18.12.1981
Efri deild: 31. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1875 í B-deild Alþingistíðinda. (1543)
150. mál, tollskrá o.fl.
Frsm. (Ólafur Ragnar Grímsson):
Herra forseti. Í ljósi þess, að málið er aðkallandi og mikilvægt, mælir nefndin með samþykkt frv. óbreytts, en við vekjum hins vegar athygli á að óvenjulegt sé að orða lagatexta á þann hátt sem hér er gert, einkum hvað snertir 2. mgr. 1. gr. Nefndin hvetur til þess, að fundið verði hið fyrsta betra form á þessari lagasetningu, og treystir á að það verði haft samráð við fjh.- og viðskn. um þá endurskoðun.