16.12.1981
Neðri deild: 25. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1618 í B-deild Alþingistíðinda. (1343)

42. mál, ráðstafanir vegna breytingar á gengi íslenskrar krónu

Forsrh. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Það hafa kannske ekki allir gert sér ljóst hversu góður stuðningsmaður hv. 1. þm. Vestf. væri atvinnulífinu í heild og ekki síst iðnaðinum. Hann hefur verið mikið tengdur sjávarútvegi, sýnt þar brennandi áhuga, en hann undirstrikaði nú í ræðu sinni hvað iðnaðurinn er honum ofarlega í huga, því að í ræðu sinni hér í dag hefur hann flutt í rauninni tvær tillögur. Önnur er sú, að gegni íslensku krónunnar verði stórlega lækkað, sem þýðir náttúrlega mjög aukna seðlaprentun, og í öðru lagi, að um leið verði seðlaprentunin flutt inn í landið.

Hv. þm. beindi til mín fsp. um hvernig við hugsuðum okkur að leysa vandamálin um áramót, þ. e. vandamál fiskverðs, vandamál útgerðar og fiskvinnslu. Hann tók fram sjálfur réttilega, að hann ætlaðist auðvitað ekki til þess að fá svör varðandi prósentur um fiskverð það sem helst væri í hugum manna eða helst til lausnar, né heldur skildist mér að hann ætlaðist beinlínis til svara um sjálfa gengisskráninguna. Ég held að þegar menn ræða um þetta mál sé nauðsynlegt að gera sér nokkru nánari grein og gleggri en oft kemur fram í umræðum um málið af hálfu stjórnarandstæðinga og málgagna þeirra.

Okkur er auðvitað öllum ljóst að við stöndum frammi fyrir miklum vanda í ýmsum mikilvægum greinum atvinnulífsins. Ef við tökum sjávarútveginn er það þannig, að útgerðin stendur í heild samkv. áætlunum Þjóðhagsstofnunar og hefur staðið á þessu árin heldur skár en undanfarin 10 ár, þ. e. þegar afkoma hennar í heild er metin. Þess vegna eru það auðvitað órökstuddar staðhæfingar þegar talað er á þann veg, eins og stundum er gert, að útgerðin sé á heljarþröm. M. a. kemur sú fáviska fram í hæðnishlátri ritara þessarar deildar.

Það var t. d. tekið skýrt fram og réttilega af hv. 1. þm. Vestf., að hluti útgerðarinnar væri vel settur, þ. e. bátaflotinn yfirleitt. Það er alveg rétt, að bátaflotinn hefur í heild haft allgóða afkomu. Hins vegar er ljóst að togararnir og náttúrlega sumir nýrri bátarnir, sem hafa mikinn fjármagnskostnað, en fyrst og fremst togararnir, hinir nýrri, sem þurfa að greiða miklar fúlgur í vexti og afborganir og stynja þannig undir þungum fjármagnskostnaði, eiga við ákaflega mikla erfiðleika að etja. Þá kemur strax upp sú spurning í sambandi við fiskverðið: Þarf útgerðin í heild á mjög hækkuðu fiskverði að halda? Eftir þeim staðreyndum, sem fyrir liggja, og upplýsingum hv. 1. þm. Vestf., sem er mjög kunnugur þessum málum, ætti a. m. k. verulegur hluti bátaflotans ekki að þurfa á að halda verulegri fiskverðshækkun. Hins vegar er spurning með aðrar greinar útvegsins, þ. e. fyrst og fremst togarana, þó ekki alla, sem vafalaust mundu þurfa til þess að bera sig á mjög mikilli fiskverðshækkun að halda. En þá er spurningin: Eru hugsanlegar einhverjar aðrar leiðir til að greiða úr erfiðleikum togaranna, a. m. k. að einhverju leyti, þannig að fiskverðshækkun þyrfti þeirra vegna ekki að verða eins mikil? Þetta er mikið vandamál sem hefur verið kannað rækilega að undanförnu.

Ef við snúum okkur að fiskvinnslunni, þá er hún eins og kunnugt er þrjár greinar: frysting, skreiðarframleiðsla og saltfiskur. Það er vitað að saltfisksframleiðsla og skreiðarframleiðsla hafa á þessu ári gengið yfirleitt vel og skilað og skila enn hagnaði, báðar þessar greinar. Hins vegar er vitað um frystinguna að hún stendur mjög höllum fæti og þarf verulegra aðgerða við á næstunni til að rétta sem best hennar hlut. Hins vegar er það þannig, að það er vafamál, hvort á jafnan við jafnþýðingarmiklar ákvarðanir og fiskverðsákvörðun að taka hverja grein um sig og krefjast þess, að grundvöllur rekstrar hverrar einstakrar greinar sé þannig að fyllilega beri sig, eða hvort á að meta greinarnar í heild.

Nú er ljóst að allmörg fyrirtæki í landinu hafa fyrst og fremst frystingu, en lítið og sum ekkert af hinum tveim greinunum sem skilað hafa hagnaði. Þess vegna eiga þessi fyrirtæki auðvitað við mjög mikla erfiðleika að etja. Hins vegar er vitað að miklu fleiri fyrirtæki hér á landi og yfirleitt þau stærstu stunda allar þessar þrjár greinar. Þau hafa því haft hagnað af skreiðarframleiðslu og saltfisksframleiðslu og spurning hvort það er þá eðlilegt og sanngjarnt gagnvart þessum fyrirtækjum að krefjast þess, að ráðstafanir séu gerðar með verulegum gengislækkunum eða á annan veg til þess, að frystingin beri sig, og um leið að stórauka hagnaðinn bæði af skreið og saltfiski.

Vitanlega þýðir ekki að afgreiða svona mál með einhverjum fullyrðingum, eins og oft hafa heyrst að undanförnu. Þessi mál verður auðvitað að meta málefnalega. Það, sem gerir þennan vanda mjög erfiðan viðfangs, er einmitt að mörg fyrirtæki í landinu hafa allar þessar þrjár greinar, græða á tveim en tapa á einni, en aftur á móti stunda önnur aðallega eða svo að segja eingöngu frystingu sem víðast hvar stendur sig illa.

Þriðja atriðið í þessu, sem er auðvitað ákaflega mikilvægt eru tekjur og afkoma sjómanna. Sjómenn telja að þeir eigi rétt á kjarabótum til jafns við launamenn í landi og í samanburði við þá, eigi þeir rétt á verulegum bótum nú. Þá kemur upp spurningin: Er eina leiðin til að rétta hlut sjómanna sú að hækka fiskverðið þannig að kjarabæturnar fáist eingöngu með hækkun þess, eða eru hugsanlegar aðrar leiðir til að rétta hlut sjómanna án þess að fiskverðið í heild og þá til útgerðarinnar í heild sé um leið hækkað mjög verulega? Öll þessi atriði hafa verið til rækilegrar athugunar hjá ríkisstj.

Vegna ummæla um hæstv. sjútvrh. og þeirra orða, að kvartað hafi verið yfir því, að lítið hafi verið talað við aðila sjávarútvegsins, þá er mér kunnugt um að áður en hæstv. sjútvrh. fór af landi brott, sem mun hafa verið 3. des., hafði hann vikum saman varið afar miklum tíma einmitt í samtöl við fulltrúa allra þeirra aðila, sem hér eiga hlut að máli, til að kynna sér viðhorf þeirra og reyna að finna hagkvæmustu leiðir til að leysa úr þessum mikla vanda. Nú hafa samtök þessara aðila: sjómanna, útvegsmanna, fiskvinnslufyrirtækja, a. m. k. ýmis þeirra, boðað stöðvun útgerðarinnar um áramót ef nýtt fiskverð verði ekki komið. Það vill nú svo til að þetta eru einmitt sömu aðilar sem velja fulltrúa í Verðlagsráð sem á samkv. lögum að ákveða fiskverð. Það er auðvitað ágætt að reka þannig á eftir sjálfum sér. Það er gott að slá í hjá sjálfum sér og getur vafalaust verið gagnlegt. Vitanlega verður ríkisvaldið hér, eins og hv. 1. þm. Vestf. tók réttilega fram, að koma inn í þessi mál til að greiða úr. En það má ekki velta öllum vandanum yfir á ríkisvald og ríkisstj. Það gengur ekki að þeir aðilar, sem samkv. lögum skipa Verðlagsráð og eiga samkv. þeim að ákveða fiskverðið, semja um það sín á milli, velti vandanum af sér og segi: Það er ríkisstj. og Alþingi eitt sem eiga að leysa hann. Hér verður auðvitað að vera samstarf og samvinna og allir að leggjast á eitt.