14.12.1981
Sameinað þing: 35. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1462 í B-deild Alþingistíðinda. (1258)
1. mál, fjárlög 1982
Forseti (Jón Helgason):
Eins og ég skýrði frá áðan er ætlunin að fresta umr. Ég hélt að mögulegt yrði að ljúka framsögum fyrir nál, fyrst en síðan yrði umr. frestað til kl. 8.30 í kvöld og þá fram haldið. Vegna eindreginna óska mun umr. ekki verða slitið í nótt, en lokið á morgun.