18.12.1981
Sameinað þing: 38. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1870 í B-deild Alþingistíðinda. (1528)

1. mál, fjárlög 1982

Þorv. Garðar Kristjánsson:

Herra forseti. Ég er samþykkur því sem hæstv. forseti sagði varðandi form brtt. um heiðurslaun listamanna. Þó að sumir hafi skrifað undir með fyrirvara hafa ekki aðrir skrifað undir með fyrirvara og till. sem slík væri fullgild þó að það væri aðeins einn maður sem bæri hana fram.

En út af því, sem síðasti ræðumaður sagði, var eitt atriði, sem hann vék að mér í ræðu sinni, og ég vil svara því. Hann sagðist hafa skilið mín orð áðan um till. um heiðurslaun listamanna svo, að ég væri andsnúinn henni. Mér finnst furðulegt að geta lagt þennan skilning í ummæli mín. Ég er flm. till. án fyrirvara og er auðvitað með tillögunni. (Gripið fram í.) Þessa hjá. Ég er með till., sem ég er að ræða um, um 12. Það er mín till., sem ég ber fram. Það hlaut að vera að það væri einhver misskilningur þarna. En þá sjáum við það báðir.

Svo vil ég einu orði víkja að því sem hv. 7. landsk. þm. sagði um þetta atriði. Að formi til virtust orð hans vera sem andsvar við því sem ég var að segja, en efnislega kom fram að hann er sammála því sem ég sagði.