15.12.1981
Efri deild: 23. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1590 í B-deild Alþingistíðinda. (1311)

66. mál, iðnráðgjafar

Stefán Guðmundsson:

Herra forseti. Ég fagna frv. til laga, sem hér er mælt fyrir, um iðnráðgjafa. Það er sjálfsagt öllum ljóst, að víða er mikil þörf fyrir slíka starfsemi, ekki síst á tímum umbóta í atvinnulífinu. Ekki síst fagna ég þeirri ákvörðun sem fram kemur í 2. gr. frv., en þar er heimild til handa hverju kjördæmi landsins til að ráða sér sérstakan iðnráðgjafa.

Ég er sammála því er segir í grg. með frv., að ein meginforsenda þess, að stuðningur ríkisins við iðnþróun í landshlutunum komi að tilætluðum notum, er öflugt starf og fjárhagslegur stuðningur af hálfu heimamanna. Trúa mín er sú, að ekki muni standa á heimamönnum að vinna af mætti að mótun þess starfs í þeirri von að með því megi aukast líkurnar á að rjúfa þá einhæfni atvinnulífsins sem nú virðast því miður vera.

Starf iðnráðgjafa hlýtur öðru fremur að byggjast á leiðbeiningarstarfi í iðnfyrirtækjum, sem starfandi eru, og ekki síður á ráðgjöf við ýmiss konar nýiðnaðarhugmyndir. Með ráðningu þessara manna má því vissulega ætla að víða takist að byggja upp fjölbreyttara atvinnulíf en verið hefur. Ef svo verður er hér sannarlega hreyft verðugu máli.

Ég vil mega vonast til þess, að þessi ágæta deild beri gæfu til að vinna hratt að framgangi þessa máls, þannig að við gætum afgreitt það héðan sem allra fyrst.