18.12.1981
Neðri deild: 31. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1878 í B-deild Alþingistíðinda. (1562)
55. mál, lánsfjárlög 1982
Sighvatur Björgvinsson:
Herra forseti. Ég vil aðeins taka það fram, að þó að fundum Alþingis sé frestað um jólaleyfi eru allar nefndir þingsins til. Það er ekki eins og um sé að ræða þingslit að vori, þegar engar þingnefndir eru til utan utanrmn., og verður því að setja allar þingnefndir á laggirnar með nýjum kosningum að hausti. Það er mjög alvanalegt, að þingnefndir starfi þó að þingfundir séu ekki haldnir, einnig í jólaleyfi þm., og ég hef sjálfur tekið þátt í starfsemi þingnefnda á þeim tíma. Þess vegna er það mjög eðlileg ósk sem ég hef sett fram, að hv. þm., formaður fjh.- og viðskn. Nd., reyni að kalla nefndina saman til starfa eitthvað aðeins fyrr en þing kemur saman, auk þess sem ég vil aðeins taka fram að meginhlutinn af vinnu í sameiginlegu fundahaldi fjh.- og viðskn. beggja deilda varðandi lánsfjáráætlun hefur farið í umr. um eitt afmarkað mál áætlunarinnar, þ. e. þann þátt málsins sem snýr að lífeyrissjóðunum einum. Flestöll önnur atriði lánsfjáráætlunar hafa ekki verið rædd, þ. á m. fjölmörg erindi sem borist hafa, svo sem það erindi sem hv. 6. þm. Reykv. gerði grein fyrir áðan, og einnig fjölmörg erindi sem liggja á borðum fjh.- og viðsk.-nefnda undirrituð af hæstv. samgrh., formanni Framsfl.