15.12.1981
Neðri deild: 24. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1597 í B-deild Alþingistíðinda. (1321)
150. mál, tollskrá o.fl.
Fjmrh. (Ragnar Arnalds):
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frv til l. um breyt. á lögum nr. 120 frá 1976, um tollskrá o. fl. Sú meginregla er í sambandi við álagningu tolla hér á landi og víðar, að einn tollur er lagður á einn hlut, þ. e. samsettur hlutur er ekki flokkaður í marga tollflokka, heldur einungis samkv. einum tollflokki. Af þessari ástæðu getur tollflokkur fyrir ýmsar vörutegundir, sem notaðar eru við byggingu húsa, verið mismunandi eftir því hvort húsið er flutt í heilu lagi inn eða í sérgreindum pörtum. Þannig er ljóst að baðker, kranar, hitastillar, blöndunartæki, rafmagnsofnar, rafmagnsbúnaður, gólfteppi, veggflísar og margt annað, sem notað er við byggingu húsa, er flutt inn algerlega tollfrjálst ef hús er flutt inn í heilu lagi. Aftur á móti er töluvert mikill tollur og vörugjald á þessum vörum ef þær eru fluttar inn sér á parti.
Með þessu frv. er fjmrn. veitt heimild til þess að leggja jöfnunarálag á tollverð mannvirkja. Þessu gjaldi er ætlað að mæta uppsöfnuðum aðflutningsgjöldum í verksmiðjuverði eða kostnaðarverði m. a. einingarhúsa sem framleidd eru hér á landi, þau sem ekki eru jafnframt innheimt við tollafgreiðslu sambærilegra innfluttra einingahúsa. Hér er sem sagt á ferðinni mál sem lýtur að því að skapa íslenskum iðnaði jafnréttisaðstöðu gagnvart innfluttum tilbúnum eða tilhöggnum húsum. Er ljóst að eins og málið er í dag er í raun og veru um að ræða — við getum sagt: neikvæða tollvernd. Það er minna en engin tollvernd á þessu sviði vegna þess að innfluttu húsin hafa forgang í tolli.
Ég verð að segja alveg eins og er, að mér kom mjög á óvart þegar ég frétti af því að tollalöggjöf á Íslandi væri jafnvitlaus og raun ber vitni og þessi lýsing mín ætti að sanna mönnum. Ég vissi ekki af þessu fyrr en í sumar, að á það var bent að hafinn væri mikill innflutningur húsa og að það tíðkaðist að flytja inn með húsunum ekki bara mikilvægar vörur eins og eldhúsinnréttingar og hreinlætistæki — og að þetta væri meira eða minna tollfrjálst ef það kæmi eftir þeirri leiðinni — heldur væru jafnframt dæmi þess, að fluttir væru inn ísskápar, þvottavélar, innbyggð sjónvarpstæki og ýmsar aðrar vörur í tengslum við þessi hús.
Við í fjmrn. töldum okkur hafa fulla heimild til þess að fyrirskipa að sá hluti húsa, sem ekki væri múr- og naglfastur, eins og t. d. þvottavélar eða sjónvarpstæki, yrði tollaður sér á parti þó að keypt væru hús í heilu lagi, og sú framkvæmd hefur verið á þessu nú í seinni tíð. En á hinn bóginn er ljóst að þegar svona hús eru flutt inn er margt fleira sem skapar þennan tollamismun en þær vörur sem ég áðan nefndi. Mér er kunnugt um það, að komin er af stað allveruleg skriða innflutnings á tilhöggnum einingahúsum, og ég tel að það sé alveg óhjákvæmilegt að Alþingi grípi tafarlaust í taumana og komi í veg fyrir það svo að þessi mikla mismunun gagnvart innlendum byggingariðnaði og innlendum framleiðsluiðnaði einingahúsa sé stöðvuð. Þess vegna legg ég mjög ríka áherslu á að þetta mál verði afgreitt nú fyrir jól því að ef það verður ekki geta liðið alltaf einir tveir mánuðir þangað til frv. verður að lögum. Ég tel að svo óeðlilegt ástand sé ríkjandi á þessu sviði að alls ekki megi láta dragast stundinni lengur að kippa þessu í lag.
Það er rétt sem fram hefur komið, að þegar lýst var þeim málum, sem ná þyrftu fram fyrir jól, í viðræðum við stjórnarandstöðu mun þetta mál vegna mistaka ekki hafa verið með á listanum. En vegna þess að ég hef grun um að það sé býsna mikil samstaða hér á Alþingi um afgreiðslu þessa máls vil ég eindregið vænta þess, að menn sjái í gegnum fingur við ríkisstj. vegna þessara mistaka og láti málið ekki stranda hér fyrir jólin, heldur taki það til meðferðar í þingnefnd nú og þm. sjái til þess, að málið verði afgreitt fyrir jól.
Ég vil að vísu taka það fram, að komið hefur fram aths. við 4. mgr. þar sem segir: „Ráðh. skal heimilt að leggja jöfnunarálag á aðra innflutta vöruflokka til þess að vega upp á móti uppsöfnuðum aðflutningsgjöldum í verksmiðjuverði“ o. s. frv. Þar er heimildinni ekki aðeins beint að innfluttu húsunum eða innfluttu mannvirkjunum, heldur er einnig veitt heimild til þess að rétta þetta af í öðrum sambærilegum tilvikum. Það getur átt við í sambandi við húsgögn og ýmsa aðra hluti sem eru fluttir til landsins. Ég hef heyrt, að sumum þyki þetta fullvíðtæk heimild, og ég tel að ekkert væri því til fyrirstöðu að nefnd gerði breytingu á þessu atriði. Mín vegna mætti fella heimildina niður ef það gæti orðið til samkomulags, en einnig mætti breyta henni þannig að það væri þá eitthvað þrengra skilgreint til hvers heimildin nái.
Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um það nauðsynjamál sem gerð er grein fyrir í aths. við frv. Ég legg til að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til hv. fjh.- og viðskn.