18.12.1981
Sameinað þing: 38. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1863 í B-deild Alþingistíðinda. (1518)

1. mál, fjárlög 1982

Eiður Guðnason:

Herra forseti. Með örfáum orðum vil ég mæla fyrir nokkrum brtt. sem ég flyt við 3. umr. fjárlaga ásamt ýmsum fleiri hv. þm. Sumar af þessum till. voru fluttar við 2. umr., en dregnar þá til baka og eru nú fluttar að nýju.

Vil ég þá fyrst vekja athygli á till. sem er á þskj. 251 og er þar merkt með rómverskum l. Þessi till. er nú endurflutt við 3. umr. með nokkuð breyttu orðalagi og í hóp flm. hefur bæst hv. 3. þm. Reykv., Albert Guðmundsson. Breyttur texti till. er nú á þann veg, að sú fjárupphæð, sem þar er um að ræða, er sérstök afreksviðurkenning til sérsambanda og íþróttafélaga samkvæmt ákvörðun Alþingis. Á það var bent og sjálfsagt með réttu, að eins og þessi liður var orðaður, er till. var flutt við 2. umr., kynni það e. t. v. að rekast á við áhugamannareglur ef afreksviðurkenning af þessu tagi væri veitt einstökum íþróttamönnum. Hér er sem sé lagt til að 1 millj. kr. verði varið til að veita sérstakar afreksviðurkenningar sérsamböndum og íþróttafélögum samkvæmt ákvörðun Alþingis. Ég tíundaði við 2. umr. þau rök, sem ég tel renna stoðum undir flutning þessarar till., og ætla ekki að endurtaka þau, enda hygg ég að öllum hv. þm. sé ljóst hvað hér er um að tefla.

Þá er brtt. á sama þskj., sem merkt er rómverskum III, varðandi utanrrn. Þar breytist texti liðar, sem merktur er 0107, og verði: Kvikmyndir og myndbönd fyrir sendiráðin og ræðismenn til landkynningar. Þessi liður hækki um 100 þús. kr. Íslensk sendiráð erlendis nota mjög og hafa notað kvikmyndafilmur til að lána ýmsum aðilum til landkynningar og fræðslu um land og þjóð. Allt hefur þetta þó verið af vanefnum gert. Þess vegna er ástæða til að hækka þetta framlag og mæta nýrri tækni þar sem er notkun myndbandanna sem áreiðanlega mun vaxa mjög á þessum vettvangi. Ég sé að fjvn. hefur í sínum till., lið nr. 24, sett fram nýjan lið sem orðast svo: Kvikmyndir og myndbönd fyrir sendiráð til landkynningar 100 þús. kr. — Þó að þarna sé að vísu ekki gengið eins langt og ég geri í minni till. mun ég draga till. mína til baka þar sem hv. fjvn. hefur komið til móts við þessa hugsun. Er ég henni þakklátur fyrir það og till. er því dregin til baka.

Þá er á þskj. 251 till., sem ég hef leyft mér að flytja og er merkt rómverskum XVI. Hún er við 5. gr. fjárlaga, lið sem merktur er 31 321, Rafmagnsveitur ríkisins, fjárfestingar, á eftir liðnum Ólafsvík-Rif-Hellissandur, komi nýr liður sem merktur verði Vogaskeið-Stykkishólmur 2.2 millj. Þarna er um afar brýna framkvæmd að ræða í rafmagnsmálum að því er Stykkishólm varðar, að leggja nýja línu frá spennistöðinni þar og inn í byggðina. Raforka hefur verið mjög ótrygg þarna í vetur. Það er mat Rafmagnsveitna ríkisins að þessi framkvæmd sé svo brýn að hún megi ekki úr hömlu dragast. Hins vegar hefur ekki náðst um það samstaða í fjvn., að því er virðist, að taka upp þennan lið og því er um hann hér flutt till. sem ég treysti að mæti velvild og skilningi.

Þá vil ég víkja að brtt. við 6. gr. fjárlaga, sem merkt er hér með rómverskum XVII, og flm. eru Eiður Guðnason, Árni Gunnarsson og Benedikt Gröndal. Þar er lagt til — og er það endurflutt till. — að inn komi nýr liður sem orðist á þessa leið, með leyfi forseta: „Að endurgreiða Ríkisútvarpinu söluskatt af auglýsingum.“ — Ég fór um það nokkrum orðum við 2. umr. fjárlaga, að Ríkisútvarpið væri eini fjölmiðillinn í landinu sem gert er að greiða söluskatt. Raunar fjallaði ég einnig um hina almennu afstöðu þessarar ríkisstj. gagnvart Ríkisútvarpinu — þá menningarfjandsamlegu afstöðu sem ríkisstj. hefur tekið að því er varðar fjárveitingar til Ríkisútvarpsins. Ég ætla ekki að endurtaka neitt af því hér, en legg áherslu á að þessi till. nái fram að ganga. Þetta er mikið sanngirnismál og mundi vera stórt skref í þá átt að þessi rúmlega fimmtuga ríkisstofnun gæti rétt úr kútnum fjárhagslega. Þetta er enn einn prófsteinninn á það, hvort hjá núv. ríkisstj. ríkir raunverulegur vilji til að bæta stöðu Ríkisútvarpsins eða hvort um innantómt orðagjálfur er að ræða á hátíðastundum hjá hæstv. ráðh. Það kemur í ljós þegar greidd verða atkvæði um þessa tillögu.

Þá höfum við hinir sömu flutt till. um nýjan lið við 6. gr., um að fella niður aðflutningsgjöld af tækjum og búnaði til endurvarpsstöðva útvarps og sjónvarps. Það þarf ekki heldur að fara mörgum orðum um það, hversu brýnt þetta mál er. Það væri þá að hluta til leiðrétting á því ranglæti sem Ríkisútvarpið var beitt á sínum tíma þegar það var svipt tekjum af aðflutningsgjöldum af sjónvarpstækjum og búnaði til þeirra, — svipt þessum veigamikla tekjustofni sem aldrei hefur fengist bættur og núv. hæstv. ríkisstj. sýnir ekki heldur lit á að bæta.

Hv. fjvn. hefur í sínum brtt. tekið upp till., sem er liður 24, sem hljóðar svo: „Að endurgreiða innflutningsgjöld af tækjum sem flutt eru inn til aukningar á dreifikerfi sjónvarps samkvæmt nánari ákvörðun fjmrn.“ — Það skal fúslega viðurkennt að hér er stigið skref í rétta átt þótt ekki sé það stórt. Það er sem sagt aðeins um það að ræða að endurgreiða innflutningsgjöld af tækjum sem flutt eru inn til að auka dreifikerfi sjónvarpsins, þ. e. að bæta við það frá því sem nú er, ekki til þess, því miður, að endurbæta þegar úrelt og í sumum tilvikum afar léleg tæki í núverandi dreifikerfi. Enn lakara er þó það, að hér skuli ekki talað um dreifikerfi Ríkisútvarpsins, heldur aðeins dreifikerfi sjónvarps. Að því er varðar dreifikerfi Ríkisútvarpsins er fram undan mikið verk að koma stereo-útvarpi um landið allt og sömuleiðis að fjölga FM-stöðvum. Hjá hæstv. ríkisstj. og aðstandendum hennar virðist ekki vera skilningur á því að koma stereo-væðingunni sem víðast um landið, því miður. Engu að síður, þótt lítið sé, er hér verið að fara í rétta átt og þess vegna höfum við flm. ákveðið að draga til baka þá till. sem við höfum flutt um að fella niður aðflutningsgjöld af tækjum og búnaði til endurvarpsstöðva útvarps og sjónvarps.

Að lokum, herra forseti, minni ég á till. sem ég flutti við afgreiðslu fjárlaga í fyrra og þá var felld og endurflutti nú við 2. umr. Hún var í þá veru að heimila fjmrh. að breyta vanskilaskuldum Skallagríms hf. vegna Akraborgar við Ríkisábyrgðasjóð í föst lán. Þessa till. flutti ég við afgreiðslu fjárlaga í fyrra og endurflutti við 2. umr. fjárlaga núna. Ég sé í till. fjvn. að nefndin hefur gert þessa till. að sinni og bætt við, og fyrir það ber að þakka. Fjvn. gerir till. um að fjmrh. verði heimilt að semja við Herjólf hf. og Skallagrím hf. um vanskil fyrirtækjanna hjá Ríkisábyrgðasjóði, m. a. niðurfellingu vaxta og dráttavaxta að hluta, með þeim skilyrðum sem talin eru nauðsynleg. Ég fagna því, að þetta mál skuli hafa náð fram að ganga.