15.12.1981
Sameinað þing: 36. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1562 í B-deild Alþingistíðinda. (1296)
137. mál, liðsinni við pólsku þjóðina
Páll Pétursson:
Herra forseti. Ég vill einungis lýsa vilja okkar framsóknarmanna til þess að verða Pólverjum að liði og taka þátt í því með öðrum flokkum hér á Alþingi. Við Íslendingar höfum átt töluverð samskipti á undanförnum árum við Pólverja, gagnleg samskipti. Nú erum við aflögufærir og lifum í velsæld, og mér þykir líklegt að við getum fundið heppilega leið eða heppilegar leiðir til þess að verða þeim að liði.
Þingflokkur framsóknarmanna hefur gert ályktun vegna atburðanna í Póllandi og ég vil með leyfi forseta fá að lesa hana hér úr ræðustól. Hún hljóðar svo:
„Þingflokkur Framsfl. harmar hina uggvænlegu atburði í Póllandi síðustu dægur. Sjálfsögð mannréttindi hafa verið fótum troðin, málfrelsi, ritfrelsi og fundafrelsi afnumið og starfsemi frjálsra verkalýðsfélaga bönnuð og forustumönnum þeirra varpað í fangelsi. Þingflokkur Framsfl. vonar að með þessu verði ekki lagt í rúst það umbótastarf sem unnið hefur verið af samstöðu í Póllandi á síðustu mánuðum. Lýsir þingflokkurinn dýpstu samúð með pólsku þjóðinni í raunum hennar.“
Svona hljóðaði ályktunin sem við samþykktum í gær. Heimurinn er dapurlegri vegna þess sem gerst hefur í Póllandi. Ég tel rétt að við athugum það mjög gaumgæfilega hér á Alþingi, hvernig við getum orðið Pólverjum að liði.