15.12.1981
Neðri deild: 24. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1591 í B-deild Alþingistíðinda. (1314)

Umræður utan dagskrár

Matthías Bjarnason:

Herra forseti. Aðeins örfá orð. — Þar sem ég spurðist fyrir um þetta mál hér um daginn og lét í ljós aths. mínar í sambandi við það, að þessi skýrsla væri komin í hendur margra annarra, þá vil ég þakka það sem vel er gert og þakka fyrir það, að fljótt var brugðist við og skýrslan útbúin og send þm. Ég vona að þetta tilfelli verði einnig til þess, að stjórnvöld á hverjum tíma, ekkert frekar þessi ríkisstj. en aðrar, gangi ekki fram hjá þinginu með upplýsingar sem á þarf að halda.

Ég endurtek þakkir mínar fyrir skjót viðbrögð við þessu máli.