17.12.1981
Efri deild: 26. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1641 í B-deild Alþingistíðinda. (1362)
55. mál, lánsfjárlög 1982
Frsm. meiri hl. (Ólafur Ragnar Grímsson):
Herra forseti. Fjh.- og viðskn. þessarar deildar vann að athugun frv. í samvinnu við fjh.- og viðskn. Nd. Ég byrja á að þakka nm. í báðum þessum nefndum fyrir mikla vinnu og mikla fórnfýsi þeirra við að taka þetta frv. til athugunar og meðferðar, sérstaklega nú á síðustu 7–8 dögum þegar nefndirnar hafa lagt mjög mikið starf af mörkum í því skyni að geta afgreitt þetta frv. fyrir hátíðar.
Samkv. venju hafa nefndirnar átt viðræður við fulltrúa fjölmargra aðila, sérstaklega Seðlabanka Íslands, Þjóðhagsstofnunar, fjmrn., og forsvarsmenn samtaka banka, sparisjóða og lífeyrissjóða sem og fulltrúa frá Húsnæðisstofnun og Framkvæmdastofnun. Nefndinni hafa einnig borist fjölmörg erindi frá margvíslegum aðilum. Þeir, sem standa að minni hl. n., hafa verið svo elskulegir að prenta þorra þessara álita í nál. sinu. Ég tel því ekki ástæðu til að fjölyrða mikið um það hér, þau erindi liggja fyrir í prentuðum þskj. Ég mun hins vegar víkja síðar nokkrum almennum orðum að meðferð nefndarinnar á þeim.
Frá því að frv. var lagt fram og þar til nefndin afgreiddi það bárust henni ýmsar beiðnir um hækkanir á heimildum til erlendrar lántöku og telst okkur til að þær beiðnir nemi óskum um tæplega 200 millj. kr. viðbót í erlendum lántökum af nýju tagi. Það er ljóst að erlendar lántökur eru orðnar allmiklar hér í landi og nauðsynlegt að menn spyrni við fótum hvað snertir framtíðarþróun þeirra. Þess vegna ákvað meiri hl. n. að hafna því að taka til greina óskir um 200 millj. kr. hækkun á erlendum lántökum, sem er samanlögð tala þeirra margvíslegu beiðna sem bárust nefndinni eftir að frv. var lagt fram.
Þótt meiri hl. n. hafi þar með hafnað því að auka erlendar lántökur í samræmi við þessar miklu beiðnir er ekki þar með sagt að erindi þau öll, sem til nefndarinnar hafa borist, séu þar með tekin af dagskrá. Því var lýst yfir í nefndinni, og ég vil endurtaka það hér, að hvað snertir vanda nokkurra þessara aðila, og á það einkum og sér í lagi við annars vegar Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar og hins vegar Hitaveitu Rangæinga, er ætlunin að skapa svigrúm fyrir þá aðila til að taka þau erlend lán, sem þeir þurfa að taka, innan þess heildarramma erlendrar lántöku til framkvæmda á sviði orkumála sem þegar var búið að ákveða áður en frv. var lagt fram. Frv. upphæðin er ekki hækkuð vegna þessara þarfa, en annað verður þá að skera niður að sama skapi.
Ýmsir aðrir aðilar, sem sendu okkur óskir, þurfa að fá leiðréttingu sinna mála eftir öðrum leiðum. Má þar einkum benda á aðila sem eru að sækja um erlendar lántökur vegna rekstrarerfiðleika. Við teljum eðlilegt að leysa þann vanda með gjaldskrárhækkunum en fara að stuðla að stórauknum erlendum lántökum til að leysa rekstrarvanda fyrirtækja. Hins vegar verður ekki fram hjá því litið, að ýmsir aðilar, sem á þessum viðbótarlista eru, verða að bíða með að fá þörfum sínum fullnægt því að það er ljóst að þjóðin getur ekki haldið áfram að leysa vanda einstakra aðila einfaldlega með því að auka heildarlántökur Íslendinga erlendis. Það er nauðsynlegt að einhvers staðar sé slegið striki og ákveðið að fara ekki lengra á þessari braut, og þess vegna varð niðurstaða meiri hl. n. á þann veg sem ég hef nú þegar greint.
Í meðferð nefndarinnar var allmikið fjallað um með hvaða hætti ætti að orða kaup lífeyrissjóðanna á skuldabréfum að jafngildi um 40% af ráðstöfunarfé sjóðanna. Það er ljóst að heilbrigð efnahagsstefna hlýtur að grundvallast á því, að innlend sparifjármyndun sé í sem ríkustum mæli undirstaða þeirra framkvæmda sem í landinu eru. Lífeyrissjóðakerfið hefur vaxið svo á undanförnum árum að það er óhjákvæmilegt að framlög þess til hins innlenda sparnaðar verði allveruleg. Það hafa verið nokkrar deilur um það á undanförnum árum með hvaða hætti ætti að skylda lífeyrissjóðina til að taka þátt í þessum kaupum. Ljóst er að það verður að vera um víðtæka samvinnu opinberra aðila og lífeyrissjóða að ræða. Við meðferð nefndarinnar á þessari grein fóru fram ítarlegar viðræður við fulltrúa samtaka lífeyrissjóðanna um þann hátt sem þeir vildu hafa á þessum samskiptum og þessum lagatextum. Ég tel óhætt að fullyrða það eftir viðræður mínar við þá, að sá lagatexti, sem hér liggur fyrir, mætir ekki andstöðu af þeirra hálfu þótt auðvitað geti verið skiptar skoðanir um einstaka orðalag. Það er von mín, að niðurstaðan af þeim ítarlegu viðræðum, sem hafa farið fram milli stjórnvalda og nm. og fulltrúa lífeyrissjóðanna á síðustu dögum, verði til þess að árangursrík samvinna fari fram á næsta ári milli stjórnvalda og lífeyrissjóðanna um þessi efni.
Ég vil geta þess sérstaklega hér, vegna þess að slíkt kemur ekki fram í lagatextanum beint, að við meðferð málsins kom í ljós að einstakir lífeyrissjóðir hafa áhuga á að kaupa skuldabréf af fjárfestingarlánasjóðum atvinnuveganna — við getum nefnt Fiskveiðasjóð sem dæmi — milliliðalaust án þess að slík viðskipti fari í gegnum Framkvæmdasjóð og Framkvæmdasjóður taki þá þóknun fyrir sinn milliliðaþátt. Því hefur verið lýst yfir af fulltrúum ríkisstjórnaraðilanna í nefndum þingsins og enn fremur á þeim fundum sem við höfum átt með forsvarsmönnum þeirra opinberu stofnana sem um þessi mál fjalla, að við teljum rétt að taka upp þann hátt á næsta ári, að óski lífeyrissjóðirnir eftir að kaupa bréf frá þessum fjárfestingarlánasjóðum atvinnuveganna án milligöngu Framkvæmdasjóðs og séu þær ráðstafanir almennt í samræmi við fjárfestingar- og lánsfjáráætlun sé sjálfsagt að stuðla að því, að það geti átt sér stað, þannig að beinni tengsl skapist milli lífeyrissjóðanna og fjárfestingarlánasjóða atvinnuveganna en verið hafa til þessa. Ég vil sérstaklega taka þetta fram hér því að ég held að það sé nauðsynlegt að það komi fram með skýrum og afdráttarlausum hætti. Hins vegar var ekki nauðsynlegt að breyta lagatextanum til að þetta gæti átt sér stað. Hér er um að ræða breytingu á framkvæmd lagatextans, en að mínum dómi hins vegar mjög mikilvægri framkvæmd.
Eins og hv. dm. er kunnugt voru uppi hugmyndir um að auka kaupskyldu lífeyrissjóðanna í 45%, það var horfið frá þeim áformum og tala fyrra árs, 40%, stendur áfram í þessum texta. Það þýðir óhjákvæmilega að innlend fjármögnun verður minni að sama skapi. Þess vegna þurfti að auka erlendar lántökur í frv. sem þessu nemur. Út af fyrir sig er hægt að skilja sjónarmið lífeyrissjóðanna hvað þetta atriði snertir. Á hinn bóginn er nauðsynlegt að allir átti sig á því, að þeim mun meiri tregða sem verður á að mæta innlendri fjármögnunarþörf, þeim mun meiri líkur eru á að þrýstingur til erlendrar lántöku aukist. Það er vandamál sem stjórnvöld munu standa frammi fyrir, hvort sem það er þessi ríkisstj. eða önnur.
Enn fremur hefur meiri hl. n. gert í sínum brtt. tillögur um að inn verði tekin 50 millj. kr. lántaka vegna Byggðasjóðs og aðstoðar hans við atvinnuvegina, bæði sjávarútveg og iðnað, og ennfremur 50 millj. í viðbót vegna ýmiss konar breytinga sem nauðsynlegt er að gera með hliðsjón af þeim breytingum sem fjárlagafrv. hefur tekið í meðferð Alþingis. Meiri hl. n. leggur því til að heildarupphæð af erlendum lántökum í frv. hækki um u. þ. b. 160 millj. Það munu vera rúm 7% af þeirri heildarupphæð sem í frv. er. Rétt er þá að vekja athygli á því sem ég sagði fyrr í minni ræðu, að við höfnuðum að bæta þarna við 200 millj. í viðbót þótt óskir lægju fyrir um það í nefndinni. Ef horfið hefði verið að því að verða við þeim óskum hefði heildarhækkunin þurft að vera einhvers staðar á bilinu 350–400 millj. kr., sem að mínum dómi hefði verið allt of mikil hækkun og efnahagslega hættuleg hækkun.
Ég hef sagt það áður í þessari ræðu og vil endurtaka það hér, að það er alveg ljóst að á næstu mánuðum, misserum og árum verður að fara mjög varlega í aukningu á erlendum lántökum, sérstaklega hvað snertir þær freistingar ýmissa aðila í þessu þjóðfélagi, bæði í atvinnulífinu og hjá hinu opinbera, að reyna að leysa tímabundin rekstrarvandamál sín með erlendum lántökum. Ég held að það sé alveg nauðsynlegt að allir sameinist um að hamla gegn slíkri þróun. Ef hún heldur áfram mörg ár í viðbót getur það leitt til langvarandi efnahagslegra erfiðleika sem verði mjög erfitt að komast út úr. Við þurfum því að sameinast um að auka innlenda sparifjármyndun og hamla gegn tilhneigingu fjölmargra aðila til að leysa vandamál sín með sífelldum erlendum lántökum.
Í þessu frv. er gert ráð fyrir að sala spariskírteina ríkissjóðs geti orðið allmiklu meiri á næsta ári en hún hefur orðið á þessu ári. Það er ljóst að þeir nýju sex mánaða verðtryggðu reikningar, sem teknir voru upp í bankakerfinu, hafa orðið til þess að almenningur, sem áður fyrr keypti verðtryggð spariskírteini ríkissjóðs, hefur horfið í mjög ríkum mæli að því að tryggja fé sitt með því að leggja það inn á hina 6 mánaða verðtryggðu reikninga, en eins og fram kom í viðtali við Jóhannes Nordal bankastjóra Seðlabankans í sjónvarpinu í gærkvöld er verið að íhuga ýmsar nýjar leiðir, bæði með því að bæta kjörin á spariskírteinum ríkissjóðs og þau ákvæði sem um þessi spariskírteini gilda, til að hvetja á næsta ári almenning í landinu til að nota þetta sparnaðarform í jafnríkum mæli og gert var áður.
Herra forseti. Það mætti margt fleira segja um það frv. sem hér liggur fyrir. Ég ætla hins vegar ekki að gera það að sinni, en vil endurtaka þakkir mínar til meðnm. minna, bæði hér í hv. nefnd og í Nd., sem hafa lagt á sig mikla vinnu, bæði um helgidaga, kvöld og nætur, til að koma þessu frv. áleiðis.