15.12.1981
Sameinað þing: 36. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1586 í B-deild Alþingistíðinda. (1307)

133. mál, atvinnutækifæri á Suðurlandi

Guðmundur Karlsson:

Herra forseti. Það fór nú svo, að ég missti að mestu af byrjun þessarar umr., enda er hv. 2. þm. Suðurl. fullfær um að tala fyrir okkar till. Ég vil samt láta í ljós ánægju mína yfir þeim undirtektum sem till. hefur fengið, og fyrir miklar umr. sem um hana hafa orðið.

Ég kveð mér fyrst og fremst hljóðs vegna ræðu hæstv. iðnrh. Ég vil ómögulega lesa út úr þessari till. svartsýnisraus eða einhvern svartagaldur um framtíð atvinnuvega á Suðurlandi. Það hefur farið svo, að þm. hafa hér hver eftir annan borið fram till. um uppbyggingu stóriðju í sínum kjördæmum, og það er í sjálfu sér ekkert óeðlilegt að við þm. Suðurl. fetum í fótspor þeirra. Orð verða einu sinni til alls fyrst, og ég tel að það sé nauðsyn að vekja upp nokkrar umr. um uppbyggingu iðnaðar og þá fyrst og fremst stóriðnaðar á Suðurlandsundirlendinu. Ég ætla að láta í ljós þá ósk og þá von, að það verði framtíðaratvinna að byggja virkjanir á Suðurlandi og að því starfi verði ekki lokið á næstu árum, heldur verði það verkefni jafnvel tveggja næstu áratuga.

Ég vil taka undir með ráðh. um það, hvert verkefni stjórnvalda á að vera. Mér leiðast alltaf og það fara fyrir brjóstið á mér þær bænarskrár sem samdar eru og sendar til stjórnvalda um að þau taki að sér frumkvæði um uppbyggingu atvinnulífsins. Vissulega er það rétt, að það er fyrst og síðast verkefni stjórnvalda að skapa skilyrði. Síðan ætti það að vera hlutverk heimamanna að sjá um framkvæmdirnar og ráðast í verkefnin.

Mér finnst að Jarðefnaiðnaður sé gott dæmi um framtak og samvinnuvilja Sunnlendinga. Þar hefur ýmiss konar forustustarf verið unnið. Ég vil líka gleðjast yfir því að þegar ég hef farið um Suðurland á síðustu 2–3 árum hef ég orðið þess var, að þar er miklu öflugri smáiðnaður en ég hafði gert mér grein fyrir. Við höfum stofnað eigin iðnþróunarsjóð sem virðist fara vel af stað og lofa góðu um framhaldið, og ég sé ekki annað en hann geti orðið aflgjafi smærri fyrirtækja á næstu árum.

Ég vil líka taka undir orð ráðh. um það, að þarna hljóta að vera miklir möguleikar í jarðhitanum eða jarðvarmanum. Einhvern tíma hefði ég haldið að hann hlyti að skapa einhverja möguleika t. d. til efnaiðnaðar. En það, sem við erum að vek ja athygli á og erum að óska eftir, er að stjórnvöld taki ákvarðanir og skapi skilyrði fyrir því, að slík fyrirtæki verði byggð upp, annaðhvort af okkur Íslendingum sjálfum eða þá að við gerum það í samvinnu við aðrar þjóðir. Það hefur verið svo, að stór hluti vinnuaflsins á Suðurlandi hefur verið bundinn við virkjunarframkvæmdir inni í hálendinu á síðustu árum. Ég ætla að vona að það horfi ekki til atvinnuleysis hjá þessu fólki á næstu árum og það geti horft með bjartsýni til komandi tíma.

Það hefur verið minnst hér á iðnþróunarfulltrúa og það hlutverk sem þeir vinna. Einhvern veginn finnst mér stundum spurning þegar verið er að ræða um þessa fulltrúa og það átak sem þarna er gert, hvort ekki hefur verið farið í öfugan enda, hvort ekki hefði frekar verið ástæða til þess að byrja á að skapa verkefni fyrir markaðsfulltrúa. Og mér sýnist að núna, sérstaklega á síðustu tveimur árum. hafi verið farið af stað af miklu flaustri og óforsjálni í uppbyggingu lítilla iðnfyrirtækja sem síðan hafa ekki möguleika til að selja sína framleiðslu þegar framleiðslan er byrjuð. Það er ekki alltaf mikið vandamál að byggja upp fyrirtæki, byrja framleiðslu. Það eru aftur á móti sölumálin sem oftast nær eru aðalvandamálið. Því virðist okkur Íslendingum ekki hafa tekist sem skyldi á síðustu árum að skapa skilyrði til uppbyggingar verulegs iðnaðar í landinu vegna þess að okkur hefur ekki tekist nægilega vel um stjórn efnahagsmála. Ég held að því miður sé svo komið að við höldum ekki áfram að flytja út þá óðaverðbólgu sem hér ríkir í landinu.

Ég vil þakka hv. 4. þm. Suðurl., Garðari Sigurðssyni, fyrir að taka vel undir okkar tillögu. Hann tekur undir hana og talar sem sannur íhaldsmaður, eins og hann reyndar er. Hann minntist hér nokkuð á Viðlagasjóð og þau áhrif sem gosið hefði haft á byggðina í Vestmannaeyjum. Ég er sannfærður um að gosið tafði alla eðlilega atvinnuþróun í Vestmannaeyjum um 10–15 ár og við erum enn þá að súpa seyðið af því. Það eitt t. d., að árið 1973 var eitt besta ár sem gengið hefur yfir íslenska fiskvinnslu og fiskiðnað og við misstum af því, hafði gífurleg áhrif á okkar möguleika. Við vorum árið 1972 að vinna stór og mikil verkefni í hagræðingu í fiskvinnslunni, sem við urðum þá að gefast upp á, og við höfum ekki enn tekið til við þau verkefni að nýju. Það er fyrst um næstu áramót sem við gerum okkur vonir um að geta horft til þess verkefnis aftur. Og ég ætla að vona að þegar við ráðumst í það skili það okkur því sem við höfðum þá vonað og ætlað.

Menn hafa hér rætt nokkuð um uppbyggingu iðnaðar í sjávarplássunum. Ég held einhvern veginn að iðnaður og sjávarútvegur muni seint fara saman. Eðli þessara atvinnugreina er svo óskylt. Fólkið úti í sjávarplássunum á möguleika til þess að skapa sér gífurlegar tekjur á stuttum tíma, og ég held að iðnaði muni alla tíð haldast illa á starfsfólki í samkeppni við sjávarútveginn, því að iðnaður kemur aldrei til með að geta skilað þeirri afkomu sem þetta fólk gerir kröfur um, nema þá stóriðjan og stóriðnaðurinn. Við flytjum þessa till. að vissu leyti vegna þess, að við teljum að ef ráðist er í orkufrekan iðnað á Suðurlandi eða stóriðju, þá muni það skapa mikla möguleika til frekari uppbyggingar, það muni hafa mjög örvandi áhrif á uppbyggingu annarra iðnfyrirtækja og alla þjónustu einmitt í kringum slíkt fyrirtæki og vekja heimafólk til enn frekari átaka en það hefur ráðist í til þessa.