18.12.1981
Efri deild: 28. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1837 í B-deild Alþingistíðinda. (1483)

96. mál, tímabundið vörugjald

Forseti (Helgi Seljan):

Út af orðum hv. þm. tek ég fyllilega undir það með honum, að ég hafði reiknað með því og við hæstv. fjmrh. að hann yrði hér viðstaddur. Ég hefði að sjálfsögðu frestað fundi, ef hefði komið fram um það sérstök ósk, þangað til hann hefði komið. En ég vona að við séum sáttir, þó að á mismunandi grundvelli sé, um fjarveru hans úr deildinni.