14.12.1981
Sameinað þing: 35. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1463 í B-deild Alþingistíðinda. (1260)
1. mál, fjárlög 1982
Þorv. Garðar Kristjánsson:
Herra forseti. Það er búið að ræða allmikið um afgreiðslu þingmála og ég sé ekki ástæðu til að bæta þar neinu við á þessu stigi málsins. Ég vil víkja að fundahaldinu.
Það hefur komið hér fram, að hæstv. forseti hefur ákveðið að 2. umr. um fjárlagafrv. verði ekki lokið í dag eða í nótt, heldur fram haldið á morgun. Ég fagna því. En við þm. eigum nokkuð vantalað við hæstv. forseta samt varðandi þinghaldið, varðandi þennan þingfund. Það kom fram fyrr á fundinum ósk um að gert yrði fundarhlé meðan fundur Alþýðusambands Íslands verður haldið á Lækjartorgi í dag. Það var spurt um það hér af öðrum þm. hvað hæstv. forseti ætlaði að gera. Það hefur ekkert svar komið. Mér virðist á tilsvörum forseta og fyrirætlunum sem það sé nokkur hætta á að það verði ekki gefið fundarhlé meðan á fundi Alþýðusambands Íslands stendur. (Forseti: Ég vildi aðeins segja til að leiðrétta þennan misskilning: Ég sagði áðan að ég vænti þess — eða var áður búinn að segja það — að frsm. hefðu lokið máli sínu fyrir þann tíma sem þessi fundur yrði haldinn.) Já, ef það er í valdi hæstv. forseta að framsöguræðunum verði lokið fyrir kl. 5.30 getur þetta orðið. En ég vænti þess, að ef framsöguræðunum verði ekki lokið verði gefið þrátt fyrir það fundarhlé.
Við sjálfstæðismenn töldum svo sjálfsagt að það yrði gefið fundarhlé og undirstrikað mikilvægi þeirrar ályktunar, sem Alþingi samþykkti fyrr í dag til stuðnings við pólsku þjóðina, að við töldum að ekki þyrfti að nefna þetta. En hv. 11. þm. Reykv. bar fram formlega ósk um þetta og ég vænti þess, að málið verði ekki látið gjalda þess af hálfu hæstv. forseta þó að hv. 11. þm. Reykv. hafi borið þá ósk fram.