15.12.1981
Sameinað þing: 36. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1540 í B-deild Alþingistíðinda. (1277)
1. mál, fjárlög 1982
Frh. 2. umr. Matthías Bjarnason:
Herra forseti. Ég hef leyft mér að flytja hér brtt. við 4. gr., 19. lið, um hækkun á stofnkostnaði til tveggja héraðsskóla, annars vegar til Héraðsskólans að Núpi í Dýrafirði, að fyrir 300 þús. komi 550 þús., og í öðru lagi til Héraðsskólans í Reykjanesi, fyrir 150 þús. komi 400 þús. Meðflm. þessarar till. er hv. 4. þm. Vestf. og hv. 3. þm. Vestf.
Okkur flm. þessarar brtt. er ljóst að oft er úr vöndu að ráða hjá fjvn. um skiptingu til verkefna í hinum ýmsu málaflokkum. Við því er ekkert að segja þó að skorið sé verulega niður og gert nokkurt hlé á framkvæmdum á hinum einstöku stöðum. En hér skýtur nokkuð skökku við því að framlög til þessara tveggja héraðsskóla hafa árum saman verið skorin niður þannig að litlar framkvæmdir hafa verið þar um alllangt árabil. Héraðsskólinn að Núpi er 75 ára um þessar mundir og þar hefur lítið verið gert á undanförnum árum. Í Reykjanesi var bætt við skólahúsi en aðstaða til íþróttastarfsemi er engin. Viðbrögð manna eru þau, að það sé mikil óvissa um framtíð héraðsskóla. Kerfið hefur haldið þessum skólum í svelti og ekki lagt fram neinar ákveðnar tillögur. Nú nýverið áttum við þm. Vestfirðinga fund með fulltrúum ráðuneytis, héraðsskólanna, skólameistara Menntaskólans á Ísafirði, fræðslustjóra Vestfjarða og framkvæmdastjóra Fjórðungssambandsins. Þar var rætt um stöðu þessara skóla og þar kom mönnum almennt saman um að vafalaust mundi annar þessara skóla gegna því hlutverki sem hann gegnir nú og jafnvel báðir, en þörf væri fyrir þessi mannvirki á þessum stöðum í þágu menntamála. Skal ég ekki eyða tíma þingsins í að ræða þetta hér frekar.
Með þessari till. viljum við minna á að á þessum tveimur stöðum, þessum tveimur menningarmiðstöðvum, annars vegar á Núpi í Vestur-Ísafjarðarsýslu er nánast mjög fátækleg aðstaða til íþróttaiðkana og í Reykjanesi má segja að sé nánast engin aðstaða. Það eru liðin sennilega um 12 ár síðan farið var að tala um endurbyggingu sundlaugar þar. Á þessum stöðum báðum verður áfram grunnskóli sem hefur verið byggður upp á síðustu árum, svo að það er sjáanlegt á öllu að þessir staðir verða áfram miðstöð mennta- og menningarmála fyrir þessar sýslur. Sömuleiðis er vaxandi aðsókn kaupstaðarfólks eða þéttbýlisfólks að njóta orlofs á stöðum sem þessum. Því er nauðsynlegt að halda þeirri uppbyggingu þarna áfram sem var hafin fyrir allmörgum árum. Hér er ekki gerð tillaga um háar upphæðir, heldur fyrst og fremst til þess að koma af stað undirbúningi undir þær framkvæmdir sem taldar eru mest aðkallandi, svo að hægt verði að hefja þær á þessu ári, ef till. verður samþykkt, sem ég vona að hv. alþm. sýni þann skilning að verða við, þar sem hér er borin fram hófleg beiðni eftir margra ára hlé í uppbyggingu þessara skóla.