18.12.1981
Sameinað þing: 38. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1840 í B-deild Alþingistíðinda. (1502)

115. mál, samkomulag milli Íslands og Noregs um landgrunnið milli Íslands og Jan Mayen

Frsm. (Geir Hallgrímsson):

Herra forseti. Mér er ánægja að vera frsm. hv. utanrmn. í þessu máli. Það náðist full samstaða og nm. eru allir sammála um að mæla með samþykkt þáltill. Með samþykkt þáltill. og staðfestingu samkomulagsins í báðum löndunum, Íslandi og Noregi, ætti full eining að ríkja með Íslendingum og Norðmönnum um hagnýtingu hafsins og hafsbotnsins milli Íslands og Jan Mayen. Á þessu svæði hafa Íslendingar frá upphafi talið sig eiga réttinda að gæta og kemur það t. d. glöggt fram í bréfi Jóns Þorlákssonar forsrh. 27. júlí 1927 til utanrrn. í Kaupmannahöfn, þar sem þess er óskað að sérstaklega sé tekið fram að Ísland sem næsti nágranni Jan Mayen eigi hagsmuna að gæta varðandi eyjuna. Í því bréfi er nefnt að þangað hafi verið sóttur rekaviður og veðurþjónusta þar skipti Ísland miklu. Síðan áfram orðrétt:

„En að því leyti sem til greina gæti komið að nota eyjuna í öðru skyni óski ríkisstjórn Íslands að áskilja íslenskum ríkisborgurum jafnan rétt við borgara hvaða annars ríkis sem er.“

Í samkomulagi milli Íslands og Noregs um fiskveiði- og landgrunnsmál, sem gert var í Osló hinn 10. maí 1980, eru réttindi Íslands viðurkennd bæði í inngangi samkomulagsins og ýmsum greinum þess. En Íslendingar hafa í samræmi við yfirlýsinguna í bréfi forsrh. frá 1927 ætíð leitast við að gæta þess, að réttindi þeirra væru a. m. k. ekki minni en nokkurra annarra. Með því samkomulagi sem hér liggur nú fyrir til staðfestingar styrkjast enn þessi sjónarmið og því væri ánægjulegt ef Alþingi gæti nú sameinast um að tryggja enn frekar íslenska hagsmuni á þessu hafsvæði um alla framtíð með einróma samþykkt þáltill. Ég vil sérstaklega vekja athygli hv. þm. á því sem í nál. segir, með leyfi forseta:

„Nefndin fjallaði sérstaklega um mengunarvarnir, en um þær er m. a. fjallað í 9. gr. samkomulagsins, auk þess sem ákvæði um þau efni í samkomulaginu frá 1980 gilda áfram.“

Hæstv. utanrrh. komst svo að orði í framsögu fyrir þáltill. hér á Alþingi:

„Telji annar aðilinn að reglur hins um öryggisráðstafanir og umhverfisvernd veiti ekki nægilega vernd má að undangengnum viðræðum vísa málinu til sáttanefndar. Ekki skal hefja eða halda áfram rannsóknum eða vinnslu á svæðinu fyrr en tillögur sáttanefndarinnar liggja fyrir, nema brýn þörf krefji, þ. e. ekki nema óhjákvæmilegra aðgerða sé þörf, t. d. til að fyrirbyggja enn alvarlegri mengunarhættu. Samkv. 9. gr. samningsins hafa íslensk stjórnvöld heimild til að stöðva framkvæmdir á svæðinu ef þær stofna lífríki hafsins í hættu. Í vinsamlegum samskiptum grannríkja er slíkt tryggingarákvæði vitnisburður um að hvorugur aðilinn mun standa að framkvæmdum sem hinn er andvígur.“

Herra forseti. Það er afar ánægjulegt, að með því samkomulagi um sameign eða sameiginlega hagnýtingu, sem nú er komið á lokastig, hafa álitamál á sviði hafréttar í fyrsta sinn verið leyst með þessum hætti á grundvelli uppkastsins að hafréttarsáttmála Sameinuðu þjóðanna. Vonandi er að slík lausn geti orðið fordæmi fyrir aðra sem leysa þurfa erfið ágreiningsmál. Ég vona að alger samstaða megi takast með hv. þm. við afgreiðslu þessarar þáltill.