17.12.1981
Efri deild: 26. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1700 í B-deild Alþingistíðinda. (1369)

55. mál, lánsfjárlög 1982

Salome Þorkelsdóttir:

Herra forseti. Það hefur verið athyglisvert að fylgjast með málflutningi hæstv. ráðh. og stjórnarliða í umr. um frv. til fjárlaga og nú frv. til lánsfjárlaga. Það hefur komið fram, að viðmiðunarprósentan vegna hækkunar fjárlaga á milli ára 1981 og 1982 er 33% og að það sé í fullu samræmi við þá efnahagsstefnu sem hæstv. ríkisstj. hefur fylgt frá því að hún kom til valda, þ. e. að draga úr verðbólgu. Það má vel vera að í fílabeinsturni hæstv. ríkisstj. hafi tekist að draga úr verðbólgu, þar hafi tekist að telja hana niður. En meðal almennings í landinu er annað uppi á teningnum. Þar hefur engin niðurtalning átt sér stað. Þrátt fyrir ýmsar hagstæðar ytri aðstæður hefur hæstv. ríkisstj. ekki tekist þetta markmið sitt að ná verðbólgunni niður á sama stig og í helstu viðskiptalöndum, eins og einhvers staðar var sett á prent í sáttmála.

Það er víða verið að semja fjárhagsáætlanir fyrir árið 1982 um þessar mundir. Í öllum sveitarfélögum er unnið að fjárhagsáætlunum. Sveitarfélögin eru smækkaðar stjórnsýslueiningar af þjóðarheildinni, en hvernig skyldi vera staðið að samningu fjárhagsáætlana þeirra? Að sjálfsögðu lægi þá beinast við að taka til fyrirmyndar viðmiðunartölur hæstv. fjmrh. í þessu efni. Hann ætti að vera til fyrirmyndar og eftirbreytni, en sú er ekki raunin.

Sveitarfélögin eru raunsærri að þessu leyti en hæstv. fjmrh. Þau nota því ekki 33% viðmiðunarhækkun milli ára, heldur 50–55%. Þannig er nefnilega raunveruleikinn sem snýr að hinum almenna þjóðfélagsþegni í þessu landi, enda var sú prósentutala gefin upp á fjármálaráðstefnu sveitarfélaganna nú í haust við gerð væntanlegra fjárhagsáætlana sveitarfélaganna. Það er slæmt þegar staðið er þannig að málum af stjórnvöldum að almenningur hættir að trúa nokkrum sköpuðum hlut sem þaðan kemur. Úr fílabeinsturninum er hrópað: Verðbólgan er á niðurleið. Við erum að telja niður. Það er ekkert að. Allt er slétt og fellt. — Á sama tíma horfa menn á verðmiðana á vörunni sem þeir eru að kaupa nú, þessa dagana er mikið keypt vegna jólanna, og þeir bera það þá saman við vöruverð frá því fyrir seinustu jól. Það er misskilningur að almenningur fylgist ekki með, buddan hjálpar til við það.

Og áfram ætlar hæstv. ríkisstj. að búa í haginn fyrir eftirkomendur okkar með því að stórauka erlendar lántökur til að nota sem eyðslufé fyrir hið opinbera. Það kom fram í framsöguræðu frsm. 1. minni hl. fjh.- og viðskn., hv. 3. þm. Norðurl. e., að lán til íbúðabygginga fara lækkandi og verst kemur þetta niður á einstaklingum sem vilja byggja á eigin vegum. Þá er lánafyrirgreiðsla ekki nema rúm 17% af byggingarkostnaði staðalíbúðar, en ef byggt er af félagslegum ástæðum, þ. e. verkamannabústaðir, er hún 80%. Þarna er farið inn á alranga braut og verið að draga úr sjálfsbjargarhvöt einstaklinganna.

Nú má enginn skilja orð mín svo, að ég sé á móti því að byggðar séu íbúðir á félagslegum grunni fyrir þá sem þess þurfa með. Það er langt frá því. Það á vissulega að koma til móts við slíkar þarfir og gera það vel. En það þarf jafnframt að gera einstaklingum kleift að byggja á eigin vegum með hagstæðum lánakjörum. Hrædd er ég um að margir geri sér ekki grein fyrir öllum þeim kvöðum sem eru á íbúðum sem byggðar eru af félagslegum ástæðum. Viðkomandi getur ekki sjálfur ákveðið hversu rúmt hann vill búa, og þar er ekki alltaf hægt að tala um sanngjarnar og eðlilegar viðmiðanir eða reglur. Dæmi þekki ég um hjón sem voru í fyrsta sinn að eignast húsnæði í verkamannabústað, komin á efri ár. Þau voru tvö í heimili og máttu því ekki fá stærri íbúð en tveggja herbergja. En rétt áður en þau áttu að fá íbúðina sína dó maðurinn. Og hvað skeður? Jú, þar sem makinn var dáinn, varð eiginkonan að láta sér nægja einstaklingsíbúð, eins herbergis, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til að fá leiðréttingu sinna mála. Hér var augljóst að engin sanngirni var í þessari ráðstöfun. Þessu varð ekki þokað. Búslóðin var auðvitað sú sama hjá ekkjunni, en hið opinbera ákvað að hún mætti ekki eiga meira en svo að búslóð þeirra hjóna kæmist í eitt herbergi. Það var að vísu til lausn með því að fara í kringum lögin og fá einhvern til að skrifa sig með lögheimili hjá ekkjunni þó að hann ætti ekki heima þar. Slíkt vildi hún ekki sætta sig við. Hún neitar að fara í kringum lögin til að fá leiðréttingu sinna mála og þar við situr.

Þessi saga er aðeins dæmi um það, hvernig getur farið þegar einstaklingarnir fá ekki að ráða högum sínum sjálfir vegna aðgerða hins opinbera.

Það væri freistandi að fjalla um einstaka þætti þessa frv. til lánsfjárlaga, en þeim hafa verið gerð ítarleg skil af þeim hv. þm. sem hér hafa talað af hálfu stjórnarandstöðunnar á undan mér. Þó get ég ekki látið hjá liða að mótmæla því, að ríkissjóður sé að seilast í sérsjóði eins og Erfðafjársjóðinn til að verða sér úti um eyðslufé. Það kemur úr hörðustu átt, að á ári fatlaðra skuli ríkissjóður með skerðingarlögum næla sér í 7.5 millj. kr. úr þessum sjóði. Erfðafjárskattur var kominn í 13.5 millj. 1. des. s. l., en spáin var 7 millj. kr. tekna og þar af átti sjóðurinn að fá 6. Hvað nælir ríkissjóður sér í þarna óvænt? Jú, 7.5 millj. kr. í eyðsluhítina á ári fatlaðra. Er þetta vilji hæstv. ríkisstj. á borði? Það er ekki nóg að tala fallega. Það verður meira að fylgja á eftir. Það verður að sýna viljann í verki. Erfðafjársjóður er að langmestu leyti styrktarsjóður til að koma upp aðstöðu fyrir endurhæfingu sjúklinga og verndaða vinnustaði. Getur því engum blandast hugur um hvaða þýðingu það hefur að þessi sjóður fái sinar lögbundnu tekjur til að hægt sé að sinna þessu mikilvæga hlutverki sem ég hef haft ástæðu til að halda að allir væru einhuga um að ætti að hafa forgang umfram flest annað. Þannig er a. m. k. talað og ritað þegar þessi mál ber á góma.

Ég veit líka að margir hv. þm. innan stjórnarliðsins eru ekki ánægðir með þessa skerðingu á Erfðafjársjóðnum. En það er ekki að ástæðulausu að ég talaði um að hæstv. ríkisstj. sæti í fílabeinsturni. Það eru að vísu komnar fram brtt. við fjárl. varðandi tekjur af erfðafjárskatti úr 11.9 í 13 millj., sem er allt of lágt áætlað. Það mætti trúlega hækka þessa spá um 50% eða í 20 millj. En þetta þýðir að þarna ætlar ríkissjóður að næla sér í hvorki meira né minna en liðlega 10 millj. miðað við þá brtt. meiri hl. fjh.- og viðskn. að skerðingin samkv. lánsfjárlögum sé aðeins minnkuð. Áður fyrr fékk þessi sjóður að safna upp milli ára. Það er ekki fyrr en 1979 sem farið er að skerða hann og nota til að afla ríkissjóði þannig aukins eyðslufjár.

Ég nefndi að raunhæft hefði verið að áætla tekjur sjóðsins 20 millj. eða um 50% umfram það sem fjárlög gera nú ráð fyrir. Hækkun tekna í þennan sjóð fylgir venjulega hækkun fasteignamats af eðlilegum ástæðum, og það er ekki langt síðan upplýsingar lágu fyrir um að fasteignamat í landinu hefði hækkað um 55% að meðaltali og sums staðar meira.

Nú hefur verið lagt fram í hv. Nd. frv. til l. um málefni fatlaðra, og ég efast ekki um að þetta frv. fái góðan stuðning hv. þm. Ætla ég að vona að meiri hugur fylgi máli hjá hæstv. ríkisstj. varðandi þetta frv. eða það sem snýr að fjármálahlið þess þegar þar að kemur, en skerðingartillögur í frv. til lánsfjárlaga gefa tilefni til að efast um að hugur fylgi máli.

Herra forseti. Ég á erfitt með að sætta mig við þá staðreynd, að það skuli vera fastur liður við gerð fjárlaga að sett séu lög, skerðingarlög, til að ógilda tilgang laga sem í gildi eru um ýmsa sérsjóði. Það eru ekki traustvekjandi aðgerðir.

Varðandi það, að Erfðafjársjóður skuli hlíta skerðingu eins og aðrir sjóðir, mætti frekar sætta sig við ákvæði um prósentuviðmiðun heldur en fasta krónutölu. Þannig kæmi þá óvænt hækkun tekna báðum til góða, en ekki aðeins ríkissjóði eins og nú með fastri krónutölu.

Ég vil að lokum segja það, að því miður er engin von til þess, að hæstv. ríkisstj. takist að leysa efnahagsvanda þjóðarinnar. Það er engin lausn að velta vandanum áfram, að fresta honum með auknum erlendum lántökum. Það kemur að skuldadögum og lán verður að greiða ef þjóðin ætlar að halda sjálfstæði sínu gagnvart erlendum lánardrottnum. Auknar erlendar lántökur er ekki hægt að greiða nema með hækkun skatta, og landsmönnum þykir nú þegar nóg komið af slíkum álögum.

Rétt áðan var að berast á borð okkar hér í Ed. brtt. frá hæstv. ríkisstj. við frv. til lánsfjárlaga um að fella burt 22. gr. frv. Mér er kunnugt um vanda Félagsheimilasjóðs og hann má ekki við skerðingu frekar en aðrir sjóðir eigi hann að vera hlutverki sínu vaxinn. En mér verður að spyrja: Hvers vegna 22. gr.? Hvers vegna ekki 20. gr., um málefni þroskaheftra? Hvers vegna ekki 18. gr.? Ég hefði talið jafnbrýnt eða brýnna að taka þarna með t. d. 18. gr. sem fjallar um að skerða Erfðafjársjóð. Ég hef því nú þegar lagt fram brtt. við frv. til l. um lánsfjáráætlun fyrir árið 1982 og hún er hógvær því að hún varðar aðeins eina grein, 18. gr., að hún verði felld burt á sama hátt og 22. gr. Ég vænti þess, að hæstv. ríkisstj. og stuðningsmenn hennar hafi jafngóðan skilning á hlutverki Erfðafjársjóðs og nauðsyn þess, að hann fái að halda sínum tekjum óskertum, og styðja því þessa till. þó að hún sé komin frá þm. stjórnarandstöðunnar. Ég vænti þess, að hv. þm. geti fallist á að þessu sinni að það er sama hvaðan gott kemur.