18.12.1981
Neðri deild: 28. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1809 í B-deild Alþingistíðinda. (1443)

42. mál, ráðstafanir vegna breytingar á gengi íslenskrar krónu

Sjútvrh. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Ég stend fyrst og fremst upp til að þakka hv. þm. fyrir upplestur úr ræðum mínum. Ég get útvegað honum margar fleiri sem hann gæti þá einnig lesið úr, og hann mun sjá að það er fullt samræmi í því sem ég hef sagt um þau mál sem hann gerir hér að umtalsefni og beindi til mín spurningum um.

Í fyrsta lagi geri ég mjög mikinn mun — það hefur ætíð komið fram — á verðtryggingu og hávaxtastefnu. Ég var um tíma orðinn nokkuð hlynntur hugmyndum Alþfl. um hávaxtastefnu, en hef algerlega snúist gegn þeim og tel þær rangar. Sá mikli munur er á verðtryggingarstefnunni og hávaxtastefnunni, sem ég hef reyndar ekki heyrt hv. þm. nota um stefnu Alþfl. fyrr en nú, að með verðtryggingarstefnunni er gert ráð fyrir að endurlána verulegan hluta af höfuðstól við hverja greiðslu, en með hávaxtastefnunni er að sjálfsögðu, eins og hv. þm. er vel kunnugt um, gert ráð fyrir að greiða verðtryggingu í raun og veru og vextina að fullu.

Ég vil hins vegar taka undir það hjá hv. þm., að það er rétt að ekki hefur tekist að lengja þessi lán eins og þörf er á. Ég er honum sammála um það. Að vísu hafa lánin verið lengd nokkuð, en það þarf að gera töluvert meira. Það er enn galli á þessari verðtryggingarstefnu, sem eins og ég segi er allt annað en hávaxtastefna sú sem fulltrúar Alþfl. fluttu langar og miklar ræður um hér á hinu háa Alþingi á sínum tíma.

Það er líka töluverður munur á fjármagnskostnaði og verðtryggingu inn- og útlána. Fjármagnskostnaður felst í ýmsu öðru. Hann felst m. a. í því, hve vextir eru háir ofan á verðtrygginguna. Hann getur falist í því, hve dráttarvaxtagreiðsla er mikil. Ég hef áður lýst því hér, m. a. í þeim ræðum sem hv. þm. vísaði til, að ég tel að dráttarvaxtagreiðsla, greiðsla á stimpilgjöldum og alls konar bankakostnaði, sem ég hef m. a. lýst úr þessum ræðustól og tekið dæmi um, þar sem ein ákveðin útgerð varð að greiða 437 þús. kr. í alls konar stimpilgjöld og staðfestingargjöld, bankakostnað, áhættugjald o. fl., teljist allt saman til fjármagnskostnaðar. Í þeirri athugun, sem ég hef látið gera í sjútvrn. á stöðu 19 togara sem hér hefur æðioft verið vísað til, kemur einmitt fram að þessi fjármagnskostnaður ýmiss konar er orðinn óheyrilega hár, en ekki út af fyrir sigverðtryggingarkostnaðurinn. Ég hef hvað eftir annað lýst því, að ég tel að þessa ýmsu liði fjármagnskostnaðar þurfi að endurskoða og þurfi að lækka. Ég hef m. a. á fundi kaupfélagsstjóra lýst þeirri skoðun minni, að 54% dráttarvextir séu of háir, sérstaklega vegna þess að rekstrarfé hefur verið mjög af skornum skammti og fyrirtæki í verðbólgunni því lent í þeim vandræðum að geta ekki staðið í skilum með lán. Vitanlega verða dráttarvextir að vera einhverjir, það er alveg ljóst, en ég endurtek, að ég tel að 54% á ári sé fullhátt við þær aðstæður sem nú eru. Þannig eru ýmsir aðrir liðir en verðtryggingin sem slík sem fyrst og fremst valda miklum fjármagnskostnaði og mjög vaxandi á síðustu árum. Ég vona að ég hafi skýrt mín sjónarmið að þessu leyti.

Hv. þm. spurði um fiskverð. Ég hef sagt það á fjölmörgum stöðum, að ég tel sjálfsagt að sjómenn fái svipaða hækkun sinna tekna og menn fá í landi. Hv. þm. þarf ekki að leita á kaupfélagsstjórafund til að heyra þau ummæli. Ég hef sagt það á mörgum öðrum stöðum. Mig undrar ef hv. þm. er ósammála þessari skoðun minni. Það er alkunna, að laun hafa nú hækkað í landi í fyrsta lagi um 9.9% vegna vísitöluhækkunar og síðan um 3.25% vegna sérstakra samninga um grunnkaupshækkun. Þetta gerir samtals um 13–14% hækkun tekna, sem er sú tala sem ég hef notað í umr. um nauðsynlega tekjuhækkun sjómanna. Ég hef hins vegar sagt, bæði á þessum fundi kaupfélagsstjóra og öðrum fundum, að að sjálfsögðu verði um það rætt við sjómenn, hvort finna megi einhverjar aðrar leiðir til að þeir fái jafnmikla tekjuhækkun og menn í landi hafa fengið. T. d. er sjálfsagt að skoða hvort nauðsynlegt er svo hátt olíugjald eða olíugjald í því formi sem nú er. Olía hefur ekki hækkað á undanförnum mánuðum eins og gert var ráð fyrir. Fyrir sumar veiðar getum við sagt, t. d. bátaflotann, er olíugjaldið ekki orðið eins nauðsynlegt af þeim sökum og áður var. Þessi mál eru nú öll til umræðu í nefnd sem flokksbróðir hv. þm. skipaði til að athuga hlutaskipti. Þar eru lagðar fram ákveðnar tillögur nú um þetta mál og haldnir um þær fundir. Sömuleiðis hafa sjómenn og farmenn skipað viðræðunefnd sem er á fundum með mér og fleiri aðilum um þetta mál. Ég get upplýst t. d. að fundur í þeirri nefnd er n. k. mánudag. Þarna hefur að sjálfsögðu engin ákvörðun verið tekin þó að málin séu rædd. Ég endurtek því, að ég tel sjálfsagt að sjómenn fái svipaða tekjuhækkun og menn í landi hafa fengið. Hins vegar er nauðsynlegt að leita leiða til að veita þeim þá tekjuhækkun þannig að ekki þurfi að leiða til of mikils kostnaðarauka fyrir vinnsluna.

Þetta voru meginspurningar hv. þm. Ég held að ég hafi svarað þeim. Er það ekki rétt? Hins vegar vil ég, af því að ég er staðinn hér upp, fara örfáum orðum um það mál sem hér er til umr.

Ég vil í fyrsta lagi leiðrétta það, að hagsmunaaðilum hafi nokkurn tíma verið gefið loforð um að hér yrði um sjálfskuldarábyrgð að ræða. Ég verð að lýsa nokkurri undrun minni á þeirri umr. sem orðið hefur um sjálfskuldarábyrgð ríkissjóðs annars vegar og einfalda ábyrgð hins vegar. Hagsmunaaðilum var lofað að ríkisábyrgð yrði veitt. Ég vil vekja athygli hv. þm. á þeim fundargerðum Verðjöfnunarsjóðs sem liggja fyrir. Þar er ætíð talað um ríkisábyrgð. Ég held að menn verði að gera sér grein fyrir því, hver munur er á sjálfskuldarábyrgð og einfaldri ábyrgð. Ég veit að hv. þm. gerir það, en ég vil þó leyfa mér að vekja athygli á meginatriðum í því sambandi. Ef um sjálfskuldarábyrgð er að ræða getur lánveitandi gengið beint að ríkissjóði án þess að krefja Verðjöfnunarsjóð um greiðslu. Ég verð að segja fyrir mitt leyti að það getur varla talist eðlilegt. Ef hins vegar er um einfalda ábyrgð að ræða er það rétt að ganga verður úr skugga um hvort lántakandinn, þ. e. Verðjöfnunarsjóður, geti greitt umrædda skuld. Þetta er að sjálfsögðu ákaflega auðvelt. Það vill nú svo til að bankastjóri Seðlabankans er formaður Verðjöfnunarsjóðs. Honum er að sjálfsögðu ákaflega vel kunnugt um hvernig staða Verðjöfnunarsjóðs er áður en kemur til greiðslu á þessu láni.

Ég verð einnig að lýsa furðu minni á því, ef menn hafa skilið ummæli hæstv. fjmrh. svo að nauðsynlegt verði að gera Verðjöfnunarsjóð gjaldþrota áður en ríkissjóður greiði umrætt lán. Að sjálfsögðu er ríkissjóði fullkunnugt um hver staða Verðjöfnunarsjóðs er. Verðjöfnunarsjóður hefur af engu að taka nema innistæðu sem í honum kann að vera. Það eru engar eignir. Allur málatilbúningur út af þessu er því að mínu mati algerlega óþarfur.

Ég verð einnig að segja það, eftir að ég hef lesið ræðu fjmrh., að mér þykir undarlegt allt það moldryk sem út af hans orðum er þyrlað upp. Að sjálfsögðu hefur engin ákvörðun nú verið tekin um að þetta lán skuli falla á ríkissjóð. Hverjum dytti í hug að taka ákvörðun um það nú? Að sjálfsögðu gera menn sér vonir um að umræddri deild Verðjöfnunarsjóðs verði fært að greiða þetta lán. Það var gott að hv. þm. tók fram í framhaldsorðum sínum, en það lét ég mér um munn fara á fundi fjh.- og viðskn., að ég hefði langt frá því tekið fram að ákveðið væri að greiða þetta með gengisupptöku. Það er rétt, sem hv, þm. sagði, að ég vakti athygli á að skuld, sem stofnað var til af frystideild og reyndar loðnu- og mjöldeild á árunum 1976–1977 við ríkissjóð, var greidd með upptöku á slíkum gengishagnaði. Það hefur engin ákvörðun verið tekin í ríkisstj. um að slík leið verði nú farin.

Ég vil einnig leggja á það ríka áherslu, að hagsmunaaðilum hefur engu verið lofað um þetta efni nema því, að verði umræddri deild Verðjöfnunarsjóðs ekki kleift að greiða lánið verði það greitt úr ríkissjóði. En að sjálfsögðu gera allir sér vonir um að deildin fái þær tekjur að hún geti greitt þetta lán. Lánið er ráðgert til tveggja ára og er þá miðað við að tvær loðnuvertíðir verði liðnar áður en lánið fellur. Það er rétt, sem, hv. þm. sagði, að því miður tel ég útlitið eins og það er ekki gott á loðnumörkuðum, það kann því vel svo að fara að lánið falli á ríkissjóð. En ég endurtek, að engin ákvörðun hefur verið um það tekin frekar en gert var á árunum 1975, 1976 og 1977.

Ég vona að ég hafi svarað spurningum hv. þm.

Hv. þm. kom hér svo inn á ýmis atriði efnahagsmála sem ég ætla ekki að gera að umræðuefni. Ég held að það komi tækifæri til þess síðar. Mín stefna og stefna míns flokks í þeim málum hefur ætíð verið ljós. Við leggjum á það áherslu, eins og ríkisstj. öll, að verðbólgan þokist niður á við á næsta ári. Við teljum að svokölluð niðurtalningarleið sé æskilegust í því sambandi til þess jafnframt að tryggja fulla atvinnu. Þessi mál eru nú að sjálfsögðu til skoðunar hjá ríkisstj. og verður um þau fjallað á sínum tíma.