17.12.1981
Efri deild: 26. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1738 í B-deild Alþingistíðinda. (1379)

55. mál, lánsfjárlög 1982

Fjmrh. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Ég var ekki viðstaddur þær viðræður sem áttu sér stað við lífeyrissjóðina og verð því að byggja heimildir mínar á frásögnum annarra. En mér er sagt að þetta orð hafi verið í textanum þegar hann var sýndur lífeyrissjóðamönnum og hann hafi verið samþykktur með þessum hætti. Ég treysti mér ekki til að gefa þá yfirlýsingu, að þetta feli ekki í sér neina efnisbreytingu. Mér finnst að ég væri að segja nokkuð mikið ef ég segði að það að skjóta inn orðinu „fjmrn.“ í þennan texta þýddi enga efnisbreytingu. Það hlýtur auðvitað að þýða það, að fjmrn. komi við sögu í þessu samhengi. Það hlýtur að þýða það. Það er ekki hægt að skilja það öðruvísi eins og það stendur hér.

Ég held hins vegar að hv. þm. geri kannske meira úr þessu máli en efni standa til, en ég treysti mér ekki til að svara spurningu hans algerlega neitandi. Ég held að það sé ljóst að orðið hlýtur að hafa merkingu í þessu samhengi og að menn hafi vísvitandi sett þetta orð inn. En ég sé ekki ástæðu til að gera alveg eins mikið úr þessu máli og hann gerir.

Ég geri ráð fyrir að Seðlabankinn fari áfram með það hlutverk sem hann hefur gegnt í þessu sambandi. Það er auðvitað nokkuð ljóst, að Seðlabankinn hefur þær heimildir sem hann hefur haft í þessu sambandi, að hafa þau afskipti af fjárfestingarlánasjóðum sem hann hefur haft. En sem sagt, ég verð að svara þessari spurningu neitandi, ef gengið er á mig með það, að auðvitað hefur það efnislega merkingu, að orðinu „fjmrn.“ er skotið þarna inn í.