17.12.1981
Neðri deild: 26. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1742 í B-deild Alþingistíðinda. (1391)

136. mál, verðjöfnunargjald af raforku

Magnús H. Magnússon:

Herra forseti. Ég skrifa undir nál. meiri hl. með fyrirvara og vil skýra ástæður þess. Ég tel að verðjöfnunargjaldið eigi að vera ákveðið gjald af orkueiningu, mismunandi þó eftir notkun, en ekki hundraðshluti á útsöluverð eins og nú er og eins og lagt er til í þessu frv., því að þá greiða þeir mest verðjöfnunargjald sem hæst raforkuverðið hafa.

Hæstv. iðnrh. sagði við 1. umr. um málið hér í þessari hv. deild, að þetta skipti minna máli en áður því að nú væri minni munur á verði. Nú væri t. d. verð hjá Rafmagnsveitum ríkisins og Orkubúi Vestfjarða ekki eins miklu hærra og áður var. Þetta er út af fyrir sig rétt. Nú er raforkuverð hjá Rafmagnsveitum ríkisins aðeins 25% hærra en raforkuverð í Reykjavík og raforkuverð hjá Orkubúi Vestfjarða aðeins 18% hærra en í Reykjavík, og er þá miðað við heimilistaxta. En þetta eru þau fyrirtæki sem eiga fyrst og fremst að njóta góðs af verðjöfnunargjaldinu. Þetta er rétt. En nú er bara svo komið, að það eru margar rafveitur á landinu sem eru með hærra raforkuverð en Rafmagnsveitur ríkisins og Orkubú Vestfjarða og verða að vera með hærra raforkuverð. Hér um bil helmingurinn af rafveitum landsins er kominn með hærra raforkuverð til heimilisnota heldur en Orkubú Vestfjarða og margar þeirra eru með hærra raforkuverð en Rafmagnsveitur ríkisins.

Heimilistaxti í Vestmannaeyjum er t. d. 7% hærri en hjá Rafmagnsveitum ríkisins og 14% hærri en hjá Orkubúi Vestfjarða. Og ef við förum í taxta fyrir stórar vélar er munurinn miklu meiri. Þá er í Vestmannaeyjum 35% hærra verð en hjá RARIK og 24% hærra en hjá Orkubúi Vestfjarða. Þetta háa verð í Vestmannaeyjum stafar fyrst og fremst af því, að það vantar mjög mikið á að Rafveita Vestmannaeyja hafi bitið úr nálinni með það hrikalega tap sem hún varð fyrir í eldgosinu 1973. Það halda ýmsir að Vestmanneyingar hafi grætt á gosinu, en því fer víðs fjarri. Auk þess greiðir Rafveita Vestmannaeyja nokkru hærra innkaupsverð en aðrar rafveitur vegna neðansjávarrafstrengsins.

En það er ekki aðeins Rafveita Vestmannaeyja sem er með hærri gjaldskrá en Rafmagnsveitur ríkisins og Orkubú Vestfjarða, það eru ýmsar aðrar rafveitur sem þurfa að gera það sama. Og í framhaldi af því má spyrja: Er réttlætanlegt að skattleggja sérstaklega menn, sem borga 1.07 kr. á kwst., til þess að lækka verð hjá þeim sem borga 94 aura, eins og nú er gert? Ég tel að það verði að fara varlega í það.

Ég er samþykkur verðjöfnunargjaldinu í grundvallaratriðum en tel að það þurfi endurskoðunar við. Auk þess tel ég miklu réttara að nota verðjöfnunargjaldið annaðhvort sem ákveðið gjald á orkueiningu eða þá sem gjald á heildsölu, því að erfiðleikar rafveitnanna koma aðallega fram í því, að ef skuldirnar eru miklar verður að leggja meira á en hjá hinum. Það er því miklu réttara að leggja gjaldið á sem ákveðna prósentu af innkaupsverðinu heldur en sem prósentu af útsöluverðinu.

En þó að ég sé óánægður með fyrirkomulagið á þessu vil ég ekki setja fót fyrir þetta frv. Það verður að samþykkja fyrir áramót vegna þess að annars félli verðjöfnunargjaldið niður. En ég skora á hæstv. iðnrh. að endurskoða þetta, taka ekki stórar upphæðir af þeim, sem borga hærra rafmagn, til þess að borga til þeirra sem borga lægra, heldur að nota jöfnunina á miklu víðtækari hátt en gert hefur verið. Ég skora á hann að endurskoða þetta og sömuleiðis hvort ekki sé réttara að leggja skattinn á innkaupsverð heldur en útsöluverð. Með þeim fyrirvara og á þeirri forsendu styð ég þetta frv.