14.12.1981
Sameinað þing: 35. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1457 í B-deild Alþingistíðinda. (1250)
1. mál, fjárlög 1982
Forseti (Jón Helgason):
Ég vil geta þess vegna umræðu um fund á laugardaginn, eins og hv. 4. þm. Reykn. hefur gert grein fyrir, að gengið var út frá fundi. Hins vegar tjáðu okkur svo starfsmenn þingsins að brtt. fjvn., þá aðrar en þær sem hv. 4. þm. Reykn. gat um, yrðu ekki tilbúnar til útbýtingar á laugardag og því væri ekki um það að ræða að útbýta þeim á fundi þá.