15.12.1981
Sameinað þing: 36. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1541 í B-deild Alþingistíðinda. (1279)
1. mál, fjárlög 1982
Jóhanna Sigurðardóttir:
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir brtt. sem ég flyt ásamt hv. þm. Karli Steinari Guðnasyni þess efnis, að á fjárlögum verði veittar 300 þús. kr. til að standa undir stofnkostnaði vegna kannana á launakjörum kvenna og karla. Verði þessi liður færður undir félmrn., undir viðfangsefnið Vinnumál. Í sjálfu sér þarf ekki að rökstyðja þessa till. ítarlega fyrir hv. alþm. Um það hefur verið margoft fjallað hér á hv. Alþingi, hve brýn nauðsyn væri á að slíkar kannanir færu fram. Nægir hér að vitna til nál. félmn. Nd. frá 19. maí 1981 er fjallað var um breytingu á lögum um jafnrétti kvenna og karla. Vil ég fá að vitna í það nál., með leyfi forseta. Þar segir.
„Félmn. hefur haft til meðferðar frv. um breyting á lögum um jafnrétti kvenna og karla, nr. 78/1976. Með tilliti til aths., sem fram komu í umsögnum um málið, telur nefndin ekki tímabært á þessu stigi að taka afstöðu til annarra ákvæða frv. en 4. gr. sem felur í sér að framlög skuli veitt til að standa fyrir könnunum á launakjörum kvenna og karla.
Nefndin telur brýnt að þessar kannanir verði gerðar til þess að Jafnréttisráði sé unnt að fylgjast með að virt sé 2. gr. jafnréttislaganna sem m. a. kveður á um að greidd séu jöfn laun fyrir jafnverðmæt og sambærileg störf.
Samkv. 10. gr. jafnréttislaganna frá 1976 kemur fram að eitt af verkefnum Jafnréttisráðs sé að taka til rannsóknar af sjálfsdáðum hver brögð kunni að vera að misrétti í jafnréttismálum.
Í þessu ákvæði felst að Jafnréttisráð, sem skipað er samkv. 9. gr. laga nr. 78/1976, rannsaki þessi mál. Framkvæmdaaðili þessarar könnunar gæti þó verið Kjararannsóknarnefnd sé það talið hagkvæmara. Leggja verður þó áherslu á að samráð verði haft við Jafnréttisráð um alla framkvæmd og undirbúning á þessum könnunum.
Nefndin hefur því orðið sammála um að leggja til að frv. verði afgreitt með eftirfarandi rökstuddri dagskrá: Í trausti þess, að ríkisstj. beiti sér fyrir því nú þegar, að kannanir verði gerðar á raunverulegum launakjörum kvenna og karla svo og að kannanir þessar verði gerðar reglulega og Kjararannsóknarnefnd, Jafnréttisráði eða öðrum aðila verði gert kleift með fjárframlögum eða á annan hátt að standa fyrir þeim, tekur deildin fyrir næsta mál á dagskrá.“
Herra forseti. Með þessari rökstuddu dagskrá liggur því þegar fyrir viljayfirlýsing Alþingis um að slíkar kannanir fari fram og að til þeirra verði veitt fjárframlag. Einnig má benda á samþykkt Alþingis vorið 1980 á þáltill. um kannanir á tekjuskiptingu og launakjörum sem fól m. a. í sér að kannanir færu fram á raunverulegum launakjörum kvenna og karla til að fá fram, hve mikil brögð væru að misrétti í launamálum milli kvenna og karla, og leita leiða til úrbóta. Þegar liggur því fyrir ótvíræð viljayfirlýsing Alþingis í þessu máli.
Þessi brtt. er flutt til þess að hafinn verði undirbúningur að þessum könnunum, en lítið virðist hafa verið gert frá því að þáltill. um kannanir á tekjuskiptingu og launakjörum var samþykkt eða sú rökstudda dagskrá sem ég greindi frá.
Kjararannsóknarnefnd hefur upplýst í bréfi til félmrn. að ef nefndinni ætti að vera fært að vinna kannanir og upplýsingar um tekjuskiptingu og launakjör, þá væri óhjákvæmilegt að sá þáttur starfseminnar, sem umrædd þáltill. kvað á um, yrði að mestu fjármagnaður úr ríkissjóði. Framkvæmd á könnunum yrði því undir því komin hvaða fjárhagslega aðstöðu Kjararannsóknarnefnd fengi til þess að auka starfskrafta nefndarinnar og leggja í þann kostnað sem af tölvuvinnslu leiddi.
Á Alþingi s. l. vor upplýsti hæstv. félmrh. að ein ástæða þess, að kannanir þessar væru ekki komnar af stað, væri að ekki hefði verið gert ráð fyrir fjármagni til þeirra á síðustu fjárlögum. Ekki verður heldur séð að ráð hafi verið fyrir þeim gert í fjárlögum nú fyrir árið 1982. Þessi till. er flutt til að bæta úr því og vænti ég fastlega liðsinnis hæstv. félmrh. í þessu máli. Upphæðin er ekki há, 300 þús. kr., en þetta verður að teljast lágmarksfjárveiting til að hægt sé að hrinda af stað nauðsynlegum undirbúningi við kannanirnar. Er þá um að ræða kostnað við kerfishönnun og laun eins starfsmanns sem sæi um ýmsan undirbúning að þessu verkefni. Þó æskilegt væri að meira fjármagn fengist til verkefnisins en þessi brtt. gerir ráð fyrir, þá er brtt. mjög í hóf stillt ef verða mætti til þess að þingheimur gæti sameinast um stuðning við hana til að hrinda af stað nauðsynlegum undirbúningi við þær kannanir sem Alþingi hefur margoft lýst yfir vilja sínum til að láta framkvæma.