands barist fyrir auknum mannréttindum og lýðræði í landi sínu. Eins og öllum hér er kunnugt hefur sú barátta verið hneppt í helfjötra með þeirri valdatöku sem framkvæmd var í Póllandi fyrir tveimur nóttum.

Það hefur komið fram hér í ályktun ríkisstj. og till. frá utanrmn., að Alþingi Íslendinga og stjórnvöld standa einhuga á bak við stuðningsyfirlýsingar við pólsku þjóðina og samúðaryfirlýsingar vegna þeirra atburða sem þar hafa orðið. Þingflokkur Alþb. kom saman til fundar í gærkvöld. Á þeim fundi gerði þingflokkurinn svohljóðandi samþykki:

„Þingflokkur Alþb. fordæmir harðlega tilraunir pólskra stjórnvalda til þess að stöðva mannréttindabaráttu pólskrar alþýðu. Þingflokkurinn tekur undir fyrri ályktanir flokksráðs og miðstjórnar Alþb. þar sem lýst var stuðningi við baráttu Einingar fyrir lýðræði, mannréttindum og jafnrétti. Þingflokkurinn skorar á landsmenn að fjölmenna til fundar Alþýðusambandsins í Reykjavík á morgun, mánudag.“

Herra forseti. Hér hafa þegar verið flutt af hæstv. forsrh., hæstv. utanrrh. og formanni utanrmn. afdráttarlausar lýsingar á því sem hlýtur að búa í huga Íslendinga þegar við fréttum um þá atburði sem orðið hafa í Póllandi. Seinna í dag efna verkalýðssamtökin á Íslandi til útifundar á Lækjartorgi, þar sem fulltrúi Einingar, verkalýðssamtakanna í Póllandi, tekur til máls. Ég held að það væri verðug aðgerð og stuðningsyfirlýsing, sem væri í senn táknræn og afgerandi, að Alþingi Íslendinga gerði hlé á fundum sínum, meðan fundur Alþýðusambandsins á Lækjartorgi fer fram og allir hv. þm. sameinuðust um að sækja fund Alþýðusambandsins á Lækjartorgi og sýna með návist sinni þar, sérstaklega vegna ræðu fulltrúa Einingar sem þar verður flutt, stuðning sinn í verki við málstað verkalýðssamtakanna í Póllandi.