14.12.1981
Sameinað þing: 35. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1456 í B-deild Alþingistíðinda. (1246)

1. mál, fjárlög 1982

Ólafur G. Einarsson:

Herra forseti. Þess er óskað að veitt verði afbrigði til þess að 2. umr. um fjárlög geti farið fram. Ég vek athygli á því, að ekki hefur fyrr verið farið fram á slíkt við Alþingi, að veitt verði afbrigði til þess að 2. umr. um fjárlög geti farið fram.

Þegar þm. komu í salinn fyrir tæpum klukkutíma lágu fyrst á borðum brtt. sem lagðar eru fram við 2. umr. fjárlaga frá fjvn. og reyndar fleiri. Það hefur því enginn tími gefist fyrir þm. til að athuga þessar brtt. Okkur þykir þess vegna til of mikils mælst að þessi umr. fari fram hér í dag. Að sönnu hafði verið rætt við formenn þingflokka fyrir helgina eða í síðustu viku um að 2. umr. fjárlaga gæti farið fram í dag, en þá hafði verið gert ráð fyrir að þingskjölum yrði útbýtt á sérstökum fundi s. l. laugardag. Það varð ekki og er ekki þar við stjórnarandstöðuna að sakast.

Ég efast ekkert um að stuðningsmenn ríkisstj., stjórnarliðar á þingi, þekki þessar till. sem við stjórnarandstæðingar sjáum fyrst í dag, en þar er ólíku saman að jafna. Þess vegna hefur þingflokkur sjálfstæðismanna ákveðið að styðja ekki fram komna beiðni um að 2. umr. fari fram í dag, heldur mun hann sitja hjá við atkvgr. þannig að það verði alfarið á ábyrgð stjórnarliða eða þeirra, sem vilja greiða þessu atkvæði, að umr. fari fram.