16.12.1981
Neðri deild: 25. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1625 í B-deild Alþingistíðinda. (1349)

59. mál, lyfjalög

Pétur Sigurðsson:

Herra forseti. Ég kvaddi mér ekki hljóðs til að vekja athygli á þessu, það er langt frá því. Ég get vel skilið það, að þegar annir eru miklar hjá þm. og hraði mikill í öllum stórfum geti eitt lítið nafn fallið niður. Það, sem ég vildi vekja athygli á við afgreiðslu þessa máls, er að ekki eru margar klst. síðan hæstv. forsrh. lýsti því hér yfir fyrir hönd sinnar ríkisstj. — og stjórnarliðsins væntanlega — að ríkisstj. hefði ekki óskir um að önnur mál gengju fram fyrir jól en tvö, fjárlögin og lánsfjárlögin. Undir það var tekið af þm., að reynt yrði að verða við þessu, þótt hins vegar sé komið í ljós síðan að einn af stuðningsflokkum ríkisstj. kæri sig lítið um að lánsfjárlögin gangi fram fyrir jól. Ég vil hins vegar taka það fram, að þetta er eitt af þeim málum sem við höfum setið á fundum utan venjulegs fundartíma til þess að ná fram að ósk ráðh. Mikinn fjölda drífur nú að af málum sem óskað er eftir að nái fram. Við höfum verið boðnir og búnir til að reyna að leysa þetta, en höfum hins vegar fengið ákúrur fyrir að afgreiða ekki frá nefndum mál þegar stöðugir fundir eru í deildum og nefndum.

Ég minnist þess, að fyrir nokkrum árum var þetta alls ekki leyft. Bæði þingflokksformenn og forsetar sögðu: Ef næturfundir eru tvo daga í röð, þá verða ekki næturfundir þann þriðja. Sá maður, sem barðist hvað harðast fyrir þessu, var fyrrv. formaður Alþb., Lúðvík Jósepsson. Ég veit að ef hann sæti á þingi nú væri hann búinn að kalla í Eyjólf Sæmundsson til þess að láta kanna málið. Og væntanlega mun núv. formaður Alþb. gera honum viðvart. Það er ekki vegna þess að ég sé að telja eftir mér að koma hér og vinna, heldur verða nefndarformenn og ráðherrar að ætla þm. tíma til að afgreiða málin. Við getum ekki bæði tekið þátt í umræðum í deild og setið á nefndarfundum við að ræða mál og reyna að ná samkomulagi um ágreining þar. Það er útilokað.

Ég stóð upp að gefnu tilefni. Þetta er eitt af þeim málum sem hæstv. forsrh. bað ekki um og taldi ekki þurfa að afgreiða, en við afgreiðum núna sérstaklega fyrir hæstv. heilbrmrh.