15.12.1981
Sameinað þing: 36. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1551 í B-deild Alþingistíðinda. (1286)
1. mál, fjárlög 1982
Frsm. 2. minni hl. (Karvel Pálmason):
Herra forseti. Aðeins örfá orð hér í lokin og þá fyrst og fremst út af því sem hæstv. fjmrh. sagði í sinni síðustu ræðu. Hann taldi að það væri misskilningur hjá mér að nefna það í nál., að liðurinn Vegna launa- og verðlagsmála félli niður, því að ekkert slíkt væri að finna í frv., og þá líklega enn frekari misskilningur að bera hér fram formlega till. um að þessi liður félli niður.
Í frv. hæstv. fjmrh. undir fyrirsögninni Fjármálaráðuneyti, sem er 09, er undirbúinn 989 sem ber yfirskriftina „Vegna launa- og verðlagsmála.“ Það er rétt að lesa þennan lið, þetta er stutt en gæti rifjað upp fyrir hæstv. fjmrh. hvað hér er um að ræða og hversu mikill misskilningur hér er á ferðinni. Þar segir, með leyfi forseta:
„Til þess að mæta launabreytingum á árinu 1982 í samræmi við frv.-forsendur eru nú veittar 270 millj. kr. á þessum lið. Sambærileg fjárhæð í fjárlögum 1981 var 259.7 millj. Í fjárlögum 1981 voru veittar 18 millj. kr. til þess að mæta óvissuþáttum. Að þessu sinni eru áætlaðar undir þessum lið 140 millj. kr. til að mæta óvissum útgjöldum í efnahags- og kjaramálum.“
Hvað er þetta annað en hér hefur verið flutt till. um og nefnt í nál.? Ég átti síst von á því, að hæstv. fjmrh, færi að koma hér upp til þess að bera brigður á það, að rétt væri með farið og upp sett í hans eigin frv., enda liggur þetta ljóst fyrir. Hér er liður ætlaður til þessara hluta og það er ástæðulaust að vera neitt að breiða yfir það, nema þá því aðeins að hæstv. fjmrh. eða ríkisstj. í heild ætli sér að nota þessa fjármuni til einhvers alls annars í ríkiskerfinu. (Fjmrh.: Það heitir ekki „Til efnahagsaðgerða“.) Ég hef ekki nefnt það á nafn, hvorki í nál. né í brtt., vegna efnahagsaðgerða. Vill ekki hæstv. ráðh. lesa þetta betur? (Fjmrh.: Liður til ráðstafana vegna efnahagsaðgerða.) Þetta er fskj. með brtt. í nál. Í nál. og í brtt. sjálfri í liðnum stendur: „Vegna launa- og verðlagsmála.“ Þetta getur hæstv. fjmrh. lesið ef hann vill. Það er ástæðulaust að vera að tíunda það frekar hér.
Aðeins í lokin af því að hér hefur launamálin borið á góma og vegna þess sem síðasti ræðumaður sagði, hv. þm. Halldór Blöndal. Ég held að því fari víðs fjarri að launafólk hafi sætt sig við 3.25%. Ég tala nú ekki um kjarabætur. Það er ekki um neinar kjarabætur að ræða. Hæstv. ríkisstj. var búin að taka þetta fyrir fram og hefur tekið enn frekar og meira eftir að þessir samningar voru gerðir. Ég hygg að það sé einsdæmi í sögu verkalýðshreyfingarinnar að samkomulag, sem gert hefur verið af hálfu heildarsamtaka, fengi aðra eins meðferð, umfjöllun og afgreiðslu í hinum ýmsu stéttarfélögum innan Alþýðusambandsins eins og það samkomulag sem gert var fyrir stuttu. Ég hygg að það séu engin dæmi þess áður, að í stéttarfélagi hafi samkomulag verið samþykkt með aðeins einu greiddu atkv., og það formannsins, engir aðrir tóku þátt í atkvgr. Svona mætti rekja afgreiðslu mála í hinum ýmsu stéttarfélögum vegna þessarar samningsgerðar.
Það er því alveg fráleitt að tala um að launafólk hafi sætt sig við þetta, ég tala nú ekki um þegar menn eru að tala um að það hafi sætt sig við þessar kjarabætur, því að þær eru minni en ekki neitt, ef menn ætla að mæla á þeirri vogarskál. Og ég minni menn á að það er enn heill landsfjórðungur sem ekki hefur samið, ekki hefur viljað semja og hefur neitað að gangast undir það jarðarmen sem þetta samkomulag er. Og hann mun ekki gera það, það er alveg ljóst. Ég hygg að eftir yfirlýsingu hæstv. fjmrh. við undirskrift kjarasamninga hjá BSRB, þar sem hann taldi ríkissjóð geta borgað launþegum innan vébanda BSRB talsvert meira kaup, sé augljóst að menn sækja á þau mið, sé svo mikið fjármagn í ríkissjóði að hægt sé að borga talsvert meira en það samkomulag innifelur, sem gefur fólki innan BSRB þó snöggtum skárra og meira en það samkomulag sem Alþýðusambandið stóð að. Ég held því að veður séu öll válynd að því er varðar launa- og kjaramálin í landinu og það sé víðs fjarri að launafólk, hinn almenni launþegi innan verkalýðshreyfingarinnar, hafi sætt sig við það samkomulag sem var gert fyrir stuttu.