18.12.1981
Sameinað þing: 38. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1852 í B-deild Alþingistíðinda. (1510)

1. mál, fjárlög 1982

Frsm. 2. minni hl. (Karvel Pálmason):

Herra forseti. Það er ástæðulaust að hafa langt mál hér nú við lokaumræðu fjárlaganna og breytir sjálfsagt ekki miklu um hvað gerist í áframhaldi af þessari umr. Það er ljóst að hæstv. ríkisstj. og stuðningslið hennar hér ætlar að afgreiða fjárlög fyrir árið 1982 á þann veg, að vægast sagt held ég að megi orða það svo, að þau standi a. m. k. á brauðfótum. Bæði við 1. og 2. umr. málsins hefur stjórnarandstaðan gert rækilega grein fyrir því, hversu mikið vantar upp á það að segja megi að afgreiðsla fjárlaga fyrir árið 1982 sé með eðlilegum hætti. Það er ljóst, að miðað við óbreyttar aðstæður verður ekki séð að fjárlög fyrir árið 1982 verði annað en að mestu leyti nokkurs konar pappírsgagn. Meðan ekki er sýnt fram á það af hálfu hæstv. ríkisstj., hvaða efnahagsráðstafanir hún ætlar að gera til þess að 33% reiknitalan milli ára fái staðist, þá er alveg augljóst mál að ekki er hægt að ætlast til þess, að stjórnarandstaðan leggi blessun sina yfir slíka afgreiðslu sem hér er lagt til.

Ég tók eftir því í samtalsþætti í Ríkisútvarpinu í morgun, að formaður þingflokks þeirra framsóknarmanna, hv. þm. Páll Pétursson, orðaði það svo, að það væri engin samstaða í ríkisstj. um aðgerðir sem dygðu, og hér er enn frekari árétting á því sem við stjórnarandstæðingar höfum haldið fram, að það er engin samstaða um þær efnahagsráðstafanir sem þarf að gera, ef grundvöllur fjárlagafrv. á að standast, og það er auðvitað meginkjarninn í þessu máli. En um það þýðir sjálfsagt ekki að hafa öllu fleiri orð. En ljóst er að meðan ekki er sýnt fram á að þær efnahagsráðstafanir, sem þarf að gera, verði gerðar með þeim hætti að frv. — og þar með þá fjárlögin — fái staðist, þá er í raun og veru um tómt mál að tala að hægt sé að afgreiða málið frá Alþingi. Það er því augljóst mál, að hæstv. ríkisstj. og stuðningslið hennar á Alþingi verður að bera ábyrgð á þeirri afgreiðslu sem hér fer væntanlega fram að þessari umr. lokinni. En ég skal ekki hafa öllu fleiri orð um þetta. Það hefur verið gerð grein fyrir afstöðu Alþfl. til fjárlagafrv. og þeirrar efnahagsstefnu sem hæstv. ríkisstj. fylgir og er þar litlu sem engu við að bæta. En áður en ég lýk máli mínu vil ég aðeins koma að brtt. við 4. gr. sem ég flyt hér ásamt hv. þm. Sighvati Björgvinssyni.

Ég gat þess að ég held rækilega bæði við 2. umr. fjárlaga og raunar oftar í umr. hér undanfarna daga, að það væri brýn þörf á því að gera nú ráðstafanir til þess að jafna orkuverð milli landsmanna. Í fjárlagafrv., þ. e. liðnum viðskrn., er styrkur vegna olíunotkunar til húshitunar. Orkujöfnunargjaldið, sem á sínum tíma var á lagt til þess að jafna orkuverð í landinu, gefur samkv. fjárlagafrv. 191.9 millj. kr. á næsta ári og einvörðungu 30 millj. af þessari upphæð, rúmlega 191 millj., ætlar hæstv. ríkisstj. að nota til þess að jafna þennan kostnað. Auk þess eru um 3 millj. sem ætlaðar eru í annars konar aðgerðir, orkusparandi aðgerðir o. fl. En eftir stendur að 158.9 millj. ætlar ríkisstj. sjálf að taka í ríkissjóð sem eyðslufé í aðra þætti en þá sem gjaldtakan var ætluð til. Ég á ekki von á að neitt mæli gegn því að það eigi að ráðstafa þessu fé í þann þátt mála sem það er innheimt til. Er því gerð tilraun til þess með þessari brtt. að láta a. m. k. á það reyna, hvort hæstv. ríkisstj. og stjórnarlið ætlar að halda sér við það — að ég hef fullyrt — að svíkja þetta fé út úr viðkomandi aðilum á fölskum forsendum og nota það til annars.

Það er líklega ekki búið að útbýta þessari brtt., ég hef ekki þingskjalsnúmerið, en þetta er brtt. við 4. gr. 12 202. Fyrirsögn þessa liðs er núna: Styrkur vegna olíunotkunar til húshitunar, en ég legg til að fyrirsögnin verði: Til jöfnunar orkuverðs samkv. nánari ákvörðun Alþingis. Og tölur í þessari brtt. eru um það, að til þessa verkefnis verði varið 188.9 millj. kr. í stað þeirra 30 millj. sem hæstv. ríkisstj. ætlar samkv. fjárlagafrv. að verja til niðurgreiðslu á olíu. Með þessu er verið að útvíkka jöfnun á þessum þætti og talað um jöfnun orkuverðs.

Ég vænti þess fastlega, að hv. alþm. séu orðnir um það sannfærðir, að ekki verður lengur unað þeim ójöfnuði sem nú er búið við. Ég held raunar líka að hv. þm. sé um það kunnugt, að nú er starfandi nefnd, sem skipuð var til að skoða þessi mál, og hæstv. ríkisstj. hefur skírskotað til þess, að hún vilji bíða með sínar ákvarðanir þangað til ljóst verði hver niðurstaða mála fáist úr þeirri nefnd og þeirri endurskoðun. Þess vegna er hér lagt til að þessir fjármunir, 188.9 millj., verði teknir frá, en síðan, að lokinni þeirri endurskoðun, sem stendur yfir og væntanlega lýkur mjög fljótlega, verði það samkv. nánari ákvörðun Alþingis sem þessu fjármagni verði skipt, í því skyni að jafna orkuverð milli landsmanna.

Ég sé ekki ástæðu til, herra forseti, að hafa þessi orð öllu fleiri. En ég treysti því og raunar veit að meiri hl. er fyrir því hér á hv. Alþingi að fara þessa leið til að jafna þennan mismun. Einvörðungu er spurning um það, hvort meiri hluti, sem hér er ríkjandi, fær að láta sína sannfæringu í ljós og njóta sín. Það er meginspurningin í þessu máli. Ég efast ekki um að viljinn er fyrir hendi.

Ég vil svo að lokum ítreka það sem ég sagði hér við 2. umr., að ég ítreka þakkir mínar til minna samnefndarmanna. Sérstaklega þakka ég hv. þm. Geir Gunnarssyni, formanni nefndarinnar, fyrir mjög ánægjulegt og gott samstarf og að ég tel farsæla stjórn og styrka í því erfiða hlutverki að gegna formennsku í fjvn.