15.12.1981
Neðri deild: 24. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1595 í B-deild Alþingistíðinda. (1318)

136. mál, verðjöfnunargjald af raforku

Birgir Ísl. Gunnarsson:

Herra forseti. Eins og hæstv. iðnrh. gat um í sinni framsöguræðu er hér um að ræða gamlan kunningja sem kemur árlega á borð þm., en verðjöfnunargjald af raforku er framlengt með nýjum lögum frá ári til árs. Ég hef ávallt verið andvígur verðjöfnunargjaldinu í því formi sem það hefur verið lagt á. Ein rök gegn því, þau rök sem hér hafa verið flutt fram af hv. þm. Magnúsi H. Magnússyni og Karvel Pálmasyni, eru þau, að það er ekki í samræmi við merkingu eða eðli þessa gjalds að kalla þetta verðjöfnunargjald því að það leggst með meiri þunga á þá sem hæstu verði greiða rafmagnið. Það er þó ekki aðalástæðan fyrir því, að ég hef verið andvígur þessu gjaldi, heldur sú ástæða, að skattlagning á raforku keyrir úr hófi fram hér á landi, bæði með verðjöfnunargjaldi og með söluskatti. Hvergi nokkurs staðar í okkar nágrannalöndum er að finna jafngífurlega skattlagningu á orku og hér á landi. Þetta veldur m. a. því, að íslenskur iðnaður, sem á í harðri samkeppni við iðnað annarra landa, m. a. okkar nágrannalanda, sætir miklu lakari kjörum að þessu leyti en sá iðnaður nýtur í heimalandi sínu, því að orkuverð hér er mun hærra vegna þessarar skattlagningar. Orkuverð er stór hluti af framleiðslukostnaði margs konar iðnaðarvara sem við ýmist viljum flytja út eða erum í samkeppni við á heimamarkaði okkar, og þess vegna ber brýna nauðsyn til að taka þetta verðlagningarkerfi til endurskoðunar.

Það er annað atriði sem ég vil sérstaklega vara við í sambandi við verðjöfnunargjaldið. Það er sú staðreynd, að fjárhagur Rafmagnsveitna ríkisins hefur mjög batnað nú á allra síðustu árum, en verðjöfnunargjaldið var upphaflega fyrst og fremst lagt á til þess að vera tekjulind fyrir Rafmagnsveitur ríkisins sem reknar voru með mjög miklum halla. Ástæðan fyrir því, að Rafmagnsveiturnar hafa nú mun betri fjárhag en áður, er sú, að olíukeyrsla hefur mjög minnkað og ætti undir eðlilegum kringumstæðum nánast að vera óþörf. Sá gífurlegi kostnaður, sem því fylgdi fyrir Rafmagnsveitur ríkisins, hefur þar með fallið burt. Fjárhagur Rafmagnsveitnanna er þess vegna mjög batnandi og eru líkur á að hann geti orðið allgóður úr þessu og vonandi á næsta ári að öllu óbreyttu.

Á sama tíma sem þetta gerist halda stjórnvöld niðri með valdboði rafmagnsverði hér í Reykjavík. Sannleikurinn er sá, að ef við lítum á útsöluverð rafmagns frá hinum einstöku rafveitum í landinu, þá skortir lítið á að jöfnuður sé kominn í rafmagnsverðið, a. m. k. frá stærstu rafveitunum víðs vegar um landið. Ég hef ekki tölur hér við höndina, en ég skoðaði þetta nýlega og það er ekki hægt að segja að það sé verulegur munur á rafmagnsverði eftir því hvar á landinu er.

Hins vegar má verðjöfnunargjaldið ekki verða til þess að halda niðri rafmagnsverði hér í Reykjavík, að menn verði svo hræddir við vísitöluhækkanir, sem því fylgja, að menn haldi niðri rafmagnsverði hér í Reykjavík, og til þess þá jafnframt að rafveitur úti um land fái ekki hækkanir fái þær hins vegar uppi borinn sinn kostnað með verðjöfnunargjaldi þegar Rafmagnsveita Reykjavíkur er svelt og fær hvorki hækkun né verðjöfnunargjald. Ég vil sérstaklega vara við þessu. Mér er ekki grunlaust um að þegar sé farið að gæta nokkurrar tilhneigingar í þessa átt. Þess vegna held ég að það sé nauðsynlegt að taka þetta mál upp til rækilegrar endurskoðunar. Því hefur reyndar verið lofað hér ár eftir ár við afgreiðslu þessa máls, en ég held að nú sé kominn tími til þess, að það verði gert og fundið verði upp nýtt verðlagningarkerfi á raforku.

Ég á sæti í þeirri nefnd, sem fjallar um þetta mál, og mun að sjálfsögðu fara nánar ofan í það þar, en ég vildi nú strax við 1. umr. láta þessar aths. koma fram.