15.12.1981
Sameinað þing: 36. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1551 í B-deild Alþingistíðinda. (1285)

1. mál, fjárlög 1982

Sighvatur Björgvinsson:

Herra forseti. Ég átti satt að segja ekki von á því, að sá væri tilgangur ríkisstj. að fella niður verðjöfnunargjald af raforku. Ég vakti aðeins athygli á þessu máli til að sýna þingheimi og öðrum fram á hvernig að stjórn þinghaldsins er staðið af hæstv. ríkisstj. þessa síðustu daga. Það er ekki lengra síðan en í gær að hæstv. forsrh. skýrði frá því hér úr ræðustól í Sþ., að það væri alveg þarflaust að ræða nokkuð við þingflokkana um framhald þingmála því ekki stæði til að afgreiða nema tvö mál fyrir jól, og nefndi hann þá sérstaklega fjárlagafrv. og frv. til lánsfjárlaga. Auk þessara tveggja mála nefndi hæstv. forsrh. framlengingu á vörugjaldsheimtunni og staðfestingu brbl. um ráðstöfun vegna breytingar á gengi íslenskrar krónu. Ég gerði ekki annað en leyfa mér að taka mark á því, að þegar hæstv. forsrh. segði: fjögur mál, þá ætti hann við fjögur mál og ætti þá ekki við einhver önnur mál sem ekki væru með í hans upptalningu. En auðvitað var mér það ljóst strax og ég hlustaði á hæstv. forsrh. í gær, að þessi upptalning hans og frásögn var síður en svo tæmandi.

Ég vil aðeins vekja athygli á því, hvernig að þinghaldinu er staðið af hálfu hæstv. ríkisstj., að þær upplýsingar, sem hæstv. forsrh. gaf Alþingi í gær um óskir ríkisstj. um afgreiðslu mála, standast ekki daglangt.