22.10.1981
Sameinað þing: 7. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 173 í B-deild Alþingistíðinda. (142)
Stefnuræða forseta og umræða um hana
Forsrh. (Gunnar Thoroddsen):
Herra forseti. Hlustendur góðir. Stefna ríkisstj. í efnahagsmálum byggir á þeirri meginforsendu, að árangurs sé því aðeins að vænta að tekið sé á öllum þáttum efnahagsmála í senn og jafnvægis leitað á öllum sviðum. Þetta grundvallaratriði er sett fram í stjórnarsáttmála ríkisstj., en þar segir:
„Ríkisstj. mun berjast gegn verðbólgunni með aðhaldsaðgerðum, er varða verðlag, gengi, peningamál, fjárfestingu og ríkisfjármál.“
Þessi viðleitni til heildarsýnar og jafnvægis hefur ríkisstj. að leiðarljósi. Á þessu byggist efnahagsáætlun ríkisstj. frá síðustu áramótum, en þar er höfuðmarkmiðum lýst svo:
„Í fyrsta lagi að efla atvinnulífið og tryggja öllum landsmönnum næga atvinnu.
Í öðru lagi að draga svo úr hraða verðbólgunnar, að hún lækki í um 40% á árinu 1981.
Í þriðja lagi að tryggja kaupmátt launafólks.“
Eftir þessari áætlun hefur verið unnið með góðum árangri.
Tekist hefur að tryggja landsmönnum næga atvinnu á meðan grannþjóðir stynja undir böli atvinnuleysis. Atvinnuástand hefur í heild verið gott þrátt fyrir einstök staðbundin vandamál og erfiðleika í sumum greinum atvinnulífs.
Tekist hefur að draga svo úr hraða verðbólgunnar, að hún verður um eða innan við 40% í ár, eins og að var stefnt, í stað 60% verðbólgu tveggja undangenginna ára.
Tekist hefur að vernda kaupmátt þannig að hann er nú ívið meiri en orðið hefði án efnahagsaðgerðanna um áramót. Kaupmáttur ráðstöfunartekna hefur vaxið á þessu ári.
Við Íslendingar höfum því náð umtalsverðum árangri í efnahags- og atvinnumálum á yfirstandandi ári. Þessi árangur er athyglisverður þegar litið er til hins alvarlega efnahagsástands víðast hvar í heiminum. Í flestum nágrannalöndum okkar einkennist ástand efnahagsmála af jafnvægisleysi og meiri vandamálum á því sviði en oftast áður á síðustu áratugum. Nágrannaþjóðirnar flestar búa við meira atvinnuleysi en þekkst hefur frá því í heimskreppunni fyrir hálfri öld. Verðbólgan er að vísu minni í þessum löndum en á Íslandi, en víðast hvar er mikill halli í utanríkisviðskiptum og ríkisfjármálum, þjóðarframleiðslan hefur ekki aukist, jafnvel minnkað, kaupmáttur almennings rýrnað eða staðið í stað. Ekki fer hjá því að efnahagserfiðleikar annarra þjóða hafi áhrif á þjóðarbúskap Íslendinga og setji rekstri hans skorður, en okkur hefur tekist að sigla fram hjá þessum skerjum stóráfallalaust og halda betra jafnvægi á flestum sviðum efnahagsmála en grannþjóðum okkar yfirleitt.
Ríkisstj. mun á næsta ári fylgja í grundvallaratriðum sömu stefnu í efnahagsmálum og nú í ár. Áfram verður stefnt að fullri atvinnu, hjaðnandi verðbólgu, verndun kaupmáttar. Þessu hyggst ríkisstj. ná fram með því að beita aðhaldi í fjárfestingu, gengismálum, peningamálum, ríkisfjármálum og verðlagsmálum.
Þó að mikilvægur árangur hafi náðst í ár er verðbólgan enn þá mikil meinsemd í efnahagslífinu. Ekki má lina þau tök sem verðbólgan hefur verið tekin á þessu ári. Verðbólgan minnkaði í ár um þriðjung, mælt frá upphafi til loka árs, úr tæpum 60 í um 40%. Á komandi ári mun ríkisstj. leggja höfuðáherslu á að þrýsta verðbólgunni enn verulega niður í samræmi við það meginmarkmið að koma verðbólgunni svo fljótt sem kostur er niður á svipað stig og er í helstu viðskiptalöndum okkar. Með þeim árangri, sem náðst hefur á þessu ári, og þeim skrefum, sem fyrirhuguð eru á næsta ári, skapast möguleikar til þess að ná betra jafnvægi og meiri stöðugleika en verið hefur um langt árabil.
Það er trú ríkisstj., að unnt sé að ná þessu marki án þess að fórna öðrum meginmarkmiðum í efnahagsmálum, þ. e. fullri atvinnu og óskertum kaupmætti. Hér skiptir sköpum að aðilar vinnumarkaðarins semji svo um kaup og kjör að markmiðum um fulla atvinnu og hjaðnandi verðbólgu verði ekki teflt í tvísýnu. Hér þarf að koma til samstillt átak aðila vinnumarkaðar og ríkisvalds.
Halli í ríkisfjármálum og skuldasöfnun í Seðlabanka er ein af meginástæðum þess óstöðugleika og verðþenslu sem einkennt hefur íslenskt efnahagslíf um langt árabil. Á síðasta ári hafði ríkissjóður bæði rekstrarafgang og greiðsluafgang í fyrsta sinn um langt skeið. Allt bendir til þess að afkoma ríkissjóðs í ár verði góð. Þannig hefur í ár og í fyrra ekki einungis tekist að halda jöfnuði í rekstri ríkissjóðs, heldur hefur einnig reynst unnt að greiða stórar fjárhæðir til Seðlabanka til lækkunar á þeim skuldum sem safnast höfðu við hallarekstur ríkissjóðs á fyrri árum. Ráðgert er að á þessu ári takist að koma skuldum ríkissjóðs við Seðlabankann niður í fjárhæð sem nemur rúmlega 1,5% af þjóðarframleiðslu, en það þýðir að þessi skuld hafi minnkað um meira en helming að raungildi á tveimur árum.
Í fjárlagafrv. fyrir næsta ár er enn stefnt að afgangi í ríkisrekstrinum. 120 millj. kr. eru ætlaðar til greiðslu á þessum gömlu yfirdráttarskuldum við Seðlabankann.
Þessi árangur í ríkisfjármálum hefur náðst með því að beita aðhaldi í rekstri stofnana og fyrirtækja ríkisins. Á næsta ári verður áfram haldið á sömu braut.
Nokkur skattalækkun varð í ár samkv. efnahagsáætlun ríkisstj. um síðustu áramót. Hlutfall útgjalda ríkisins í þjóðarframleiðslunni gefur gleggsta mynd af heildarskattlagningu. Þetta hlutfall varð hæst 30.4% um miðjan áttunda áratug, var rúm 29% tvö síðustu árin áður en núv. ríkisstj. tók til starfa, varð 28.5% í fyrra, verður væntanlega um 28.2% í ár og um 28% á næsta ári.
Undanfarinn áratug hefur sú háskalega þróun átt sér stað í peningamálum, að sparifjármyndun landsmanna hefur minnkað ár frá ári. Þetta hefur stuðlað að jafnvægisleysi á fjármagnsmarkaði og í utanríkisviðskiptum. Þessi þróun hefur nú snúist við. Sparifé landsmanna hefur tekið að vaxa á ný og hefur aukist ört á þessu ári.
Hlutfall innlána af þjóðarframleiðslu var fyrir þremur árum komið niður í 21.5%. Það hækkaði í fyrra upp í 23.8 og í ár í 26.5%. Horfur eru á að þessi hagstæða þróun haldi áfram á árinu 1982 og í hlutfall innlána af þjóðarframleiðslu hækki þá í um 29% og yrði þá hærra en verið hefur síðustu 8 ár. Þannig hefur fjármagnsmarkaðurinn komist í betra jafnvægi í ár en verið hefur um langt árabil. Þetta er flestu öðru þýðingarmeira fyrir atvinnulífið og fyrir stöðugleika í efnahagsmálum.
Tekist hefur að verðtryggja flestar tegundir inn- og útlána á þessu ári, þrátt fyrir að vextir hafi tvívegis verið lækkaðir á árinu. Vextir og verðbólga hafa þannig náðst saman með hjöðnun verðbólgu, en ekki með vaxtahækkunum. Almenningur getur nú lagt fé sitt fyrir án ótta við rýrnun þess af völdum verðbólgunnar. Þetta hefur dregið úr þeim verðbólguhugsunarhætti sem verið hefur hér landlægur um langt árabil.
Hluti peningamálastefnu ríkisstj. hefur verið að hafa strangt taumhald á útlánum banka. Á síðasta ári var gripið til sérstakra ráðstafana til þess að hefta þróun útlána sem var mjög óhagstæð framan af árinu. Þessar ráðstafanir báru góðan ávöxt. Það kom hins vegar í ljós snemma á þessu ári að þörf var á viðbótarráðstöfunum. Til þess að styrkja enn frekar peningamálastjórn beitti ríkisstj. sér fyrir í lok aprílmánaðar í ár að upp væri tekin sveigjanleg binding innlánsstofnana hjá Seðlabankanum.
Stefna ríkisstj. á næsta ári mun áfram beinast að því að þróun peningamála styðji þá viðleitni að draga verulega úr verðbólgu.
Með efnahagsáætlun ríkisstj. um áramót urðu umskipti í gengismálum. Horfið var frá gengissigi, þ. e. hægfara en mjög tíðri lækkun krónunnar. Þess í stað var ákveðið að stefna að stöðugu gengi og miðað við meðalgengi erlendra gjaldmiðla. Um nálega 5 mánaða skeið tókst að halda gengi íslensku krónunnar óbreyttu gagnvart meðalgengi helstu viðskiptalanda okkar. Í lok maí var gengi krónunnar lækkað um tæplega 4%. Í ágústlok var gengið að nýju lækkað og þá um tæplega 5%.
Vegna þessarar stefnubreytingar í gengismálum hefur gengi íslensku krónunnar ekki verið jafnstöðugt um langt árabil. Á hinn bóginn hefur gengi gjaldmiðla helstu viðskiptaþjóða okkar breyst mjög innbyrðis á þessu ári. Þetta hefur valdið nokkrum erfiðleikum í ýmsum atvinnugreinum, en hefur um leið verið búhnykkur fyrir aðrar atvinnugreinar. Þessi misjafna gengisþróun erlendra gjaldmiðla er algjörlega af erlendum toga.
Ríkisstj. stefnir áfram að stöðugu gengi ísl. krónunnar. Þegar litið er til langs tíma verður að miða gengisskráningu við að jafnvægi haldist í viðskiptum við önnur lönd og að tryggður sé rekstrargrundvöllur útflutningsatvinnuvega og þeirra atvinnugreina sem eiga í samkeppni við innflutning. Ríkisstj. mun miða stefnu sína við þetta grundvallarsjónarmið, en jafnframt gæta ítrustu aðhaldssemi í gengismálum.
Á þessu ári hefur dregið úr halla á utanríkisviðskiptum Íslendinga. Horfur eru á að hallinn á viðskiptum landsmanna við útlönd verði á þessu ári aðeins um 1/2% af þjóðarframleiðslu. Í fyrra var þetta hlutfall um 2.4% af þjóðarframleiðslu. Allt frá því að olíuverð tók að hækka snemma á síðasta áratug hafa flest vestræn ríki búið við halla á viðskiptum við útlönd. Svo er enn. Íslendingum hefur tekist að ná hér betra jafnvægi.
Mörg undanfarin ár hefur heildarfjárfesting landsmanna verið umfram getu þjóðarbúsins. Í stjórnarsáttmála ríkisstj. var sett fram það markmið að heildarfjárfesting nemi um fjórðungi af þjóðarframleiðslu. Þessu markmiði hefur verið náð á þessu ári. Fjárfesting er talin verða í ár rúm 25% af þjóðarframleiðslu. Á næsta ári er gert ráð fyrir að heildarfjárfesting verði um 24% af þjóðarframleiðslunni. Með þessu er stefnt að því að færa fjármagnsmyndun nær heildarsparnaði þjóðarinnar og draga úr viðskiptahalla.
Með auknum sparnaði landsmanna aukast möguleikar á að fjármagna fjárfestingu með innlendu sparifé fremur en erlendum lántökum. Þróun peningamála á þessu ári gefur tilefni til bjartsýni á þessu sviði.
Atvinnuástand hefur verið gott á þessu ári þegar á heildina er litið. Tekist hefur að tryggja þeim fjölda manna, sem á vinnumarkaðinn koma á hverju ári, næga atvinnu. Um langt skeið hefur töluverður fjöldi fólks flust á ári hverju til útlanda. Á síðustu misserum hefur þessi brottflutningur fólks verið minni en oft áður. Þetta er þó enn nokkurt áhyggjuefni sem ríkisstj. hefur í huga við mótun stefnu sinnar í atvinnumálum.
Um leið og reynt er að tryggja jafna atvinnu og næga verður að gæta þess eins vel og kostur er að koma í veg fyrir ofþenslu. Á næsta ári verður sú viðleitni efld og reynt að stuðla að aukinni hagkvæmni í fjárfestingu hins opinbera. Forsenda nægrar og öruggrar atvinnu fyrir vaxandi fjölda fólks er traust og þróttmikið atvinnulíf. Staða atvinnuveganna verður best styrkt með því að auka framleiðslu og draga með því úr innlendum kostnaði.
Hjöðnun verðbólgu er afar mikilvæg fyrir atvinnulífið í landinu, forsenda tryggari afkomu og aukinnar framleiðni, skilyrði fyrir vexti atvinnulífs og þjóðartekna í framtíðinni. Miklu skiptir að unnt verði að tryggja þann árangur sem þegar hefur náðst í verðlagsmálum, peningamálum, ríkisfjármálum og viðskiptum við útlönd. Það er sá grunnur sem hagvöxtur næstu ára byggir á.
Um leið og áfram verður beitt aðhaldsaðgerðum á öllum sviðum efnahagsmála hefur ríkisstj. undirbúið sókn í atvinnumálum til aukningar framleiðslutekna þjóðarinnar. Þannig eru nú áformuð stærri skref í virkjun vatnsafls en áður hafa verið stigin. Virkjun þessarar miklu auðlindar Íslendinga er undirstaða þeirrar sóknar í atvinnumálum sem nú er undirbúin. Ríkisstj. hefur þegar aflað heimildar Alþingis til þess að reisa og reka fjórar virkjanir, auk stækkunar Hrauneyjafossvirkjunar og ráðstafana til að tryggja betur en nú er rekstur orkuveranna á Þjórsársvæði og að auka orku þeirra.
En það verður aldrei nægilega undirstrikað, að þessi sókn í atvinnumálum mun því aðeins skila Íslendingum bættum lífskjörum að unnt verði að ná og viðhalda jafnvægi og stöðugleika í þjóðarbúskapnum. Hér sem annars staðar verður að hafa heildarsýn og stilla saman þau markmið sem að er keppt.
Í efnahagsáætlun ríkisstj. frá áramótum var ákveðið að fylgja aðhaldssamri stefnu í verðlagsmálum á fyrstu fjórum mánuðum ársins. Þessi ákvörðun var nauðsynlegur þáttur í þeirri heildarstefnu sem mótuð var í efnahagsmálum á þeim tíma. Að liðnum fyrstu fjórum mánuðum ársins var tekin upp sveigjanlegri stefna í verðlagsmálum. Ríkisstj. hefur sett ársfjórðungsleg markmið um verðhækkanir sem er ætlað að vera almenn stefnuviðmiðun fyrir meðferð verðlagsmála. Það er hins vegar ljóst, að ef ákvarðanir verðlagsyfirvalda eru meira og minna bundnar við fyrir fram ákveðin mörk um langt tímabil, jafnvel þó að sé að ræða sveigjanlega meginreglu, þá er hætta á að misvægi skapist í efnahagslífinu vegna þess að atvinnustarfsemi í sífelldri þróun þarfnast misjafnlega mikilla verðbreytinga. Sveigjanleg stefna í verðlagsmálum er því forsenda heilbrigðrar þróunar atvinnulífs ef horft er til lengri tíma.
Ríkisstj. stefnir að því, að þegar betra jafnvægi hefur náðst í þjóðarbúskapnum verði verðlagskerfið gert sveigjanlegra. Í þessu skyni er nú unnið að endurskoðun á verðlagsstefnunni í ljósi efnahagsþróunar á þessu ári og með tilliti til horfa á næstu misserum. Ríkisstj. hefur til athugunar ýmis atriði sem hníga í átt til aukins frjálsræðis í viðskiptum og verðlagsmálum.
Fyrir þetta löggjafarþing verður lagt frv. til laga um greiðslufrest á aðflutningsgjöldum eða tollkrít. Þetta hefur verið baráttumál verslunarinnar um langt árabil, og er að því stefnt að nýtt skipulag þessara mála taki gildi á næsta ári. Þetta og fleiri atriði, sem til athugunar eru, mun stuðla að lægra innflutningsverði þegar fram í sækir.
Þorskafli Íslendinga verður meiri á þessu ári en í fyrra. Annar botnfiskafli verður að líkindum einnig nokkru meiri nú í ár. Hins vegar hefur loðnuafli það sem af er þessu ári verið til mikilla muna minni en á sama tíma í fyrra. Heildarverðmæti þess afla, sem á land kemur, verður að líkindum um 2% meira en í fyrra.
Allan síðasta áratug hefur útgerðin að mati Þjóðhagsstofnunar verið rekin með umtalsverðum halla. Í ár hefur afkoma útgerðarinnar í heild verið skárri en undangengin 10 ár. Horfur eru á að vinnsla sjávarafurða verði heldur meiri í ár en í fyrra.
Afkoma hinna ýmsu greina fiskverslunar er mjög misjöfn. Verkun saltfiska og skreiðar er rekin með verulegum hagnaði. Afkoma frystingar er lakari. Veiðar og vinnsla á loðnu eiga nú við mikla erfiðleika að etja vegna mikils verðfalls á loðnuafurðum á erlendum mörkuðum. Þegar litið er á allar greinar í heild er afkoma fiskvinnslunnar jákvæð.
Á þessu ári hefur verið fylgt í höfuðatriðum sömu fiskveiðistefnu og áður, en sú ákvörðun var tekin að undangengnum ítarlegum viðræðum við alla hagsmunaaðila svo og umfjöllun í nefnd sem m. a. var skipuð öllum þeim mönnum sem gegnt hafa embætti sjútvrh. á síðasta áratug.
Ljóst er að með einhverjum hætti verður að tryggja betri samræmingu veiða og vinnslu en náðst hefur með þessari fiskveiðistefnu. Einnig verður að auka gæði framleiðslunnar. Ýmsar leiðir, sem stefna í þessa átt, eru nú í athugun hjá sjútvrn.
Í iðnaðarmálum er unnið að allmörgum veigamiklum verkefnum. Höfuðmarkmið þessarar vinnu eru þrjú: Að bæta starfsskilyrði almenns iðnaðar og auka framleiðni hans: að efla samkeppnisfæran nýiðnað er byggi á heimamarkaði og útflutningi: að leggja grundvöll að orkufrekum iðnaði sem byggi á íslensku forræði og skynsamlegri hagnýtingu orkulinda. Þessar aðgerðir eru liður í stefnumörkun um iðnþróun til langs tíma sem ríkisstj. fjallar nú um, og verður flutt till. til þál. um iðnaðarstefnu á þessu þingi.
Við margháttuð vandamál hefur verið að etja í útflutnings- og samkeppnisiðnaði að undanförnu, m, a. vegna misvægis í gengisþróun erlendis. Unnið hefur verið að ýmsum lagfæringum á stöðu þessa iðnaðar.
Ríkisstj. vinnur nú að athugun á leiðum til að jafna starfsskilyrði iðnaðar. Auk þess er nú unnið að ýmsum aðgerðum til eflingar iðnaði. Má þar nefna ráðgjöf og starfsmenntun í þágu iðnaðar, ráðstafanir til eflingar iðnaðar á landsbyggðinni, aukið framlag til Útflutningsmiðstöðvar iðnaðarins, áætlun um innlenda endurnýjun bátaflotans og almenna áherslu á rannsóknar- og þróunarstörf í þágu atvinnulífsins.
Í orkumálum eru í undirbúningi meiri framkvæmdir en áður hafa þekkst. Undanfarin ár hefur höfuðáhersla verið lögð á að auka hlutdeild innlendrar orku í heildarorkunotkun landsmanna. Þetta hefur einkum verið gert með miklum framkvæmdum við hitaveitur. Meginviðfangsefni í raforkuframkvæmdum á næstunni verða: Að ljúka virkjunarframkvæmdum við Hrauneyjafoss, en þær ganga nú samkv. áætlun og mun fyrsta vél virkjunarinnar verða tekin í rekstur næstu daga og önnur síðar í vetur; að auka vatnsöflun til núverandi orkuvera og tryggja rekstur þeirra með umfangsmiklum framkvæmdum á Þjórsársvæðinu; að halda áfram undirbúningi og hefja framkvæmdir við næstu stórvirkjanir fyrir landskerfið.
Ríkisstj. hefur þegar aflað sér heimildar Alþingis til fjögurra nýrra vatnsaflsvirkjana. Þessar virkjanir eru allar komnar á verkhönnunarstig.
Einnig á að ljúka hringtengingu byggðalína og auka flutningsgetu og öryggi raforkukerfisins. Suðausturlína verður tekin í notkun í nóv. n. k. og stefnt er að því að loka hringnum með lagningu Suðurlínu á næstu árum.
Orkustefnunefnd ríkisstj. vinnur nú að athugun og undirbúningi ýmissa framkvæmda á sviði orkufreks iðnaðar. Ýmis stórbrotin verkefni fyrir íslenskan iðnað munu tengjast hagnýtingu orkulindanna. Á því sviði verður stefnt að því að treysta innienda forustu og frumkvæði.
Á síðasta ári var gripið til samdráttaraðgerða í mörgum framleiðslumálum landbúnaðarins sem miðuðu að því að laga framleiðslumagnið að markaðsaðstæðum. Framleiðsla mjólkur hefur nú verið löguð að þörfum innlenda markaðarins og má tæpast dragast meira saman. Stefnt er að því að framleiðsla sauðfjárafurða byggist áfram að hluta til á útflutningi, eftir því sem markaðsaðstæður leyfa.
Samdrætti búvöruframleiðslunnar hafa fylgt ýmsir erfiðleikar fyrir bændur og hefur ríkisstj. mætt þeim á ýmsan hátt, m. a. með útvegun fjármagns umfram lögboðnar útflutningsbætur. Ekki er gert ráð fyrir að sérstök fyrirgreiðsla af þessu tagi verði viðvarandi.
S. l. tvö ár hefur verið unnið að eflingu annarra búgreina, einkum fiskræktar, garðræktar og ylræktar, ásamt aukinni nýtingu hlunninda og annarra landgæða. Áfram verður haldið á þeirri braut.
Tillaga um nýja landgræðsluáætlun verður lögð fyrir Alþingi í vetur.
Ríkisstj. hefur nú til athugunar tillögur sem miða að lausn þeirra vandamála sem óvenjuleg harðindi hafa valdið í landbúnaði á þessu ári.
Stórhuga stefna hefur verið mörkuð í vegamálum. Þegar í fyrra var hafið nýtt átak til að auka lagningu bundins slitlags á þjóðvegakerfið. Í vor var síðan samþykkt á Alþingi ný vegáætlun sem gerir ráð fyrir stórauknu fjármagni til uppbyggingar vegakerfisins. Framlög til vegamála hafa í samræmi við þetta verið aukin verulega að raungildi.
Fram til ársins í fyrra var mest lagt bundið slitlag á 40 km á ári og stundum miklu minna. Í fyrra var þetta aukið í 90 km. Í ár er gert ráð fyrir að lokið verði við 150 km bundins slitlags. Á næsta ári verður þetta enn aukið. Þannig verður sá hluti þjóðvegakerfisins, sem lagður er bundnu slitlagi, talsvert meira en tvöfaldaður á skömmum tíma.
Samþykki hefur verið langtímaáætlun í vegamálum sem gerir ráð fyrir enn auknum fjárframlögum til þessara mála. Lokið verður við að leggja bundið slitlag á 3 þús. km af þjóðvegakerfi landsmanna á röskum áratug.
Ríkisstj. hefur ákveðið að gera stórátak í öryggismálum innanlandsflugs.
Miklir erfiðleikar hafa verið á síðustu misserum í millilandaflugi Flugleiða. Eftir þá aðstoð, sem ríkisstj. veitti Flugleiðum á síðasta ári, horfir heldur bjartar um framtíð þessa flugrekstrar.
Að frumkvæði ríkisstj. hefur verið unnið að því að færa viðhald á flugflota Flugleiða til Íslands. Nokkuð hefur áunnist í þessum efnum og verður áfram unnið að þeim.
Í stjórnarsáttmálanum eru rakin nokkur fyrirheit um umbætur, framkvæmdir og nýmæli á sviði mennta- og menningarmála. Að þessu hefur verið unnið og fyrir þetta löggjafarþing verða lögð nokkur frumvörp til laga um þessi mál. Má þar nefna framhaldsskóla og skólakostnað, Lánasjóð ísl. námsmanna, Sinfóníuhljómsveit Íslands og Listskreytingasjóð.
Á þessu ári hefur verið unnið af kappi að byggingu þjóðarbókhlöðu, en um það var gefið sérstakt fyrirheit í stjórnarsáttmála. Byggingin er vel á veg komin og verður unnið að henni á næsta ári.
Þá má nefna að starfsemi Lánasjóðs ísl. námsmanna hefur verið efld verulega á starfstíma ríkisstjórnarinnar. Í félags- og heilbrigðismálum er áfram unnið að framkvæmd þeirrar stefnu sem er mörkuð í stjórnarsáttmálanum. Þá eru í undirbúningi ýmis málefni sem koma munu til kasta Alþingis. Þar má nefna frv. til l. um umhverfismál.
Á ári fatlaðra hafa margir málaflokkar verið til meðferðar á vegum sérstakrar stjórnskipaðrar nefndar, Framkvæmdanefndar alþjóðaárs fatlaðra. Þá er til meðferðar í ríkisstj. frv. til laga um málefni fatlaðra.
Árið 1982 er sérstakt ár aldraðra samkvæmt ákvörðun Sameinuðu þjóðanna. Í fjárlagafrv. er gert ráð fyrir stórátaki í þeim efnum á næsta ári.
Í samræmi við löggjöf frá síðasta ári um húsnæðismál hefur ríkisstj. beitt sér fyrir miklu átaki í byggingu verkamannabústaða. Hundruð nýrra íbúða verða byggð á ári hverju í samræmi við þessi lög. Þetta mun draga verulega úr þeim húsnæðisvanda sem víða er fyrir hendi, bæði fyrir þá, sem beint njóta fyrirgreiðslu af þessu tagi, og einnig fyrir aðra, því þetta mun létta á hinum almenna markaði án þess að dregið verði úr fyrirgreiðslu til almenna húsnæðislánakerfisins.
Útlánageta byggingarsjóða ríkisins mun vaxa hröðum skrefum eða um 20% að raunvirði á milli þessa árs og næsta. Mest er þessi aukning í útlánagetu Byggingarsjóðs verkamanna, en einnig verður raunveruleg aukning í getu Byggingarsjóðs ríkisins til þess að annast þau verkefni sem honum eru falin eftir þessa breytingu.
Ofneysla vímuefna hefur um langt skeið verið vaxandi í íslensku þjóðfélagi. Þetta mikla vandamál snertir flestar íslenskar fjölskyldur á einn eða annan hátt. Þjóðin öll verður hér að snúast til varnar. Ríkisstj. mun hafa forgöngu um átak á þessu sviði.
Á vettvangi dómsmála hefur verið unnið að umbótum á löggjöf sem stuðlar að hraðari meðferð dómsmála, m. a. með því að einfalda meðferð minni háttar mála. Unnið verður áfram að því að gera meðferð dómsmála greiðari og auðvelda mönnum að ná rétti sínum.
Í utanríkismálum verður fylgt óbreyttri stefnu.
Í stjórnarsáttmála ríkisstj. er sérstaklega kveðið á um að ríkisstj. muni beita sér fyrir samningum við Norðmenn til þess að tryggja fiskveiðiréttindi Íslendinga á Jan Mayensvæðinu og fullnægja vernd fiskistofnanna þar. Þetta hefur nú tekist með tveim samningum við Norðmenn og verður sá síðari undirritaður um þessar mundir.
Samkvæmt ákvæði í stjórnarsáttmála hefur verið lögð sérstök áhersla á að taka virkan þátt í samstarfi Norðurlandaþjóða og efla norræna samvinnu á allan hátt.
Það, sem einkennt hefur þjóðarbúskap Íslendinga á þessu ári öðru fremur, er að betra jafnvægi og meiri stöðugleika hefur gætt í efnahagslífinu en verið hefur um langt árabil. Verðbólgan hefur hjaðnað verulega. Þetta hefur tekist án þess að færa fórnir atvinnuleysis og rýrnandi lífskjara eins og aðrar þjóðir hafa fært í þessari sömu baráttu. Ríkisfjármál og peningamál eru í betra jafnvægi en verið hefur á síðari árum. Viðunandi jafnvægi hefur náðst í viðskiptum við útlönd. Gengi hins íalenska gjaldmiðils hefur haldist stöðugra en verið hefur um langt skeið. Þjóðarframleiðslan hefur aukist meira en gert var ráð fyrir. — Þetta hefur tekist á einhverjum mestu umhleypingatímum í alþjóðaefnahagsmálum.
Á næsta ári munu erfiðleikar í efnahagsmálum heimsins og þau slæmu viðskiptakjör, sem við höfum búið við á seinustu misserum, sniða vexti framleiðslu og tekna þjóðarinnar þröngan stakk. Viðskiptakjör Íslendinga eru nú 12–14% lakari en þau voru á árinu 1978. Ekki eru horfur á að viðskiptakjör batni á næsta ári. Raunar bendir ýmislegt til þess, að sá litli bati á viðskiptakjörum, sem fram kom á þessu ári, mun að miklu leyti hverfa á því næsta. Við Íslendingar getum því ekki vonast eftir aðstoð af erlendum toga við lausn okkar efnahagsmála. Þess í stað verðum við enn um sinn að miða stefnuna við ókyrran sjó í alþjóðaefnahagsmálum.
Við þessar aðstæður getum við ekki búist við verulegri aukningu þjóðarframleiðslu eða þjóðartekna á næsta ári. Þó er gert ráð fyrir að á næsta ári vaxi útflutningsframleiðsla okkar um 4% og þjóðarframleiðsla um 1%. Þjóðartekjur munu vaxa minna vegna versnandi viðskiptakjara.
Með auknum stöðugleika og jafnvægi í efnahagsmálum erum við að leggja grunninn að sókn til bættra lífskjara. Þennan grunn verðum við að treysta enn. Því verðum við á næsta ári að sýna áfram gætni og festu í efnahags- og kjaramálum til þess að þessi árangur ónýtist ekki. Því betur sem við treystum þennan grunn, því fyrr mun atvinnulíf okkar blómgast og lífskjör batna.