21.10.1981
Efri deild: 5. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 146 í B-deild Alþingistíðinda. (125)

28. mál, almannatryggingar

Helgi Seljan:

Herra forseti. Hér er á ferðinni hið þarfasta mál og mjög brýnt að það sé tekið til rækilegrar athugunar. Sannleikurinn er sá, að okkur blöskrar stundum, hve miklir fjármunir fara til heilbrigðis- og tryggingamála, þegar verið er að gera samanburð á einstökum þáttum fjárlaga. Samt er það nú svo, að sumir þættirnir í tryggingamálum okkar mættu mun betur fara, enda er staðreyndin sú, að öll þau mál eru nú í allsherjar endurskoðun. Þrátt fyrir þá endurskoðun, sem nær til alls lagabálksins sem er mjög viðamikill, þyrfti n., sem hér að vinnur, að taka sérstaklega út úr brýnustu og réttlátustu breytingarnar, og sannarlega er hér inn á eina slíka komið. Ég vil um leið lýsa yfir því, að ég held að full þörf væri að kanna ýmsa þætti í tryggingamálum okkar, þar sem um aðhald og sparnað gæti einnig verið að ræða, þótt það snerti eflaust miklu frekar heilsugæslu- og sjúkrahúsaþáttinn. En ekki meira um það.

Varðandi ferðir fólks utan af landi á fund sérfræðinga og greiðslur almannatrygginga í tengslum við það var hér á ferð frv. frá hv. þm. Stefáni Jónssyni nokkur þing áður en í framkvæmd komst sæmilega réttlát skipan þeirra mála. Ég ætla að vona að það mál, sem hér er á ferðinni, biði ekki jafnlengi góðrar leiðréttingar.

Við hv. l. flm. höfum eflaust upplýsingar að hluta til frá sama aðila, eða ég reikna með því, þ. e. frá Guðmundi Sigurðssyni héraðslækni á Egilsstöðum, sem hefur alveg sérstaklega hugleitt þessi mál, enda brennur þetta mál kannske á honum meira en óðrum sem héraðslækni í Austurlandshéraði. Hann hefur oft rætt þetta mál við mig. Ég hef kannað það og komið því á framfæri og jafnan fengið þau svör, að það félli inn í heildarendurskoðun hvernig með skyldi fara.

Aðstæður eystra eru þannig, að óvíða annars staðar kallar ástandið eins knýjandi á lagfæringu. Þetta gildir bæði um hina löngu flugleið til Reykjavíkur, þegar um sjúkraflug er að ræða, og eins það hve okkar fjórðungssjúkrahús er í raun út úr í Neskaupstað.

Ég sá á dögunum greiðslu sjúklings fyrir ferð frá einum suðurfjarða Austfjarða til Neskaupstaðar með sjúkrabifreið og ég undraðist upphæðina. Ég get ekki neitað því, að það hvarflaði að mér hvort þeir, sem sjúkrabifreiðina rækju, settu upp svona svimháan reikning til að sjá til þess að sjúkrasamlagið slyppi ekki „billega“ út úr þessu, vegna þess að það greiðir að 3/4. Þegar aðstandendur umrædds sjúklings kvörtuðu undan greiðslu svo hárrar upphæðar, sem var þó ekki nema 1/4, en var hvorki meira né minna en 1 000 kr., þá var þegar slegið af um það bil helmingi þeirrar upphæðar. Vakti það líka athygli mína. Nú finnst mér að hér eigi að gilda ákveðinn taxti eftir vegalengd, tíma og öðru. Ég hélt að þetta væru alveg ákveðnar reglur. Vafalaust getur einhver mér fróðari hér inni upplýst það. En a. m. k. er full ástæða til þess að gefa því enn frekari gaum, hvort hér sé um nægilega samræmingu að ræða, bæði milli þeirra ýmsu aðila, sem fljúga sjúkraflug, og eins þeirra, sem starfrækja sjúkrabifreiðarnar.

Ég ætla ekki að rekja þetta mál neitt frekar, það var gert mjög rækilega í máli 1. flm. Hann rakti um það ógnvekjandi dæmi, hve þessi kostnaður gæti orðið tilfinnanlegur, og ég get bætt því við, að menn hafa sannarlega hikað við að taka sjúkrabifreið til slíkra bráðnauðsynlegra nota eða að fara í sjúkraflug, t. d. austan af landi, oft með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.

Það er sem sagt allt rétt sem í grg. segir um það, hve ógnvekjandi kostnaður einstaklingsins getur verið þrátt fyrir — og ég legg áherslu á það — þrátt fyrir þann hluta sem tryggingarnar greiða, þrátt fyrir þá 14 sem tryggingarnar greiða í þessu efni. Um þetta þarf í raun og veru ekki fleiri orð.

Þetta mál kemur til þeirrar nefndar sem ég á sæti í, og ég mun beita mér fyrir því þar, að því er ég get, að það fái rækilega athugun og þá alveg sérstaklega hvað það varðar, hvar endurskoðunarnefnd tryggingalaganna er á vegi stödd varðandi þennan þátt, og hvort þar er skjótra tillagna að vænta til úrbóta, nú þegar á þessu þingi. Annars verður að taka á þessu máli af þingnefndum og Alþingi með því jákvæða hugarfari sem ég veit að þetta frv, mætir.