15.12.1981
Neðri deild: 24. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1592 í B-deild Alþingistíðinda. (1315)
136. mál, verðjöfnunargjald af raforku
Iðnrh. (Hjörleifur Guttormsson):
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til l. um breyt. á lögum nr. 83 frá 1974, um verðjöfnunargjald af raforku, sbr. lög nr. 99/1979 og lög nr. 105/1980. Frv. þetta er komið frá hv. Ed. sem gerði ekki á því neinar efnislegar breytingar, og ríkti góð samstaða, að mér er best kunnugt, um afgreiðslu málsins þar í hv. deild.
Í gildandi lögum um verðjöfnunargjald af raforku er ákveðið að lögin gildi til ársloka 1981. Með frv. þessu er lagt til að lögin verði framlengd um eitt ár og gildi til ársloka 1982.
Verðjöfnunargjald af raforku er innheimt af allri raforkusölu í smásölu, sem kunnugt er, annarri en raforku til húshitunar. Nemur gjaldið 19% sem lögð eru á sama stofn og söluskattur er lagður á. Gjaldinu er varið til að styrkja fjárhag Rafmagnsveitna ríkisins og Orkubús Vestfjarða. Rafmagnsveiturnar fá 80% gjaldsins en Orkubúið 20% og hefur þetta gjald gert það kleift að halda í horfinu, ef svo má segja, og ná nokkrum árangri í sambandi við verðjöfnun á raforku til almennra heimilisnota. Lagt er til að upphæð gjaldsins verði áfram 19%. Hins vegar er sú breyting lögð til frá gildandi lögum, að verja skuli allt að 3% af gjaldinu til þess að greiða eftirstöðvar af kostnaði Rafmagnsveitna ríkisins og Orkubús Vestfjarða sem þessi fyrirtæki voru knúin til að taka á sig vegna framleiðslu á raforku með dísilvélum á s. l. vetri. Mönnum er eflaust í fersku minni raforkuskorturinn sem þá varð í landskerfinu, er vatnsaflsstöðvar önnuðu engan veginn raforkuþörfinni.
Heildarkostnaður við þær aðgerðir, sem þá þurfti að grípa til með olíukeyrslu, var talinn nema rúmum 24 millj. kr., auk þess sem Landsvirkjun varð fyrir tekjutapi með minnkandi sölu. Hluti þessa kostnaðar var greiddur með almennri verðhækkun á rafmagni um þriggja mánaða skeið. Það, sem upp á vantaði, var tekið að láni af Rafmagnsveitum ríkisins og Orkubúinu, en góð staða Laxárvirkjunar gerði henni kleift að komast hjá sérstakri lántöku. Aðrar rafveitur fengu útgjöld sín að fullu bætt með verðhækkunum, þ. á m. Rafmagnsveita Reykjavíkur og Rafmagnsveita Hafnarfjarðar.
Rafmagnsveitum ríkisins og Orkubúinu var gefið fyrirheit um að lánin yrðu endurgreidd af verðjöfnunargjaldi næsta árs og þannig yrði þessi kostnaður, sem þjóðarbúið og landsmenn urðu fyrir vegna orkuskortsins í fyrravetur, jafnaður á raforkunotendur í landinu eftir því sem frekast er unnt og með eðlilegri sanngirni, eins og málið var lagt fyrir af hálfu ríkisstj. og stefna mörkuð um það af henni fyrr á þessu ári.
Nú er lagt til að varið verði allt að 3% af verðjöfnunargjaldinu á næsta ári til að greiða niður lán þau sem tekin voru í umræddu skyni, en þau námu 6.1 millj. kr. hjá Rafmagnsveitum ríkisins og 4.7 millj. kr. hjá Orkubúi Vestfjarða. Í fjárlagafrv. fyrir árið 1982 er gert ráð fyrir að verðjöfnunargjald af raforku nemi 90.2 millj. kr. 3% þar af eru 14.2 millj. kr. og ætti það að nægja til greiðslu á áðurnefndum lánum auk vaxtakostnaðar.
Vegna raforkuskortsins á s. l. vetri og hins mikla kostnaðar, sem af honum leiddi, reyndist ekki unnt að nýta heimild þá sem er í gildandi lögum um að lækka verðjöfnunargjaldið út 19% í 16% frá 1. júní s. l. Fjárhagsstaða Rafmagnsveitnanna og Orkubúsins reyndist það erfið, þegar metið var hvort nýta ætti áðurnefnda heimild, að ekki þótti fært að skerða þennan tekjustofn. Verður fyrir lok næsta árs að endurmeta hvort fært þyki að hækka verðjöfnunargjaldið og þá í tengslum við úttekt á fjárhagsstöðu Rafmagnsveitnanna og Orkubúsins og ekki síður í sambandi við stefnumörkun um verðlagningu á raforku í landinu almennt. Það er knýjandi að fara betur ofan í þau mál en tekist hefur til þessa og þá bæði til þess að gera raforkuframleiðslufyrirtækjunum og dreififyrirtækjum raforkunnar kleift að standa undir skuldbindingum sínum og jafnframt að ná fram eðlilegum markmiðum í sambandi við verðjöfnun á raforku í landinu. Er það þó aðeins hluti af því stóra dæmi sem er verðjöfnun á orku milli fólk og atvinnufyrirtækja í landinu þar sem vinna þarf að endurbótum og breytingu til bóta frá því sem nú er.
Önnur breyting frá gildandi lögum, sem lögð er til, er sú, að iðnrh. verði á árinu 1982 heimilt að fela Orkusjóði að endurgreiða Rafveitu Siglufjarðar verðjöfnunargjald af raforku sem nemi allt að þeirri upphæð sem innheimt verður af raforkusölu veitunnar. Fyrir þessu er talin gild rök. En skilyrði fyrir því, að þessi heimild verði notuð, er í fyrsta lagi að fyrir liggi úttekt á fjárhagsstöðu Rafveitu Siglufjarðar, ljósari en nú liggur fyrir, og að gjaldskrá hjá fyrirtækinu verði ekki lægri en hjá þeim rafveitum sem hvað hæsta gjaldskrá hafa, svo sem Rafmagnsveitum ríkisins og Orkubúi Vestfjarða.
Í þriðja lagi er lagt til að gerð verði sú breyting á gildandi lögum, að dráttarvextir af því, sem ógreitt er, verði frá gjalddaga þeir sömu í sambandi við verðjöfnunargjaldið og hjá innlánsstofnunum samkv. ákvörðunum Seðlabanka Íslands á hverjum tíma. Er þetta gert til þess að tryggja eðlilega innheimtu og að ekki sé sótt í þetta fjármagn öðru fjármagni fremur. Tel ég það eðlilegt.
Herra forseti. Þetta frv. og verðjöfnunarmál á raforku, sem því tengjast, eru það vel kunn hér á hv. Alþingi, þar sem mál þetta hefur verið rætt árlega, að ég sé ekki ástæðu til að hafa þessa framsögu lengri. Legg ég til að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til hv. iðnn.