16.12.1981
Efri deild: 24. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1600 í B-deild Alþingistíðinda. (1327)
Umræður utan dagskrár
Kjartan Jóhannsson:
Herra forseti. Ég hefði auðvitað kosið að það væru möguleikar á að afgreiða þetta mál fyrir jól, en ég verð engu að síður að fagna yfirlýsingu sem hér hefur verið gefin um að þetta mál skuli hafa algjöran forgang, skuli vera forgangsverkefni nefndarinnar að loknu jólaleyfi. Ég vænti þess, að það geti þá fengið greiða og skjóta afgreiðslu og hafi forgang með þeim hætti að það verði fyrsta mál sem fari úr nefndinni eftir áramót. Ég skil yfirlýsingu hv. formanns nefndarinnar þannig og vænti þess, að hann muni beita sér fyrir að svo geti orðið.