17.12.1981
Neðri deild: 26. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1757 í B-deild Alþingistíðinda. (1407)
150. mál, tollskrá o.fl.
Árni Gunnarsson:
Herra forseti. Ég talaði um þetta mál fyrr í dag í röskar tvær mínútur og beindi þá fsp. til hæstv. fjmrh. sem ekki var viðstaddur. Ég vil taka það fram, að ég er í höfuðdráttum samþykkur þessu frv. og tel að það geti a. m. k. jafnað nokkuð kjör þeirra fyrirtækja sem nú eru að basla við að framleiða m. a. einingahús hér á landi við mjög erfiðar aðstæður, eins og raunar margur annar íslenskur iðnaður á við að búa, og nefndi ég t. d. húsgagna- og innréttingaiðnað sem lepur dauðann úr skel vegna samkeppni við erlendan varning.
Ég vil einnig taka undir það, sem hv. þm. Birgir Ísl. Gunnarsson sagði, að það er ekki forsvaranlegt að senda þetta frv. með því orðalagi sem á því er, þ. e. íslenskulega séð, frá þinginu. Það verður að gera þá kröfu til nefndarinnar, sem fær frv. í hendur, að hún bæti orðalag frv. þannig að allur almenningur skilji það.
En sú spurning, sem ég vildi beina til hæstv. ráðh., er varðandi setningu á 3. síðu í athugasemdum við lagafrv., en þar finnst mér ekki vera tekið nógu tryggilega til orða. Ég vildi fá svar frá ráðh. um það, hvort hann teldi að búið væri að ganga þannig frá málinu og sjá til þess að þarna væru ekki nein vafaatriði á ferðinni, en hér segir orðrétt, með leyfi hæstv. forseta: „Með álagningu jöfnunarálags er ekki talið að farið sé út fyrir þau takmörk sem aðildarsamningur Íslands að Fríverslunarsamtökum Evrópu og samningur við Efnahagsbandalag Evrópu setur okkur, svo framarlega sem jöfnunarálagið er ekki hlutfallslega hærra en nemur þeim kostnaðarauka sem leggst á innlenda framleiðslu vegna uppsöfnunar aðflutningsgjalda og gerir hana að því leyti ósamkeppnisfæra við innfluttar vörur.“
Hér er sagt: „er ekki talið“. Þess vegna vil ég spyrja ráðh. að því, hvort ekki sé búið að ganga úr skugga um það, þegar frv. af þessum toga spunnið er lagt fram á hinu háa Alþingi, hvort lög sem yrðu væntanlega sett í framhaldi af því, kynnu að brjóta í bága við þá samninga sem Íslendingar hafa undirritað og gert við m. a. Fríverslunarsamtök Evrópu, EFTA. (Fjmrh.: Svarið er jú.) Svarið er jú. Þá þarf ég ekki að hafa þessi orð fleiri, herra forseti, og vænti þess, að þetta einfalda jú ráðh. tryggi að það sé búið að ganga fyllilega úr skugga um að þetta brjóti ekki í bága við samningana.