14.12.1981
Sameinað þing: 35. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1458 í B-deild Alþingistíðinda. (1253)
1. mál, fjárlög 1982
Forsrh. (Gunnar Thoroddsen):
Herra forseti. Það er vegna ummæla í umr. áðan um að af hálfu ríkisstj. hefði ekki verið haft samband við stjórnarandstöðuna um hvaða þingmál það væru, sem ríkisstj. legði áherslu á að afgreidd yrðu fyrir jól, sem ég tel ástæðu til að segja örfá orð.
Það eru í rauninni fyrst og fremst tvö frv. sem ríkisstj. leggur áherslu á að verði afgreidd fyrir jól. Það er frv. til fjárlaga fyrir næsta ár. Ég hélt sannast sagna að ekki þyrfti að hafa sérstaka fundi með stjórnarandstöðunni til að ræða um það mál. Í síðustu tvo áratugi hefur sú regla gilt og verið framfylgt með samkomulagi allra að fjárlög yrðu afgreidd fyrir jól, en áður, þ. e. fyrir 1960, hafði verið nokkuð algengt að það var dregið fram yfir áramót, jafnvel fram á vor, að afgreiða fjárlög. Þetta er hins vegar orðin svo föst hefð nú að mér datt ekki í hug að þyrfti að ræða um það sérstaklega við stjórnarandstöðu, enda mun. þess ekki þurfa. — Hitt frv. er frv. til lánsfjárlaga fyrir næsta ár. Ríkisstj. telur mjög æskilegt að takist að afgreiða það frv. fyrir jól. Um það þurfti ekki sérstaklega að ræða við stjórnarandstöðuna af þeirri einföldu ástæðu að fulltrúar hennar í sameinuðum fjh.- og viðskn. beggja deilda höfðu að fyrra bragði tekið fram að þeir óskuðu eftir því, að lánsfjárlögin yrðu afgreidd fyrir jól, teldu það beinlínis skyldu og vildu gera allt sem í þeirra valdi stæði til að greiða fyrir því.
Þetta eru þau tvö frv. sem ríkisstj. leggur áherslu á að séu afgreidd fyrir jól og hafa ekki gefið tilefni til sérstakra funda með stjórnarandstöðunni. Að öðru leyti er um að ræða kannske tvö, þrjú mál sem ganga sinn eðlilega gang. T. d. er það frv. um staðfestingu á brbl. frá því í haust um gengi íslenskrar krónu sem er búið að ganga í gegnum hv. Ed. og er nú komið frá fjh.- og viðskn. Nd. Hefur, held ég, ekki verið neitt ágreiningsmál að það yrði afgreitt. Það gengur sinn eðlilega gang. Sama er um frv. um tímabundið vörugjald. Það er 96. mál. Það er búið að ganga í gegnum aðra deildina og mun vera komið til nefndar í seinni deild.
Það er því ekkert sem hefur gefið sérstaki tilefni til að leita samninga við stjórnarandstöðuna um framgang mála. Ég endurtek: Það eru þessi tvö stórmál sem við leggjum áherslu á. Ég vona að full samstaða sé í þinginu um það.