18.12.1981
Efri deild: 30. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1875 í B-deild Alþingistíðinda. (1540)
73. mál, Framkvæmdasjóður aldraðra
Félmrh. (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Ég mæli fyrir frv. til l. um Framkvæmdasjóð aldraðra, sem þegar hefur hlotið meðferð í hv. Nd.
Frv. gerir ráð fyrir að á árinu 1982 verði heimilt að leggja á skattskylda menn 200 kr., en þó skulu börn innan 16 ára aldurs á tekjuárinu og þeir, sem eru 75 ára og eldri, undanþegnir gjaldinu sem og þeir menn sem hafa tekjuskattsstofn undir 45 þús. kr. Þá skal skattstjóri fella gjald þetta niður af þeim elli- og örorkulífeyrisþegum sem dveljast á dvalar- og hjúkrunarheimilum aldraðra.
Í 2. gr. frv. er gert ráð fyrir að fjmrn. eigi að skila Framkvæmdasjóði aldraðra ársfjórðungslega á innheimtuárinu fjórðungi af áætluðum tekjum sjóðsins samkv. þessari grein.
Í 3. gr. frv. er kveðið á um hlutverk sjóðsins og tel ég ekki ástæðu til þess að fara mörgum orðum um það. Ég geri ráð fyrir að það sé hv. þm. vel kunnugt.
Ég legg til, herra forseti, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. heilbr.- og trn.