21.10.1981
Neðri deild: 5. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 167 í B-deild Alþingistíðinda. (138)
18. mál, stéttarfélög og vinnudeilur
Hákon Hákonarson:
Herra forseti. Mig langar að segja hér nokkur orð í sambandi við það frv. sem hér liggur fyrir hinu háa Alþingi. Ég vil byrja á að þakka flm. út af fyrir sig fyrir að hreyfa þessu máli og hefja um það umr. Hitt er annað mál, að ég tel að miðað við frv. í þeirri mynd sem það liggur fyrir í dag, og þær viðtökur sem það hefur fengið í verkalýðshreyfingunni, hafi verið færðar nú þegar nokkrar sönnur á að þar þurfi verulega miklu að breyta ef verkalýðshreyfingin á annað borð á að fást til að fallast á að þar sé um brúklega hluti að ræða. Ég held að það sé alveg nauðsynlegt í þessari umr. að fara örlítið í það, lið fyrir lið, hvernig verkalýðshreyfingin starfar í dag og hvaða skipulag hún býr við í aðalatriðum.
Það er fyrst til að nefna, að Alþýðusamband Íslands er eins konar rammi yfir hinn frjálsa vinnumarkað þar sem menn geta af fúsum og frjálsum vilja óskað eftir aðild eða hafnað eftir atvikum. Fyrr á árum var til fyrirkomulag sem raunar eimir eftir af enn, hin svokölluðu svæðasambönd. Það þekk ja allir. Allir hafa heyrt á þau minnst. Það kann hins vegar að velkjast nokkuð fyrir ýmsum í þjóðfélaginu hvernig á því stendur, að síðan er til eitt sambandsfyrirkomulagið enn, hin svokölluðu sérgreinasambönd. Allt á þetta sínar eðlilegu skýringar, og ekki sé ég að þarna sé neitt athugavert á ferðinni. Hins vegar er nauðsynlegt fyrir menn að hafa í huga að ástæðurnar fyrir því, að hin svokölluðu sérgreinasambönd voru sett í gang, voru þær í aðalatriðum, að eins og svæðasamböndin störfuðu tóku þau yfir ákveðinn landshluta og höfðu innan sinna vébanda allar starfsgreinar. Á sínum tíma, þegar tekin var ákvörðun um að hverfa frá þessu skipulagi, — ég fullyrði að tekin hefur verið ákvörðun um að hverfa frá þessu skipulagi og taka upp hið svokallaða landssambandafyrirkomulag, — þá var það vegna þess einmitt að mönnum þótti þetta fyrirkomulag ekki henta. Menn töldu m. ö. o. á sínum tíma eðlilegra að starfshópar, starfsstéttir mynduðu með sér samband og réðu sínum málum á þeim vettvangi sameiginlega yfir allt landið. Ég er þeirrar skoðunar, að þetta hafi verið rétt ákvörðun og þessa ákvörðun beri að styðja og efla svo sem kostur er.
Ég þekki nokkuð náið, eftir að hafa starfað hjá Alþýðusambandi Norðurlands um nokkurra ára skeið, hvernig þetta er í reynd. Ég skal að vísu viðurkenna að á þessu kann að vera nokkur blæbrigðamunur eftir því hvar á landinu menn eru staddir og um hvaða svæðasamband er verið að fjalla. Í Alþýðusambandi Norðurlands háttar t. d. þannig til um samsetningu, að þar eru mörg nokkuð stór stéttarfélög. Þar eru almenn verkalýðsfélög, þar eru stór verslunarmannafélög, þar eru stór samtök iðnaðarmanna. Öll þessi stærri félög, leyfi ég mér að fullyrða, hafa ákveðið aðild að sínum viðkomandi landssamböndum. Það kemur því þannig út í mínum huga, að ef svæðasamböndin sem slík ættu að gegna sínu hlutverki til hins ýtrasta þýddi ekki fyrir okkur að vera með hitt sambandafyrirkomulagið í gangi líka. Þetta gengur sennilega upp h já þeim á Vestfjörðunum og þetta gengur sennilega upp hjá þeim á Austfjörðunum að nokkru leyti líka, þar sem hins vegar samsetningin er þannig, að þar er nánast eingöngu — ég segi: nánast eingöngu, auðvitað eru undantekningar, en að stórum meiri hluta alla vega eru það hin almennu verkalýðsfélög sem eru ráðandi og ríkjandi á hverjum stað. Því er tiltölulega einfalt fyrir Alþýðusamband Vesturlands og Alþýðusamband Austurlands að sjá um stóran hluta af kjarasamningagerð fyrir sín aðildarfélög. Ég hef trú á því, að hv. flm. þessa frv. hafi verið undir áhrifum af einhverju svona fyrirkomulagi þegar hann flutti þetta frv. sitt og setti það saman, sérstaklega þar sem kveðið er á um svokölluð starfsgreinafélög. Ég held að það sé alveg nauðsynlegt fyrir menn að minnast þess, þegar verið er að fjalla um þetta fyrirkomulag eða flytja um það tillögur á hinu háa Alþingi, og gera sér grein fyrir því, að markmiðið með lagasetningu og markmiðið með umfjöllun um alla hluti hlýtur að vera það nr. 1 að einfalda störfin, gera þau markvissari, gera þau aðgengilegri fyrir hinn almenna félagsmann og gera þau meira aðlaðandi þannig að sem flestir geti komið og tekið þátt í hinu þróttmikla og oft og tíðum mjög svo þarfa starfi sem verkalýðshreyfingin er að fást við.
Ég óttast að yrði frv. samþykkt í þeirri mynd sem það liggur hér fyrir í dag, þá mundi skipulagsleysi og nánast kannske glundroði í mörgum tilvikum koma upp í þessari umfjöllun. Þá sætum við uppi með svæðasambönd, þá sætum við uppi með landssambönd, við sætum áfram eftir með Alþýðusambandið að sjálfsögðu og við sætum síðan uppi með landssambönd þessara félaga — stéttarfélagasambönd kallar hv. flm. þetta — til viðbótar því sem við höfum í dag. Ég leyfi mér að fullyrða að þetta mundi ekki á nokkurn handa máta auðvelda okkur, sem í verkalýðshreyfingunni höfum starfað um nokkurt árabil og þekkjum þetta orðið af nokkurri reynslu, — ég hef ekki nokkra trú á að þetta mundi á nokkurn handa máta auðvelda okkur þau störf sem við erum að reyna að vinna fyrir okkar fólk og gerum okkar besta. Að sjálfsögðu hafna ég því alfarið hér og annars staðar, að einhverjir annarlegir hagsmunir séu ráðandi hjá starfsfólki stéttarfélaganna í landinu og þar sé um eitthvað að ræða sem séu hagsmunir einstaklinga nr. 1 og hagsmunir fjöldans, sem við vinnum hjá, nr. 2, 3 eða 4. Ég vísa slíkum ummælum algerlega á bug.
Hitt er svo aftur annað mál og undir það má mjög vel taka, að auðvitað má fjalla um þessa hluti fyrir opnum tjöldum og það á að gera. Margt er hægt að bæta hjá okkur og allar ábendingar um það eru vel þegnar og sjálfsagðar. Hitt er annað mál, að ég tel nokkuð djúpt í árinni tekið þegar fram kemur í umr. um þetta frv. hér á hinu háa Alþingi fyrir einum degi eða tveimur, að skipulagsleysi og rótleysi sé orðið slíkt í Alþýðusambandinu að þar ríki nánast. upplausn. Ég vil þó taka það fram, að í jafnfjölmennum samtökum og alþýðusamtökin eru í landinu er ekki óeðlilegt að menn skiptist nokkuð í hópa og þar eigi sér stað nokkuð ákveðin skoðanaskipti, og mér finnst ekki óeðlilegt þó að á stundum geti verið nokkuð stormasamt á heimilinu. Mér er ekki grunlaust um að ýmsir hafi verið að fást við það að stjórna fámennari einingum en alþýðusamtökunum í landinu án þess að það hafi haft það yfirbragð, að það væri nánast ekkert mál að stjórna þeim.
Það, sem ég skal láta verða mín lokaorð hér að þessu sinni, herra forseti, er að ég tel að eins og þetta frv. liggur fyrir í dag nái það ekki tilætluðum tilgangi, sem er og hlýtur að vera að auðvelda störf í verkalýðshreyfingunni, gera þau markvissari, gera þau það meira aðlaðandi að við getum vænst þess og treyst því, að fleiri og fleiri komi til starfa með okkur. Hins vegar tel ég að það hafi ekkert siðferðisbrot verið framið þó að hv. flm. kæmi með þetta mál hér inn á Alþingi. En eins og það liggur fyrir í dag treysti ég mér ekki til að mæla með því, að Alþingi samþykki frv., þvert á móti vísi því frá eða felli við atkvgr.