16.12.1981
Neðri deild: 25. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1615 í B-deild Alþingistíðinda. (1340)

42. mál, ráðstafanir vegna breytingar á gengi íslenskrar krónu

Sighvatur Björgvinsson:

Herra forseti. Ég lýsi því að sjálfsögðu yfir, að ég er sammála hæstv. fjmrh. um að það er algjörlega út í hött og fráleitt að standa þannig að málum að láta Verðjöfnunarsjóð fiskiðnaðarins, taka erlent lán, sem hann lýsir yfir að hann geti ekki greitt, og síðan sé ætlunin að ríkissjóður greiði þetta lán, en Verðjöfnunarsjóður fiskiðnaðarins sé aðeins lántökuaðili formlega séð.

Ég vil lýsa því yfir, að það hefur komið fram alveg ótvírætt á fundum fjh.- og viðskn. Nd. Alþingis af hálfu þeirra, sem þar hafa mætt frá Verðjöfnunarsjóði fiskiðnaðarins, að það er skilningur þeirra að svona eigi að halda á málinu. Mér er ekki kunnugt um annað en það hafi verið skilningurinn í meðferð málsins allar götur sem það hefur verið í hv. Ed. Nú lýsir hæstv. fjmrh. því yfir, að þetta sé ekki tilgangurinn, og jafnframt, að ríkissjóður muni ekki greiða afborganir og vexti af þessu láni nema heildarinnistæður Verðjöfnunarsjóðsins dugi ekki fyrir því. M. ö. o.: það, sem kann að vera til af fjármagni í öðrum deildum Verðjöfnunarsjóðs en hér um ræðir, á þá að nota til að greiða fjármagnskostnað við þetta lán. Hér er komin upp algjörlega ný staða í málinu.

Ég hlýt að óska eftir því við hæstv. forseta, að enda þótt við föllumst á að afgreiða málið frá 2. umr. verði 3. umr. ekki hafin, málið ekki afgreitt endanlega fyrr en okkur hefur gefist tækifæri til að ræða málið við hæstv. sjútvrh., sem ég veit ekki betur en komi til landsins í dag. M. ö. o.: við þessar aðstæður tel ég alls ekki vera unnt að afgreiða málið endanlega þar sem algjörlega ný túlkun er komin fram hjá hæstv. fjmrh. Ég vil þó ítreka að ég styð hann í þeim skilningi sem hann lét frá sér fara úr ræðustól áðan.