18.12.1981
Neðri deild: 28. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1821 í B-deild Alþingistíðinda. (1447)

Umræður utan dagskrár

Forseti (Sverrir Hermannsson):

Ég geri ráð fyrir að menn geti verið sammála um að ekki sé rúm eða tími fyrir umr. utan dagskrár eins og nú er komið högum hér á hinu háa Alþingi. Þó stendur þannig á að ég mun leyfa þær, en þó aðeins um örskamma stund, og bið ég viðkomandi vinsamlegast um að taka það til athugunar.