17.12.1981
Neðri deild: 26. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1742 í B-deild Alþingistíðinda. (1390)

136. mál, verðjöfnunargjald af raforku

Frsm. minni hl. (Jósef H. Þorgeirsson):

Herra forseti. Við hv. 6. þm. Reykv., Birgir Ísi. Gunnarsson, skilum séráliti um frv. til 1. um breyt. á lögum nr. 83/1974, um verðjöfnunargjald af raforku, ásamt síðari breytingum. Við teljum að þetta sé ákafleg ósanngjörn gjaldtaka og byggjum það fyrst og fremst á þeim sjónarmiðum, að gjaldtaka á raforkusölu hér á landi sé úr hófi mikil.

Á raforkusölu er hér lagður 23.5% söluskattur og einnig 19% verðjöfnunargjald. Samtals eru þessi gjöld til muna hærri en þekkist í nokkru nálægu landi við Ísland. Einnig teljum við að sú aðferð, sem viðgengist hefur lengi, að hafa þetta gjald í prósentutölu, sé framúrskarandi ósanngjörn og leiði til þess, að þeir, sem fyrir búa við hátt raforkugjald, verði að greiða enn þá hærra gjald eftir að gjaldið er lagt á. Við teljum sem fyrr, að það sé eðlilegt og sjálfsagt að leitað verði annarra úrræða til þess að leysa vanda Rafmagnsveitna ríkisins, og bendum á að verulegur hluti af framkvæmdum Rafmagnsveitna. ríkisins verður beinlínis að teljast til félagslegra framkvæmda og eigi þar af leiðandi að greiðast beint úr ríkissjóði. Ekki sé hægt að ætlast til þess að slíkar framkvæmdir greiðist af notendum raforkunnar.

Þrátt fyrir þessi sjónarmið okkar höfum við ákveðið að sitja hjá við atkvgr. um frv. og er það í samræmi við afstöðu okkar á s. l. ári.