22.10.1981
Sameinað þing: 7. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 173 í B-deild Alþingistíðinda. (141)

Stefnuræða forseta og umræða um hana

Forseti (Jón Helgason):

Útvarpsumræðan skiptist í tvær umferðir. Í fyrri umferð hefur forsrh. til umráða allt að hálfri klukkustund og fulltrúar þingflokka 20 mínútur hver. Í síðari umferð hefur hver flokkur 10 mínútur til umráða og einnig stuðningsmenn ríkisstj. í Sjálfstfl.

Röðin verður þessi í báðum umferðum: Forsrh., Sjálfstfl., Framsfl., Alþfl. og Alþb. Af hálfu Sjálfstfl. talar Geir Hallgrímsson, 1. þm. Reykv., í fyrri umferð, en Pétur Sigurðsson, 1. landsk. þm., í þeirri síðari. Af hálfu Framsfl. talar Steingrímur Hermannsson sjútvrh. í fyrri umferð, en Tómas Árnason viðskrh. í þeirri síðari. Af hálfu Alþfl. tala Kjartan Jóhannsson, 2. þm. Reykn., og Karvel Pálmason, 6. landsk. þm., í fyrri umferð, en Sighvatur Björgvinsson, 3. þm. Vestf., í þeirri síðari. Af hálfu Alþb. tala Svavar Gestsson félmrh. og Guðrún Helgadóttir, 8. landsk. þm., í fyrri umferð, en Stefán Jónsson, 4. þm. Norðurl. e., í þeirri síðari. Af hálfu stuðningsmanna ríkisstj. í Sjálfstfl. tala í síðari umferð Friðjón Þórðarson dómsmrh. og Pálmi Jónsson landbrh.