18.12.1981
Neðri deild: 31. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1877 í B-deild Alþingistíðinda. (1558)
55. mál, lánsfjárlög 1982
Matthías Á. Mathiesen:
Herra forseti. Þar sem sú niðurstaða hefur orðið, að 1. umr. frv. til lánsfjárlaga ljúki nú og tími gefist því til rækilegrar umfjöllunar í fjh.- og viðskn. þessarar hv. deildar á þessu frv., sem ekki sýnist vanþörf á, þá vísum við þm. Sjálfstfl. þessarar hv. deildar til umfjöllunar sjálfstæðismanna í Ed. í gær og tefjum því ekki umr. hér að sinni.